Oct 19. 2008
More in Icelandic on the Icelandic website
Oct 03. 2008
What is the state of the pension funds at times of uncertainty?
The general secretary of the Association for Pension Funds, Hrafn Magnússon, wrote this article at the request of the Consumer Spokesman in order to make known the state of the icelandic pension savings at these times of uncertainty.
More in Icelandic on the Icelandic websiteSep 21. 2008
Health foods
Health food is all kind of foods that are intended to improve health. What first comes to mind when one hears the word "health foods" are specially designed foods in order to improve health and concepts such as organically grown, no additives, non-milk products, products with decreased amount of sugar, gluten- and yeastfree products and minimum content of fat.
More in Icelandic on the Icelandic websiteDec 06. 2011
Einhliða vörslusviptingar án dóms og laga geta verið refsiverðar
Ef ekki liggur fyrir réttarágreiningur er rétt að skila bifreið gegn réttmætu uppgjöri en annars þarf heimild dómara og atbeina sýslumanns til einhliða vörslusviptingar.
More in Icelandic on the Icelandic websiteNov 15. 2011
Bótaábyrgð vegna „ótímabærra“ jarðskjálfta
Líklegt er að Orkuveita Reykjavíkur beri samkvæmt dómafordæmum hlutlæga ábyrgð á jarðskjálftum sem verða vegna niðurdælingar á Hellisheiði.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 04. 2011
Leiðbeiningar til neytenda í kjölfar endurútreikninga gengislána
Ekki verður talið að krefja megi neytendur um „vangreiðslur“ vaxta vegna gengislána í kjölfar endurútreiknings. Neytendum er bent á að gera fyrirvara um betri rétt neytenda og óska úrbóta hjá umboðsmanni skuldara ef efast má um réttmæti útreikninga eða krafna.
More in Icelandic on the Icelandic websiteDec 19. 2010
„Þykja hvorki neytendasjónarmið né staða aðila við samningsgerðina breyta þeirri niðurstöðu“
Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari gagnrýnir dóm Hæstaréttar frá 16. september 2010 um kjör á bílaláni til neytanda eftir að gengistrygging var dæmd ólögmæt þremur mánuðum fyrr. Gagnrýnin er ítarlega rökstudd - m.a. með vísan til dómafordæma Hæstaréttar.
More in Icelandic on the Icelandic websiteOct 27. 2010
Stjórnarskráin og framfærsla
Erindi sem talsmaður neytenda flutti í gærkvöldi á borgarafundi Bótar í Salnum í Kópavogi að ósk skipuleggjenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJun 27. 2010
„Neytendur voru sýknaðir“
Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJun 18. 2010
Áhrif gengisdómanna og viðbrögð
Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 19. 2010
Hamfaraviðbrögð
Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 24. 2010
Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá
Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggj...
More in Icelandic on the Icelandic websiteSep 17. 2009
Sátt um niðurfærslu skulda
Talsmaður neytenda birti í dag eftirfarandi grein í Viðskiptablaðinu - einnig sem aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 10. 2009
Smámálameðferð fyrir dómi eitt af brýnustu málum nýrrar ríkisstjórnar til handa neytendum
Talsmaður neytenda nefnir til sögu fjögur brýn mál, sem ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG stendur frammi fyrir í neytendamálum að hans mati; þrjú eru endurtekning frá fyrri stjórnarmyndunum en eitt nýtt: smámálameðferð í neytendamálum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 24. 2009
Okkar leið fyrir íslenska neytendur
Erla Ósk Ásk Ásgeirsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík suður, leggur áherslu á endurskoðun tolla og vörugjalda, lækkun vaxta og að óverðtryggð húsnæðislán bjóðist í auknum mæli - allt í þágu neytenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 18. 2009
Skilmálabreytingar á lánum
Í þriðja neytendapistli stjórnmálaflokka fyrir kosningar á laugardag leggur Ásta Rut Jónasdóttir frá Framsókn áherslu á að neytendur fái útskýringar við skilmálabreytingar. Hún rekur lögsókn gegn fjármálafyrirtækjum vegna forsendubrests.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 09. 2009
Ódýr vara getur verið rándýr til framtíðar litið
Í öðrum pistlinum um neytendamál fyrir komandi þingkosningar leggja Vinstri græn áherslu á að stórar einingar séu ekki ávallt neytendum í hag heldur þurfi sjálfbærni og heildarhugsun að ráða för.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 07. 2009
Um ábyrgan neytanda
Þráinn Bertelsson frá Borgarahreyfingunni skrifar fyrsta pistilinn þar sem stjórnmálasamtök, sem bjóða fram til Alþingis í vor, útskýra sýn sína á neytendamál. Þráinn spyr - og svarar - hvað felist í því að vera góður neytandi.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 06. 2009
Aukin neytendavernd fyrir börn
Hér birtist að nýju grein eftir umboðsmann barna og talsmann neytenda sem birtist í Morgunblaðinu í gær um nýlegar leiðbeiningar frá embættunum um aukna neytendavernd barna.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 30. 2009
Megináskorun nýrrar ríkisstjórnar í neytendamálum að færa niður íbúðarskuldir heimilanna
Talsmaður neytenda birtir eins og í maí 2007 helstu verkefni væntanlegrar ríkisstjórnar í neytendamálum og telur aðeins eitt til: tafarlausa skammtímalausn og undirbúning langtímalausnar á íbúðarveðskuldum neytenda. Fyrri ríkisstjórn fær góðan dóm í neytendamálum miðað við skamma setu.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJun 15. 2008
Ekki má blekkja neytendur varðandi uppruna matvæla
Úrbætur í vændum að því er varðar upprunamerkingar matvæla - þannig að ef getið er um að matvæli séu innlend (t.d. „íslensk framleiðsla“) þá ber að geta þess ef hráefnið er upp runnið annars staðar.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 28. 2008
„Leiðinlegt að stara á allt nammið“
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu í gær í tilefni af hringborðsumræðum umboðsmanns barna og talsmanns neytenda með hagsmunaaðilum um aukna neytendavernd barn
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 26. 2008
Neytendur þurfa fyrirvara
Neytendur eiga réttindi ef flugfélög breyta áætlunum eins og kemur fram í þessu stutta „Áliti“ sem talsmaður neytenda setti saman að beiðni 24ra studna.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 04. 2008
Að mati Hæstaréttar má mismuna neytendum eftir meðferðarúrræðum
Hæstiréttur hefur dæmt í máli sem Sálfræðingafélag Íslands höfðaði gegn ríkinu vegna þess að sálfræðingum væri mismunað gagnvart geðlæknum. Sálfræðingar töpuðu - og neytendur einnig; sumir vilja geta valið - ekki aðeins um meðferðaraðila, heldur einnig um meðferðartegund.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 20. 2008
Kostaboð eða klandur - (ó)öryggi neytenda við opnun lyfjamarkaðar
Í fyrsta gestapistli utanaðkomandi sérfræðings um neytendamál fjallar dr. Ingunn Björnsdóttir lyfjafræðingur um hættuna af því að opna lyfjamarkað um of þannig að fölsuð lyf eða hættuleg geti átt greiðari aðgang að neytendum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 13. 2008
Valfrelsi neytenda um fjölpóst og fríblöð - leiðir og röksemdir
Talsmaður neytenda fer yfir rök með og á móti því að neytendur geti valið að afþakka fjölpóst eða fríblöð eða hvort tveggja - fremur en "allt eða ekkert." Einnig er rakið hvaða leiðir eru færar - og ófærar - að markinu.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 02. 2008
Talsmaður neytenda hyggst vara neytendur við
Hvad gerir talsmaður neytenda ef fyrirtæki hunsa tilmæli hans? Enn hefur ekki reynt á það en hér er farið yfir sex mögulegar afleiðingar af hálfu embættisins - t.d. viðvaranir og ráðleggingar til neytenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteFeb 24. 2008
Ættu neytendur ekki að eiga hauk í horni í hverju fyrirtæki - fulltrúa neytenda innanhúss?
Talsmaður neytenda áréttar þá hugmynd að öll fyrirtæki, sem taka réttindi neytenda - og skyldur sínar - alvarlega, komi sér upp sérstökum - vel kynntum - fulltrúa neytenda innanhúss. Þannig mætti stuðla að því að lögbundin réttindi neytenda séu virt - í raun.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 13. 2008
Samráð úr sögunni?
Talsmaður neytenda telur að stór samráðsmál séu að mestu úr sögunni eftir breytingar sem eru að verða á lögum, stofnunum og markaði. Reifað er hvers vegna nokkuð skýr skaðabótaréttur neytenda er þó ekki raunhæfur og síðan rakið hvers vegna síður þurfi að búast við fleiri stórum samráðsmálum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 07. 2008
(vin)„Sælla er að gefa en þiggja"
Rætt er um ástæður gjafa frá fyrirtækjum og viðtakendur flokkaðir eftir sambandi þeirra - eða sambandsleysi - við gefendur. Talið er að hóflegar gjafir séu að jafnaði ekki óeðlilegar í viðskiptasamböndum en öðru máli gegni um gjafir til stjórnmála- og embættismanna, því æ sér gjöf til gjalda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteNov 19. 2007
Þögn er ekki sama og samþykki - neikvæð samningsgerð er óheimil
Talsmaður neytenda rekur að gefnu tilefni lagareglur sem varða svonefnda neikvæða samningsgerð og lýsir eftir dæmum, ef það tíðkast að fyrirtæki leggi þögn að jöfnu við samþykki.
More in Icelandic on the Icelandic websiteSep 30. 2007
Eiga neytendur rétt á að versla á íslensku?
Talsmaður neytenda veltir fyrir sér svarinu við spurningu um hvort íslenskir neytendur eigi rétt á að starfsfólk verlsana skilji og tali íslensku. Einhlítt svar finnst ekki í lögum - en kannski í lögmálum!
More in Icelandic on the Icelandic websiteAug 26. 2007
Too Many Numbers!
Í öðrum gestapistli sínum fjallar Ian Watson, sem situr í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, um óraunhæfan fjölda þeirra leyninúmera sem nútímaneytanda er sagt að hann þurfi að muna. Ian bendir á ógöngurnar sem þetta hefur leitt til fyrir neytendur enda sé minni þeirra takmörkuð auðlind.
More in Icelandic on the Icelandic websiteAug 11. 2007
Hinsegin neytendur
Jafnræði er stjórnarskrárvarið og nær það í sumum tilvikum til neytendaviðskipta. T.a.m. er refsivert að mismuna neytendum vegna kynhneigðar eins og danskt dæmi sýnir.
More in Icelandic on the Icelandic websiteAug 09. 2007
Ertu ferðatryggður?
Vakin er athygli á því hvað felist - og hvað ekki - í kreditkortatryggingum og sérstökum ferða- og forfallatryggingum til samanburðar við það sem fæst fyrir forfallagjald flugfélaganna.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJul 22. 2007
Ný stefnumörkun ESB í málefnum neytenda
Í fyrsta gestapistli sínum fjallar Liselotte Widing, sérfræðingur í neytendarétti og verkefnisstjóri Leiðakerfis neytenda, um nýja stefnumörkun ESB í neytendamálum sem mun hafa - góð - áhrif á íslenska neytendur ef rétt er á málum haldið.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 20. 2007
Áskoranir væntanlegrar ríkisstjórnar í neytendamálum
Hópmálsókn, lög um íbúðarlán og innheimtukostnað og bættir möguleikar neytenda á verðsamanburði eru að mati talsmanns neytenda þrjár helstu áskoranir nýrrar ríkisstjórnar í neytendamálum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMay 06. 2007
To reduce retail prices, make Internet shopping easier
Í fyrsta gestapistli sínum - og þeim fyrsta á ensku - fjallar Ian Watson, fulltrúi í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, um hátt verð á Íslandi sökum lítillar neytendavitundar og fákeppni. Leiðin að lægra verði til neytenda sé sá valkostur að flytja sjálfir inn vörur. Ian leggur til lausnir.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 29. 2007
Mikilvægi neytendaverndar. Sérstakar aðstæður.
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, fjallar í talhorninu um mikilvægi neytendaverndar - bæði almennt og við sérstakar aðstæður þar sem Pétur rökstyður að skortur á beinu sambandi neytanda og seljanda geti valdið hagsmunaárekstri og óhagk...
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 22. 2007
Neytendur snúi vörn í sókn!
Í gestapistli rifjar Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, upp sókn neytenda í Bandaríkjunum á árum áður og hvetur til þess að auglýsingar snúist um kjarna málsins: verð og gæði – fremur en ímynd og óviðkomandi atriði
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 15. 2007
Byggðamál eru líka neytendamál
Sem þriðji stjórnmálamaðurinn með gestapistlil í talhorninu skrifar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra um sérstaka hagsmuni neytenda á landsbyggðinni og leggur til leiðir til að jafna stöðu þeirra. Þá fjallar hún um aukna fríverslun með landbúnaðarafurðir.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 13. 2007
„Tilboð“ - lögleg en siðlaus?
Í talhorninu fjallar talsmaður neytenda um lögleg tilboð en „siðlaus“ í þeim skilningi að þau eru slæm fyrir hagsmuni neytenda – eins og rökstutt er í pistlinum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteApr 01. 2007
Hagsmunir neytenda og landbúnaðar liggja saman
Sem gestapenni í talhorninu fjallar landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, um að hagsmunir neytenda af öryggi matvæla og góðum landbúnaðarafurðum fari saman við hagsmuni landbúnaðarins.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 25. 2007
Greiðslur fyrir þjónustu verktaka
Í talhorninu áréttar talsmaður neytenda skýrar reglur um greiðslur fyrir þjónustu iðnaðarmanna - svo sem að virðisaukaskattur er innifalinn í tilboði og að samningar skulu standa.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 19. 2007
Kynjamisrétti neytenda - klippt og skorið!
Í talhorninu spyr talsmaður neytenda út í hugsanlega kynjamismunun neytenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 11. 2007
Er ósýnilega höndin fingurbrotin?
Sem gestapenni í talhorninu spyr Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, - og svarar - hvað stjórnvöld geti gert til að styrkja stöðu neytenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteMar 04. 2007
Skattalækkanir á matvælum eru ætlaðar neytendum
Sem fyrsti gestapenninn í talhorninu fjallar Jóhannes Gunnarsson um aðhald í því skyni að stuðla að því að lækkun opinberra gjalda á matvöru skili sér til neytenda.
More in Icelandic on the Icelandic websiteFeb 25. 2007
Hver á þennan disk? Og hvað með lögin?
Í talhorninu veltir talsmaður neytenda fyrir sér samspili höfundaréttar og afnotaréttar neytenda og bendir á að neytendur eigi hagsmuni af - og e.t.v. rétt á - því að fá nýjan disk ef sá gamli skemmist.
More in Icelandic on the Icelandic websiteFeb 18. 2007
Ber einhver ábyrgð á áfengisauglýsingum?
Í talhorninu vekur talsmaður neytenda athygli á að ábyrgð á áfengisauglýsingum er ekki eins óljós og halda mætti. Auglýsandi - og jafnvel fjölmiðill - er ábyrgur. Ritstjóri, ber refsiábyrgð á ómerktum auglýsingum.
More in Icelandic on the Icelandic websiteFeb 11. 2007
Verðmerkingar - of eða van!
Í talhorninu fjallar talsmaður neytenda um þrjú mikilvæg atriði verðmerkinga - þ.e. of litlar, of miklar og of tíðar verðmerkingar.
More in Icelandic on the Icelandic websiteFeb 04. 2007
Óréttmætar - óumbeðnar - kröfur á neytendur
Í fimmta talhorni talsmanns neytenda er fjallað um hvort fyrirtæki eða aðrir geti án samnings sett fram kröfur - t.d. í heimabanka - á hendur neytendum eða hvaða afleiðingar það hafi ef það er gert.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 28. 2007
Hver er ástæða fyrir háu verðlagi á Íslandi?
Í fjórða talhorninu spyr talsmaður neytenda hver sé ástæða fyrir háu verðlagi á Íslandi og svarið er - m.a. - þú!
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 21. 2007
Bæta siðræn matarkaup heiminn?
Í þriðja talhorninu fjallar talsmaður neytenda um hagsmuni neytenda af því að vita við hvaða skilyrði vara eða þjónusta er framleidd og umdeildar tilraunir til þess að bæta heiminn með neyslu - greiða atkvæði með veskinu.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 14. 2007
Samkeppnisbrot olíufélaganna gegn neytendum
Í öðru talhorni sínu víkur talsmaður neytenda að ákæru ríkissaksóknara frá 12. desember sl. á hendur þáverandi forstjórum 3ja stóru olíufélaganna fyrir brot gegn neytendum og leitar skýringa við því hvort virðingarleysi við lög eða ónógu stjórnsýsluaðhaldi sé að kenna.
More in Icelandic on the Icelandic websiteJan 07. 2007
Fjármál stjórnmálaflokkanna og hagsmunir neytenda
Í fyrsta talhorninu veltir talsmaður neytenda því fyrir sér hvort hagur neytenda vænkist og möguleikar á sjálfstæðum, íslenskum réttarbótum aukist nú þegar lög um fjármál stjórnmálaflokka hafa öðlast gildi.
More in Icelandic on the Icelandic websiteSep 29. 2006
Sáttameðferð sýslumanna í neytendamálum
Í erindi talsmanns neytenda á þingi Neytendasamtakanna 29. september 2006 vék talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, m.a. um stefnumörkun hins nýja embættis, samstarfi við aðra stjórnsýsluaðila og almannasamtök og kynnti til sögunnar nýtt úrlausnarúrræði í neytendamálum – sáttameðferð sýslum...
More in Icelandic on the Icelandic website