21. jún. 2010

Viðhorf talsmanns neytenda til þess hvernig megi vinna úr þeirri stöðu sem upp er komin í kjölfar dóma Hæstaréttar frá 16. júní 2010

Gengisdómar Hæstaréttar fela í sér tækifæri til lausnar í þágu allra neytenda frekar en þröskuld til frekari óvissu og málaferla að mati talsmanns neytenda í umsögn hans sem efnahags- og viðskiptaráðherra óskaði eftir.

Nánar

11. sep. 2009

Endurnýjað ákall til stjórnvalda

Frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Húseigendafélaginu, Félagi fasteignasala, Húsnæðissamvinnufélaginu Búseti á Norðurlandi, talsmanni neytenda og Lögmönnum Laugardal.

Nánar

29. apr. 2009

Tillaga TN 09-2 til forsætisráðherra um eignarnám og niðurfærslu íbúðarveðlána eftir mati gerðardóms

Talsmaður neytenda leggur til neyðarlög í þágu neytenda þar sem kveðið verði á um eignarnám íbúðarveðlána til neytenda og niðurfærslu þeirra eftir mati lögbundins, sérstaks gerðardóms, vegna forsendubrests o.fl. lagasjónarmiða.

Nánar

25. mar. 2009

Tillaga TN 09-1 ásamt umboðsmanni barna til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að tekið verði upp valfrjálst norrænt hollustumerki

Talsmaður neytenda hefur ásamt umboðsmanni barna sent sameiginlega tillögu til ráðherra matvælamála um að tekið verði upp norrænt - valfrjálst - hollustumerki í því skyni að auðvelda börnum og foreldrum að velja holl matvæli. Komin er 20 ára góð reynsla á hina sænsku fyrirmynd.

Nánar

11. feb. 2009

Ákall til stjórnvalda um almennar aðgerðir til lausnar efnahagsvanda heimilanna

Í sameiginlegu ákalli talsmanns neytenda og nokkurra almannasamtaka og hagsmunasamtaka er lýst þörf á almennum aðgerðum til lausnar íbúðarskuldavanda neytenda - hvort sem er í verðtryggðum lánum eða gengistryggðum. Þ.m.t. er almenn niðurfærsla höfuðstóls íbúðarveðlána.

Nánar

14. ágú. 2008

Tillaga TN 08-2 til fjármálaráðherra um niðurfellingu vsk. og tolls af sendingum að lágu verðmæti

Talsmaður neytenda hefur sent fjármálaráðherra tillögu um lagabreytingar sem einkum fela í sér niðurfellingu vsk. af bókasendingum að utan að verðmæti um 7.000 kr. eða allt að rúmum 2.000 kr. fyrir vörur í hærra vsk.-þrepi.

Nánar

20. feb. 2008

Tillaga TN 08-1 til fjármálaráðherra um að mismunur á stimpilgjaldi við endurfjármögnun verði afnuminn

Í nýrri tillögu til fjármálaráðherra um úrbætur á lögum er lagt til að neytendum verði ekki mismunað með skattheimtu í formi stimpilgjalds eftir því hvort þeir endurfjármagna skuldir sínar hjá sömu lánastofnun eða nýrri.

Nánar

16. okt. 2006

Tillaga TN nr. 06-1 um að afstýra einokun í mjólkuriðnaði með því að afnema þegar undanþágu búvörulaga frá samkeppnislögum sem heimilar samruna afurðarstöðva í mjólkuriðnaði

Í tilefni af fréttum beindi talsmaður neytenda þeirri tillögu til viðskiptaráðherra að afnumin yrði undanþága búvörulaga frá samkeppnislögum áður en óafturkræfur samruni yrði í mjólkuriðnaði sem stefnt væri að og myndi hafa skaðlegar afleiðingar fyrir neytendur. Þar sem landbúnaðarráðherra hafði í...

Nánar

30. jún. 2006

Tilmæli (tillaga) TN 06-3 til samgönguráðherra um mótvægisaðgerðir vegna frelsis í verðlagningu leigubifreiðaþjónustu

Í raun eru þessi tilmæli vegna efnis og viðtakanda tillaga um breytingar á stjórnvaldsreglum. Samgönguráðuneyti hefur til skoðunar tilmæli talsmanns neytenda um minniháttar breytingu á reglugerð í því skyni að skapa mótvægi í kjölfar ákvarðana samkeppnisyfirvalda um frelsi í verðlagningu leigubifre...

Nánar

Greinar

06. des. 2011

Einhliða vörslusviptingar án dóms og laga geta verið refsiverðar

Ef ekki liggur fyrir réttarágreiningur er rétt að skila bifreið gegn réttmætu uppgjöri en annars þarf heimild dómara og atbeina sýslumanns til einhliða vörslusviptingar.
Nánar

15. nóv. 2011

Bótaábyrgð vegna „ótímabærra“ jarðskjálfta

Líklegt er að Orkuveita Reykjavíkur beri samkvæmt dómafordæmum hlutlæga ábyrgð á jarðskjálftum sem verða vegna niðurdælingar á Hellisheiði.
Nánar

04. mar. 2011

Leiðbeiningar til neytenda í kjölfar endurútreikninga gengislána

Ekki verður talið að krefja megi neytendur um „vangreiðslur“ vaxta vegna gengislána í kjölfar endurútreiknings. Neytendum er bent á að gera fyrirvara um betri rétt neytenda og óska úrbóta hjá umboðsmanni skuldara ef efast má um réttmæti útreikninga eða krafna.
Nánar

19. des. 2010

„Þykja hvorki neytendasjónarmið né staða aðila við samningsgerðina breyta þeirri niðurstöðu“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari gagnrýnir dóm Hæstaréttar frá 16. september 2010 um kjör á bílaláni til neytanda eftir að gengistrygging var dæmd ólögmæt þremur mánuðum fyrr. Gagnrýnin er ítarlega rökstudd - m.a. með vísan til dómafordæma Hæstaréttar.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli