Hér er smám saman uppfærður listi yfir aðila sem rætt hefur verið við eða rætt verður við í því skyni að leita eftir sem víðtækustu samráði um hvernig megi setja mörk við markaðssókn sem beinist að börnum og hvar þau mörk eigi að liggja. Auk þeirra hefur verið leitað óformlega eftir sjónarmiðum og ábendingum fjölda ólíkra sérfræðinga og áhugamanna.

 

Hugsanlegt er að halda reglulega skrá yfir hagsmunaaðila sem hafa skuldbundið sig til þess að hlíta reglunum.

 

Ábendingar um fleiri aðila sem rétt væri að hitta eru vel þegnar.

 

Við lok meginsamráðs og eftir að sérstakt samráð hafði verið haft við hvern og einn neðangreindra aðila (dagsetningar innan sviga) var þeim aðilum boðið til opinna hringborðsumræðna hinn 27. maí 2008 í Þjóðmenningarhúsinu þar sem marghliða samráð átti sér stað og mættu þar um 50 aðilar frá stofnunum ríkis og sveitarfélaga, fræðasamfélagi, almannasamtökum o.fl. af neðangreindum lista. Heyrðu fundarfulltrúar útskýringar á leiðbeiningum, tilgangi þeirra og skýringum, tjáðu sig og hlýddu á rökræður um þær tillögur sem þá lágu fyrir. Í kjölfarið var samráðsfrestur lengdur til haustsins en vegna bankahruns þótti rétt að fresta afgreiðslu þar til betri tími gæfist til samráðs; lauk því í árslok 2008.

 

Almannasamtök

  • Alþýðusamband Íslands (14.1.08)
  • Bandalag háskólamanna (20.2.08)
  • BSRB (7.3.08)
  • Neytendasamtökin (8.1.08, 31.1.08 og 10.12.08)
  • Samtökin Heimili og skóli (jan. 08)

 

Fræðimenn og háskólastofnanir

  • Eþikos - Miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja (13.1.09)
  • Hópur fræðimenna af sviði viðskiptafræði, sálfræði og félagsvísinda (31.1.08)
  • Rannsóknarstofa HÍ í næringarfræði (13.3.08)

 

Hagsmunasamtök fyrirtækja á markaði

  • Félag íslenskra stórkaupmanna (30.1.08 og 28.4.08)
  • Samtök atvinnulífsins (1.6.06 og 8.10.08)
  • Samtök fjármálafyrirtækja (5.6.07, 7.5.08, 8.10.08, 10.11.08 og 22.12.08)
  • Samtök iðnaðarins (13.6.07, 29.4.08 og 23.12.08)
  • Samtök verslunar og þjónustu (4.6.07 og 29.4.08)
  • Viðskiptaráð Íslands (11.6.07 og 28.4.08)

 

Sjónvarpsstöðvar og fulltrúar auglýsingastofa:

  • Auglýsingageirinn
    • Samband íslenskra auglýsingastofa (síðast 6.6.07, 8.1.08 og 29.4.08)
    • AFA JCDecaux (29.4.08)
  • Sjónvarpsstöðvar
    • 365 (7.6.07 og 29.4.08)
    • RÚV ohf. (13.6.07 og 29.4.08)
    • Skjárinn (11.6.07 og 29.4.08)

 

Önnur fyrirtæki

  • Happdrætti Háskóla Íslands (10.3.08)
  • Íslandsspil (10.3.08)
  • Íslensk getspá (10.3.08)
  • Mjólkursamsalan í Reykjavík (27.3.08)

 

Ráðherrar og aðrir stjórnmálamenn

  • Viðskiptaráðherra (27.2.08)
  • Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingkona Samfylkingar og flutningsmaður þingmáls um tengt efni (16.1.08)
  • Heilbrigðisráðherra (6.3.08)
  • Menntamálaráðherra (7.2.08)
  • Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra (23.1.08)
  • Heilbrigðisnefnd Alþingis (19.2.08)

 

Aðrir hagsmunaaðilar

  • Biskupsstofa (8.2.08)
  • Bæjarstjórinn á Akureyri (14.6.07)
  • Borgarstjórinn í Reykjavík (7.1.08)
  • Bæjarstjórinn í Hafnarfirði (7.1.08)
  • Bæjarstjórinn í Garðabæ (7.1.08)
  • Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ (7.1.08) og fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar (23.12.08)
  • Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi (7.1.08)
  • Bæjarstjórinn á Álftanesi (7.1.08)
  • Félag íslenskra leikskólakennara (7.3.08)
  • Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema (8.2.08)
  • Samband íslenskra framhaldsskólanema (10.3.08 og 11.3.08)
  • Formaður Lögreglustjórafélags Íslands og umsjónarmaður happdrættis (sýslumaðurinn á Hvolsvelli) (1.2.08)
  • Formenn Skólameistarafélag Íslands og Félag íslenskra framhaldsskóla (9.1.08)
  • Formaður Skólastjórafélag Íslands (9.1.08)
  • Fulltrúar Íþrótta- og tómstundaráða Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar (30.1.08)
  • Íþróttasamband Íslands (9.1.08)
  • Strætó bs. (10.3.08)
  • Samtök auglýsenda (8.1.08)
  • Börn í Víkurskóla í Reykjavík (12.3.08)

 

Stjórnsýsluaðilar og fulltrúar annarra opinberra aðila

  • Einkaleyfastofa (2.12.08)
  • Jafnréttisstofa (14.6.07)
  • Landlæknir (30.1.08)
  • Lyfjastofnun (9.1.08)
  • Lýðheilsustöð (27.11.07)
  • Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins (1.2.08)
  • Matvælastofnun (27.2.08)
  • Neytendastofa (9.1.08)
  • Persónuvernd (10.3.08 og 2.1.09)
  • Póst- og fjarskiptastofnun (10.3.08)
  • SAFT (10.3.08)
  • Samband íslenskra sveitarfélaga (20.6.07 og 22.12.08)
  • Umhverfisstofnun (27.11.07)

 



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli