Í því skyni að hefja umræðu við fyrirtæki, hagsmunasamtök þeirra, almannasamtök, fræðimenn, stjórnsýsluaðila, foreldra og annan almenning og kynna í gegnum fjölmiðla má nefna eftirfarandi
dæmi um álitamál og hugmyndir að lausnum
Dæmi um mörk miðað við vettvang (og inntak):
- Grunnskólinn: Engar auglýsingar (markaðssetning)
- Opin rými þar sem börn komast ekki hjá að sjá auglýsingar (t.d. strætóskýli): aðeins auglýsingar sem beinast að börnum á grænmerktri (hollri) vöru (erfiðara er að skilgreina (ó)æskilega þjónustu)
- Framhaldsskólinn: Aðeins auglýsingar (eða önnur markaðssókn) með leyfi skólameistara og að þess leyfis sé getið í auglýsingu (markaðssetningu)
Dæmi um mörk miðað við tíma (og inntak):
- Sjónvarp (og e.t.v. útvarp): engar auglýsingar í 15 mín. fyrir og eftir barnaefni undir xx ára aldri
- Sjónvarp: aðeins auglýst grænmerkt (holl) vara fyrir kl. 21:00
Dæmi um mörk miðað við inntak (og vettvang og aldur):
- Óhollar vörur (með hátt fitu-, salt- og sykurinnihald): aðeins á sérstökum svæðum eða yfir 150 cm hæð (t.d. ekki í almennum göngum og ekki við kassa), sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.
- „Vanabindandi“ vörur (t.d. spil): aldrei fyrir yngri en xx ára
- Flókin þjónusta (GSM): aðeins með leyfi foreldra fyrir yngri en xx ára og að aldur notanda sé skráður hjá fjarskiptafyrirtæki
- Langtíma (áskrift): ekki fyrr en við 18 ára aldur
- Kynveru- og útlitsnálgun í markaðssetningu: Einhverjar hömlur!
Dæmi um mörk miðað við aldur (og inntak):
- Fjárhagslegar skuldbindingar (þ.m.t. yfirdráttur) fram í tímann ekki fyrr en við 18 ára aldur
- Markpóstur ekki með utanáskrift til barns fyrr en við xx ára aldur
- Aðeins debetkort (síhringikort) frá xx ára aldri og með samþykki foreldra
- Ekki afsláttarkort (þ.m.t. félagskort) fyrr en við xx ára aldur
- Dæmi um mörk miðað við nafngift (og inntak):
- Aðeins kalla eitthvað „hollt” o.þ.h. sem hefur opinberan (grænmerktan) stimpil sem væntanlegur er frá Umhverfisstofnun (nú væntanlega Matvælastofnun), sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.
- Sama e.t.v. með nafngiftir á borð við „skóla”-
Dæmi um mörk miðað við form:
- Hugsanlega einhverjar takmarkanir varðandi kostun fræðsluefnis fyrir (ung) börn, t.d. háð stefnumörkun skóla(stjóra) eða sveitarstjórnar eða takmarkað án þess að hamlað sé framþróun efnis