Eftirfarandi er

 

endurskoðuð hugmynd að tímaramma fyrir samráðsferlið:

 

2005-2006                                            málið sett á dagskrá


 

2005-2006                                           upplýsingasöfnun um helstu álitamál

 

2006-7                                                   úrvinnsla til að finna lausnir

 

Vor og sumar 2007                              samráðsferli við lykilaðila á sviði markaðar, sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.


 

Árslok 2007 og ársbyrjun 2008          samráðsferli við tugi almannasamtaka, fræðimanna, sveitarfélaga, ríkisstofnana, ráðherra og annarra hagsmunaaðila

 

Ársbyrjun 2008                                       frekara samráð við lykilhagsmunaaðila á sviði markaðar og viðræður í því skyni að ná samkomulagi

 

Ársbyrjun 2008                                       opinber kynning á ferli og helstu álitaefnum


 

Snemma vors 2008                             opinber kynning á drögum til umsagnar



 

Mitt ár 2008                                            frekari kynning


 

Árslok 2008                                         hugsanleg gildistaka

 

***

 

Í því skyni að hefja umræðu við fyrirtæki, hagsmunasamtök þeirra, almannasamtök, fræðimenn, stjórnsýsluaðila, foreldra og annan almenning og kynna í gegnum fjölmiðla má nefna eftirfarandi

 

dæmi um álitamál og hugmyndir að lausnum

 


Dæmi um mörk miðað við vettvang (og inntak):

  • Grunnskólinn: Engar auglýsingar (markaðssetning)
  • Opin rými þar sem börn komast ekki hjá að sjá auglýsingar (t.d. strætóskýli): aðeins auglýsingar sem beinast að börnum á grænmerktri (hollri) vöru (erfiðara er að skilgreina (ó)æskilega þjónustu)
  • Framhaldsskólinn: Aðeins auglýsingar (eða önnur markaðssókn) með leyfi skólameistara og að þess leyfis sé getið í auglýsingu (markaðssetningu)

 

Dæmi um mörk miðað við tíma (og inntak):

  • Sjónvarp (og e.t.v. útvarp): engar auglýsingar í 15 mín. fyrir og eftir barnaefni undir xx ára aldri
  • Sjónvarp: aðeins auglýst grænmerkt (holl) vara fyrir kl. 21:00

 

Dæmi um mörk miðað við inntak (og vettvang og aldur):

  • Óhollar vörur (með hátt fitu-, salt- og sykurinnihald): aðeins á sérstökum svæðum eða yfir 150 cm hæð (t.d. ekki í almennum göngum og ekki við kassa), sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.
  • „Vanabindandi“ vörur (t.d. spil): aldrei fyrir yngri en xx ára
  • Flókin þjónusta (GSM): aðeins með leyfi foreldra fyrir yngri en xx ára og að aldur notanda sé skráður hjá fjarskiptafyrirtæki
  • Langtíma (áskrift): ekki fyrr en við 18 ára aldur
  • Kynveru- og útlitsnálgun í markaðssetningu: Einhverjar hömlur!

 

Dæmi um mörk miðað við aldur (og inntak):

  • Fjárhagslegar skuldbindingar (þ.m.t. yfirdráttur) fram í tímann ekki fyrr en við 18 ára aldur
  • Markpóstur ekki með utanáskrift til barns fyrr en við xx ára aldur
  • Aðeins debetkort (síhringikort) frá xx ára aldri og með samþykki foreldra
  • Ekki afsláttarkort (þ.m.t. félagskort) fyrr en við xx ára aldur
  • Dæmi um mörk miðað við nafngift (og inntak):
  • Aðeins kalla eitthvað „hollt” o.þ.h. sem hefur opinberan (grænmerktan) stimpil sem væntanlegur er frá Umhverfisstofnun  (nú væntanlega Matvælastofnun), sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.
  • Sama e.t.v. með nafngiftir á borð við „skóla”-

 

Dæmi um mörk miðað við form:

  • Hugsanlega einhverjar takmarkanir varðandi kostun fræðsluefnis fyrir (ung) börn, t.d. háð stefnumörkun skóla(stjóra) eða sveitarstjórnar eða takmarkað án þess að hamlað sé framþróun efnis


 



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli