Þar sem hvorki fulltrúar viðskiptalífs né embætti talsmanns neytenda og umboðsmanns barna hafa áhuga á eða bolmagn til að koma til sjálfstæðum og sérstökum eftirlitsaðila í þessu skyni má velta fyrir sér eftirfarandi möguleikum hvað varðar
úrræði
til þess að samkomulagi eða leiðbeiningum sé fylgt í sem flestum tilvikum.
- Fylgja eða útskýra („comply or explain”).
- Aðhald almennings og fjölmiðla.
- Siðanefnd SÍA.
- Kærunefnd jafnréttismála í málum sem tengjast jafnréttislögum.
- Hugsanlega síðar eins konar vottun – sem þó er væntanlega háð því að einhver taki út og fylgist með!
- Einstök fyrirtæki lýsi yfir einhliða að þau fari að leiðbeiningum talsmanns neytenda og umboðsmanns barna (eins konar „hálf-vottun“).
- E.t.v. mætti hugsa sér skrá hjá umboðsmanni barna og talsmanni neytenda yfir aðila sem hafa skuldbundið sig til þess að virða samkomulagið eða leiðbeiningarnar.
- Fyrirtæki undirgangist að þeim sé skylt að taka við kvörtunum, fjalla um þær og svara þeim.
- Meðvituð og yfirlýst kærustefna embætta talsmanns neytenda og umboðsmanns barna í grófari tilvikum, svo sem út frá áfengislögum.
- Talsmaður neytenda leggi að fyrirtækjum að koma sér upp innanhússfulltrúa neytenda sem m.a. fylgi þessum reglum eftir.
- E.t.v. tilmæli á borð við þau sem TN hefur gefið út (sjá tn.is) þannig að horft sé lausnarmiðað til framtíðar frekar en fjallað um fortíðarbrot (að höfðu samráði við fyrirtækið um sjónarmið þess í málinu).
- Þrýst verði á stærri fyrirtæki að skýra frá umkvörtunum (a.m.k. fjölda og niðurstöðum) í ársskýrslum eða skýrslum til talsmanns neytenda ef til kemur.
- Hugsanlega leyfissviptingar, sbr. hér að neðan.
- Hugsanleg spjallrás fyrir börn um neytendamál (og annað) til að gefa rödd þeirra vægi.
- Fastur samráðsvettvangur talsmanns neytenda og umboðsmanns barna með almannasamtökum á borð við Heimili og skóla og Neytendasamtökin og með hagsmunaðilum í atvinnulífi á borð við Viðskiptaráð, auglýsingageirann, sjónvarpsstöðvar og (aðildarsamtök) Samtaka atvinnulífsins. Ef slíkum samráðsvettvangi yrði komið á mætti hugsa sér að hist yrði einu sinni á ári.
Lögbundin úrræði
Kvartanir og kærumál til stjórnýsluaðila
Þá má minna á að grófari mál geta falið í sér brot á lögum eða reglum og geta leitt til kvartana eða kærumála til stjórnsýsluaðila á borð við Lyfjastofnunar, Neytendastofu, Póst- og fjarskiptastofnunar eða jafnvel lögreglu. Hugsanlegt er að fyrrnefndir aðilar líti til væntanlegs samkomulags eða leiðbeininga við túlkun á því hvort brotið sé gegn lögum eða reglum. Stundum geta leyfissviptingar e.t.v. komið til greina, a.m.k. að undangenginni áminningu.
Brot gegn réttindum og hagsmunum neytenda
Þá felst hlutverk talsmanns neytenda lögum samkvæmt m.a. í því að bregðast við ef brotið er gegn réttindum og hagsmunum neytenda.
Brot gegn réttindum, þörfum og hagsmunum barna
Sömuleiðis skal umboðsmaður barna bregðast við með tiltækum úrræðum telji hann að stjórnvöld, einstaklingar, félög og önnur samtök einstaklinga og fyrirsvarsmenn lögaðila hafi með athöfnum sínum eða athafnaleysi brotið gegn réttindum, þörfum og hagsmunum barna í samfélaginu.