Á fundum, í fjölmiðlakynningu og á ráðstefnum um efnið hafa talsmaður neytenda og umboðsmaður barna gert ráð fyrir unnt sé að fara

 

fjórar leiðir

 

til að ná því markmiði að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum.

 

  1. Samkomulag embætta TN og UB við fulltrúa atvinnulífs að höfðu samráði við aðra hagsmunaaðila („co-regulation“).
  2. Leiðbeiningar embætta talsmanns neytenda og umboðsmanns barna til atvinnulífs að höfðu samráði við alla hagsmunaaðila („soft law“).
  3. Einhliða löggjöf eða reglur með stoð í lögum („hard law“).
  4. Eigin reglusetning fyrirtækja eða samtaka þeirra („self-regulation“).

Þó að eigin siðareglur einstakra fyrirtækja eða geira (4) séu oft til bóta og strangari löggjöf eða reglur (3) komi til álita telja umboðsmaður barna og talsmaður neytenda að vænlegasta leiðin til þess að ná árangri sé að stuðla að umræðu eins og embættin hafa gert í samstarfi við fjölmarga aðila undanfarin tvö ár (2005-7) og að út úr frekara samráðí um hvar mörkin liggi komi annað hvort formlegt samkomulag (1) eða leiðbeiningar (2) um aukna neytendavernd sem geri kleift að standa vörð um hagsmuni og réttindi barna sem neytenda. Í fjölmiðlum verður eftir því sem tilefni gefst til upplýst um ástæðu þessarar nálgunar að viðfangsefninu.

 

***

 

Börn eru ekki sjálfstæðir neytendur, hafa ekki nægan þroska til að meta hvað þau hafa þörf fyrir og hvað þeim er hollt eða til að sjá í gegnum auglýsingar og loks hafa þau ekki fjárráð til að bregðast við auglýsingum eða annarri markaðssókn sem beinist að þeim. Lög og reglur um neytendavernd og réttindi barna eru afstæð hvað það varðar hve langt megi ganga í markaðssetningu og hve mikillar neytendaverndar er þörf. Fer það m.a. eftir aldri og þroska móttakanda skilaboða og þroska og aldri endanlegs neytanda, svo og inntaki þeirrar vöru eða þjónustu sem í boði er. Einnig þarf að gera kröfu um að skýrt komi fram að um sé að ræða markaðssókn sem beinist að börnum. Því eru eftirfarandi

 

meginsjónarmið

 

ríkjandi í viðleitni talsmanns neytenda og umboðsmanns barna að ná samkomulagi eða sátt um hvar mörkin liggi:

 

  • Því yngri – því meiri takmörkun!
  • Því óhollara – því meiri takmörkun!
  • Því ógreinilegri skil markaðssókn og fræðslu/skemmtunar/upplýsinga eða annars – því sterkari viðbrögð eða úrræði.

 

Sem dæmi má nefna þarf að taka meira tillit til ungra barna í sumu tilliti en unglinga því unglingar kunna frekar skilsmun á hollri vöru og óhollri. Á hinn bóginn þarf að taka sérstakt tillit til unglinga - m.a. vegna áhrifavalda sem þeir búa við.

 


 



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli