Hér á síðunni er velt upp möguleikum varðandi
hugsanleg greinimörk leiðbeinandi reglna um mörk
við markaðssetningu gagnvart börnum.
Til þess að auðvelt sé að fylgjast með og fylgja eftir væntanlegum reglum í samkomulagi eða leiðbeiningum að höfðu samráði má miða við ýmis viðmið - sem eru mis auðveld, sum hlutlæg og skýr en önnur matskennd og umdeilanleg:
- Vettvangur til auglýsingar eða markaðssetningar (t.d. skóli eða opin rými þar sem börn komast ekki hjá)
- Miðill til markaðssetningar (stundum sem íþyngjandi sjónarmið en annars fremur að hafa almennar láréttar grunnreglur, óháð miðli)
- Tímasetning sem markaðssetning á sér stað (t.d. í kringum barnaefni í sjónvarpi)
- Aldur áhorfanda eða neytanda (hlutlægt)
- Þroski áhorfanda eða neytanda (matskennt)
- Inntak vöru eða þjónustu (mikilvægt)
- sykur, fita, salt og annað sem ekki er skilgreint sem holl vara, sbr. frétt frá 14. september 2007 um átak SVÞ um hollustumerkingar o.fl.
- áfengi, tóbak, lyf, vímuefni og annað óhollt/bannað
- kynferðisleg eða útlitsleg skilaboð
- Form (þróun hröð)
- auglýsing (bein)
- kostun
- dulin staðsetning vöru, svonefnd vörulaum eða vörusýnd („product placement“)
- kynning
- kunningjamarkaðssetning („buzz“)
- jafningamarkaðssetning („peer to peer“)
- markaðssetning fyrir yngri á vöru og þjónustu sem ætluð er eldri („age-compressing“)
- Annað
- nafngift
- fígúrutenging