Í lögum segir: 

 

„Talsmanni neytenda er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast starfi hans.“

 

Af þeim sökum þykir rétt að birta trúnaðarstörf Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda, á hverjum tíma en þau eru, miðað við árslok 2008.

 

Störf

  • Aðjúnkt í neytendarétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2008.
  • Kjörinn á stjórnlagaþing í árslok 2010, sem sitja mun frá 15. febrúar í 2-4 mánuði.
  • Verð væntanlega í takmörkuðu hlutastarfi sem talsmaður neytenda á meðan en sérfræðingur mun væntanlega sinna öðrum störfum við embættið á meðan á þingstörfum stendur.
  • Engin önnur launuð störf.

 

Fræða- og félagsstörf og seta í úrskurðarnefndum

  • Í varastjórn Skógræktarfélags Kópavogs frá mars 2006.
  • Aðal- eða varamaður í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 2004.
  • Varamaður í málskotsnefnd samkvæmt lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna 1997-2010 skipaður af menntamálaráðherra til 4ra ára í senn.
  • Fulltrúi í 3ja manna ráðgjafarhóp ríkisstjórnarinnar um undirbúning frumvarps til stjórnarskipunarlaga um boðun stjórnlagaþings og breytingar á stjórnarskránni í febrúar 2009, skipaður af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.
  • Formaður laganefndar Framsóknarflokksins frá 2007-2010 með leyfi ráðherra.
  • Í stjórn Félags forstöðumanna ríkisstofnana 2006-8.
  • Engin stjórnarstörf í fyrirtækjum eða önnur tengsl við fyrirtæki nema sem almennur neytandi.

 


 Síðast ppfært 16. desember 2010.



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli