Dæmi um verkefni talsmanns neytenda

Af vettvangi varðstöðu talsmanns neytenda má nefna greinaskrif í talhorninu og áherslu á vernd neytenda sem standa hlutfallslega veikar að vígi en aðrir, svo sem börn og aldraðir; sem eru m.ö.o. megin markhópurinn hvað varðstöðuna varðar. Í því sambandi hefur þess. t.d. verið freistað - m.a. í samstarfi við Lýðheilsustöð og umboðsmann barna - að sporna gegn áfengisauglýsingum - sem eru óheimilar. Sem formlegt dæmi má nefna tilmæli um endurskoðun þjónustugjalds í þjónustuíbúðum aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Einnig er í samstarfi við umboðsmann barna unnið að samkomulagi við markaðsaðila um að setja mörk við markaðssetningu sem beinist að börnum. Verður slíkt samkomulag gert að höfðu samráði við stjórnsýsluaðila og almannasamtök.

 

Sem dæmi um kynningu má nefna svör við algengum spurningum á heimasíðu talsmanns neytenda, viskukornin „Vissir þú...?“ á forsíðu, svo og neytendaleik fyrir börn sem væntanlegur er á heimasíðuna og Leiðakerfi neytenda sem er í vinnslu í tengslum við upplýsingavefinn www.island.is. Þar er markhópurinn einkum áhugasamir neytendur.

 

Áhrif til úrbóta hefur fram að þessu verið umfangsmesti þátturinn í störfum talsmanns neytenda. Fyrst má nefna lausnarmiðuð tilmæli til framtíðar sem beinast yfirleitt að einstökum fyrirtækjum og eru liður í að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd. Sem dæmi má nefna tilmæli frá síðari hluta árs 2006 um að látið verði af birtingu greiðslukortaupplýsinga á greiðslukortakvittunum og tilmæli til flugfélaga í upphafi árs 2007 sem ætlað er að sporna gegn „gjaldavæðingu.“ Slík lausnamiðuð nálgun getur í framtíðinni einnig átt sér stað með almennum leiðbeiningum eða samkomulagi á borð við það sem stefnt er að varðandi markaðssetningu sem beinist að börnum. Þá sendir talsmaður neytenda eins og lög gera ráð fyrir tillögur til ráðherra eða annarra um nauðsynlegar úrbætur á lögum eða reglum. Enn fremur er á köflum mikið um umsagnir til Alþingis eða annarra um lagafrumvörp eða önnur þingmál. Loks er ekki hægt að útiloka að talsmaður neytenda sendi ábendingar til opinberra eftirlitsaðila um hvað betur megi fara. Af þessu má sjá að markhópur tilrauna talsmanns neytenda til áhrifa eru áhrifaaðilar í þjóðfélaginu, stjórnvöld, stjórnmálaflokkar, fjölmiðlar, embættismenn og síðast en ekki síst fyrirtæki og stjórnendur þeirra.

 

Af þessum sökum er - bæði í lögum og í starfsemi talsmanns neytenda - lögð mikil áhersla á sjálfstæði talsmanns neytenda.




Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli