Vissir þú..
... að þögn er ekki sama og samþykki þegar fyrirtæki vilja stofna til viðskipta við neytendur?
... að ef gjalddagi er ekki fyrir fram ákveðinn má ekki reikna dráttarvexti fyrr en liðinn er mánuður frá sannanlegri og réttmætri kröfu um greiðslu?
... að hillumerking vöru er að jafnaði bindandi og það verð sem gildir þó að skráð kassaverð sé hærra?
... að skylt er að merkja matvæli með upplýsingum um uppruna eða framleiðsluland ef skortur á þeim gæti villt um fyrir neytendum um réttan uppruna?
... að samningi má víkja til hliðar eða breyta ef það yrði talið ósanngjarnt fyrir neytanda eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hann fyrir sig?
... að óheimilt er að selja útrunna vöru undir yfirskyni útsölu og sama gildir um gallaða vöru á afslætti nema gallinn sé kynntur sem ástæða afsláttar?
... að ef seljandi vill hækka gjald fyrir áskrift eða aðra ótímabunda þjónustu er rétt að gefa neytanda kost á að hætta viðskiptum innan hæfilegs frests?
... að neytendur geta fengið álit úrskurðarnefnda út af þjónustu á sviði vátrygginga, fjármála, fatahreinsunar, ferðamála, iðnaðarmanna, tannlækninga o.fl.?
... að til er kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa sem neytendur geta kvartað til ef ágreiningur rís í kjölfar kaupa á vöru eða þjónustu?
... að í tilgreindu verði skulu innifalin öll opinber gjöld - t.d. vsk. - nema neytandi hafi sannanlega haft vitneskju um að gjöldin væru ekki innifalin?
... að bannað er að selja leikföng eða sælgæti sem líkja eftir sígarettum, vindlum eða pípum eða er með öðrum hætti ætlað að minna á tóbak?
... að RÚV skal leitast við að taka tillit til barna áður en teknar eru ákvarðanir um birtingu auglýsinga þar sem auglýstar eru vörur eða þjónusta ætluð börnum?
... að auglýsingar skulu miðast við að börn sjái þær og heyri og mega á engan hátt misbjóða börnum?
... að í auglýsingum verður að sýna sérstaka varkárni vegna trúgirni barna og unglinga og áhrifa á þau?
... að útvarps- og sjónvarpsauglýsingar skulu þannig gerðar og fluttar að þær valdi ekki börnum siðferðilegum eða líkamlegum skaða?
... að í útvarpsauglýsingum er óleyfilegt að hvetja börn til þess að kaupa vöru eða þjónustu með því að notfæra sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni?
... að í útvarpsauglýsingum er óleyfilegt að hvetja börn til þess að telja foreldra sína eða aðra á að kaupa vöru eða þjónustu sem auglýst er?
... að í útvarpsauglýsingum er óleyfilegt að notfæra sér það sérstaka trúnaðartraust sem börn bera til foreldra, kennara eða annars fólks?
... að í fjarsöluþáttum er óleyfilegt að hvetja börn til þess að gera samninga um kaup eða leigu á vöru eða þjónustu?
... að ritstjóri getur verið refsiábyrgur fyrir áfengisauglýsingu sem ekki er merkt heiti auglýsandans?
... að aðeins þær heilsufullyrðingar eru heimilar á matvælum sem leyfðar hafa verið af hálfu Matvælastofnunar (brátt ESB)?
... að frá vefgáttinni Leiðakerfi neytenda (www.neytendi.is) geturðu leitað réttar þíns sem neytandi?
... að sýslumanni er skylt að leita sátta milli neytanda og seljanda vöru og þjónustu ef báðir fara fram á það?
... að húsgöngu- og fjarsölusamningur skuldbindur ekki neytanda fyrr en eftir 14 daga og er neytanda heimilt að hætta við innan þess frests án bóta eða rökstuðnings?
... að á tilteknum helgidögum þjóðkirkjunnar eru markaðir og verslunarstarfsemi, svo og önnur viðskiptastarfsemi, almennt óheimil?
... að ekki má krefjast dráttarvaxta fyrr en mánuði eftir að „kröfuhafi sannanlega krafði skuldara með réttu um greiðslu“ - nema gjalddagi sé „fyrir fram ákveðinn“?