24. ágú. 2010
Ábending TN 10-2: Óskir um gjaldskrárhækkanir verði grandskoðaðar og gjaldskráreftirlit samræmt
Talsmaður neytenda beinir því til iðnaðarráðherra að láta samræma eftirlit með gjaldskrám fyrir orku og aðra veituþjónustu til neytenda þar sem einokun ríkir eða takmörkuð samkeppni og að þau stjórnvöld sem staðfesti gjaldskrár meti óskir um hækkanir sjálfstætt.
Nánar09. júl. 2010
Ábending TN 10-1: Tilmæli FME og SÍ til fjármálafyrirtækja, dags. 30. júní 2010, verði afturkölluð
Talsmaður neytenda hefur beint því formlega til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands að afturkalla tilmæli þessara stofnana til fjármálafyrirtækja frá 30. júní sl. vegna valdþurrðar, rangs lagagrunns, skorts á lagastoð að formi og efni til og ónógs undirbúnings.

Nánar20. ágú. 2009
Ábending TN 09-1: Innheimtulög gilda einnig um lögmenn
Talsmaður neytenda hefur beint því til Lögmannafélags Íslands að árétta fyrir starfandi lögmönnum að innheimtulög og þar takmörkun innheimtukostnaðar eigi einnig við um lögmenn þar til mál kemur til kasta dómstóla eða sýslumanns.
Nánar23. feb. 2007
Ábending TN 07-1: Neytendur verði upplýstir um hugsanleg brot gegn hagsmunum sínum og réttindum
Í ábendingu til Eftirlitsnefndar Félags fasteignasala mælist talsmaður neytenda til þess að þeir neytendur verði upplýstir sem vitað er um að hafi orðið fyrir því að fasteignasali hafði milligöngu um sölu á fasteign þeirra án þess að gæta lagaákvæða um að vera sjálfstæður og óháður.
Nánar