21. nóv. 2011

Þingsályktun um norræna hollustumerkið, Skráargatið (22. mál); sameiginleg umsögn með umboðsmanni barna

Í umsögn sinni benda embættin á að aðeins þurfi skamman aðdraganda að innleiðingu hollustumerkis enda um þrjú ár síðan þau lögðu fyrst til við ráðherra að Skráargatið yrði tekið upp.
Nánar

21. nóv. 2011

Þingsályktun um hitaeiningamerkingar á skyndibita (24. mál); sameiginleg umsögn með umboðsmanni barna

Embætti talsmanns neytenda og umboðsmanns barna lýsa sig hlynnt því að neytendum sé auðveldað að átta sig á hitaeiningainnihaldi matarskammta en benda á að erfitt sé að greina skyndibitastaði frá öðrum matsölustöðum; því mætti skyldan e.t.v. vera almennari.
Nánar

23. mar. 2009

Þingsályktunartillaga um skyldu lánastofnana til að leita tilboða í innleyst fyrirtæki og/eða rekstrareiningar (194. mál)

Í umsögn um þingsályktunartillögu varðandi skyldu til að leita tilboða í fyrirtæki og rekstur sem ríkið hefur yfirtekið gerir talsmaður aðeins athugasemd við þá aðferð að gefin yrðu út tilmæli í stað bindandi reglna eða ákvarðana.
Nánar

12. jan. 2008

Þál.till. um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru sem beint er að börnum (47. mál)

Í fyrsta skipti gefur talsmaður neytenda sameiginlega umsögn um þingmál og er það með umboðsmanni barna um brýnt þingmál sem embættin tvö hafa undanfarin túm tvö ár unnið að því að leysa með svipuðum hætti og lagt er til í þingsályktunartillögunni.
Nánar

23. nóv. 2007

Tillaga til þingsályktunar um samkeppnisstöðu fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga (16. mál)

Talsmaður neytenda telur þingsályktunartillöguna geta orðið til hagsbóta fyrir neytendur en ákvarðanir eigi ekki að framselja til einkaaðila heldur meta hverju sinni hvort framkvæmd geti verið hjá einkaaðilum - ekki síst sjálfseignarstofnunum. Minnt er á að fé þurfi að fylgja nýjum verkefnum.
Nánar

28. feb. 2007

Tillögur til þingsályktana um samgönguáætlanir (574. og 575. mál)

Talsmaður neytenda telur það meðal hagsmuna neytenda að fjölgað verði raunhæfum samgöngukostum - með almenningssamgöngum - einkum á höfuðborgarsvæðinu.
Nánar

22. jan. 2007

Mjög brýnt að setja lög um greiðsluaðlögun einstaklinga

Í tilefni af fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns til viðskiptaráðherra um greiðsluaðlögun óskaði ráðherra eftir sjónarmiðum talsmanns neytenda og upplýsingum. Talsmaður neytenda telur mjög brýnt að setja lög að norrænni fyrirmynd um greiðsluaðlögun enda séu fyrirliggjandi úrræði - nauðasamningar og gjaldþrot - ekki fullnægjandi eins og rökstutt er í umsögninni.
Nánar

22. nóv. 2006

Tillaga um þingsályktun um úttekt á hækkun rafmagnsverðs

Talsmaður neytenda tók undir þingsályktunartillögu um úttekt á hækkun rafmagnsverðs og benti á að æskilegt væri að kanna hvort hömlur séu á því í raun að samkeppni virki fyrir neytendur á þessu sviði.
Nánar

04. apr. 2006

Tillaga til þingsályktunar um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru (162. mál)

Talsmaður neytenda fagnar umræðu um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru en telur rétt að láta reyna á samkomulagsleiðina við atvinnulífið.
Nánar

10. mar. 2006

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006-2009 (391. mál)

Talsmaður neytenda tók undir áherslur um bættar samgöngur og áréttaði ábendingu vegna minni sjóflutninga auk þess sem m.a. var bent á að ekkert væri fjallað sérstaklega um hagsmuni neytenda.
Nánar



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli