Kynning á réttarreglum um neytendamál
Leiðakerfi neytenda
Talsmaður neytenda hefur það hlutverk að kynna löggjöf og aðrar réttarreglur er varða neytendamál, sbr. e-lið 2. mgr. 6. gr. laganna. Sú kynning getur bæði verið almenn og sértæk.
Almenna kynningin getur t.a.m. átt sér stað á opinberum vettvangi eða gagnvart tilteknum hópum; talsmaður neytenda hefur m.a. efnt til samstarfs um þetta við fjölmiðla, menntastofnanir, stjórnvöld og frjáls félagasamtök. Þá er með stuðningi norrænu ráðherranefndarinnar og atbeina talsmanns neytenda kominn á netið neytendaleikur fyrir unglinga, sem nefnist Galactor, þar sem þeir geta á spennandi hátt tileinkað sér réttindi neytenda.
Sértæk kynning getur falist í þeirri skyldu talsmanns neytenda að leiðbeina þeim, sem til hans leita með ágreiningsmál milli neytenda og seljenda, um hvaða leiðir eru færar – m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum – til þess að fá slíkan ágreining tekinn til meðferðar.
Meginkynning talsmanns neytenda á réttarreglum felst hins vegar í því að leiða þá á réttan stað og leiðbeina þeim um færar leiðir með Leiðakerfi neytenda þar sem neytendur geta - óháð stað og stund - leitað réttar síns með gagnvirkum hætti.