Umsagnir um lagafrumvörp
31. mars 2011
Þingsályktunartillaga um norræna hollustumerkið, Skráargatið (508 mál; sameiginleg umsögn með umboðsmanni barna)
Bent á kosti við að samþykkja að taka upp hollustumerki að skandinavískri fyrirmynd þannig að neytendavernd - ekki síst barna - aukist.
Nánar18. janúar 2011
Frv. til laga um fjölmiðla (198. mál)
Í sameiginlegri umsögn um fjölmiðlafrumvarp mennta- og menningarmálaráðherra taka talsmaður neytenda og umboðsmaður barna undir ýmsar úrbótatillögur þar í þágu neytendaverndar barna og benda á að þær teljist ekki brot gegn tjáningarfrelsi auglýsenda.
Nánar08. nóvember 2010
Frv. til laga um breyting á lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti (108. mál)
Stytting og samræming fyrningarfrests í kjölfar gjaldþrots er til mikilla hagsbóta fyrir neytendur og aðra eins og rakið er í umsögn talsmanns neytenda. Rökstutt er að kröfur í framtíðaraflahæfi njóti ekki stjórnarskrárverndar. Lagt er til að skilyrði fyrir slitum fyrningar séu tilgreind í lögum.
Nánar14. ágúst 2010
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum (viðurlög, heimavinnsla og aðilaskipti að greiðslumarki í mjólkurframleiðslu, 662. mál)
Í umsögn um frumvarpið kemst talsmaður neytenda að þeirri ítarlega rökstuddu niðurstöðu að það brjóti gegn hagsmunum og stjórnarskrárvörðum réttindum neytenda.
Nánar22. október 2009
Frumvarp til laga um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishruns (69. mál)
Talsmaður neytenda fagnar frumvarpi um léttari greiðslubyrði en telur það ónóga lausn á skuldavanda neytenda og gagnrýnir samráðsskort og flýti við meðferð málsins.
NánarUmsagnir um drög að reglum
15. nóvember 2010
Ekki nóg að tilkynna „breytingar“ á verði við verðhækkun
Umsögn til PFS um form og inntak tilkynninga Símans til neytenda þar sem komist er að þeirri rökstuddu niðurstöðu að ekki sé í samræmi við reglur neytendamarkaðsréttar að tilkynna „breytingar“ á verði og vísa í gjaldskrá eða heimasíðu um nánari upplýsingar þegar um verðhækkun er að ræða.
Nánar10. desember 2009
Drög PFS að tilmælum um birtingu og lágmarksinnihald viðskiptaskilmála fjarskiptaþjónustu og skyldu fjarskiptafyrirtækja til að tilkynna notendum um breytingar á þeim
Tekið efnislega undir tilefni og inntak væntanlegra tilmæla PFS um skilmála gagnvart neytendum og öðrum notendum og bent á nokkur minni háttar úrbótaatriði.
Nánar08. desember 2008
Drög að reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar
Lýst er yfir ánægju með að viðskiptaráðherra hyggist setja reglugerð samkvæmt nýjum innheimtulögum sem staðfestir þá lagatúlkun talsmanns neytenda að hlutfallskostnaður í innheimtu sé óheimill frá og með 1. janúar nk. og áréttar að óheimilt sé að leggja á vanskilagjöld sem fari í bága við sett lög.
Nánar05. september 2008
Drög PFS að reglum um númera- og þjónustuflutning
Í umbeðnu áliti til Póst- og fjarskiptastofnunar telur talsmaður neytenda m.a. að vanskil neytenda geti ekki verið löglegur grundvöllur fyrir að synja neytanda um númeraflutning enda sé sá réttur neytenda skýr í lögum og hagsmunir fjarskiptafyrirtækja tryggðir með öðrum hætti.
Nánar26. ágúst 2008
Drög að frumvarpi til laga um greiðsluaðlögun
Talsmaður neytenda fagnar áformum viðskiptaráðuneytis varðandi lög um greiðsluaðlögun en telur drög að frumvarpi um málið ekki gera ráð fyrir nægilega einföldu, skýru og skilvirku kerfi. Lagðar eru til úrbætur svo greiðsluaðlögun verði virkari og betri fyrir skuldara en gildandi fullnustuúrræði.
NánarUmsagnir um drög að Evrópureglum
21. apríl 2006
Grænbók ESB um hópmálssókn neytenda vegna samkeppnisbrota
Talsmaður neytenda hefur ásamt norrænnum umboðsmönnum neytenda sent jákvæða umsögn um grænbók ESB þar sem til umræðu er að heimila hópmálsókn neytenda og annarra vegna samkeppnisbrota á vettvangi Evrópusambandsins og þar með Evrópska efnahagssvæðisins
Nánar23. mars 2006
Grænbók ESB um heilsusamlega næringu o.fl.
Í umsögn um grænbók ESB um að efla heilsusamlegar næringarvenjur og líkamshreyfingu gerir talsmaður neytenda m.a. tillögur um myndræna merkingu um hollustu vöru og staðsetningu óhollra matvara fyrir börn auk takmarkana á markaðssetningu sem beinist að börnum Grænbókina má finna á ESB-tungumálu...
NánarUmsagnir um skýrslur og skýrsludrög
12. maí 2006
Drög að skýrslu starfshóps samgönguráðherra um öryggi fjarskipta
Í umsögn sinni um skýrsludrög um öryggi fjarskipta er tekið undir þörf á fræðslu svo og nauðsyn aðgerða varðandi svonefndan ruslpóst. Einnig er lagt til að sérstaklega verði tekið á heimabankaþjónustu þannig að ábyrgð á kerfisöryggi hvíli á þjónustuveitendum (bönkum og sparisjóðum) en ekki neytendu...
NánarUmsagnir um þingsályktunartillögur önnur þingmál
21. nóvember 2011
Þingsályktun um norræna hollustumerkið, Skráargatið (22. mál); sameiginleg umsögn með umboðsmanni barna
Í umsögn sinni benda embættin á að aðeins þurfi skamman aðdraganda að innleiðingu hollustumerkis enda um þrjú ár síðan þau lögðu fyrst til við ráðherra að Skráargatið yrði tekið upp.
Nánar21. nóvember 2011
Þingsályktun um hitaeiningamerkingar á skyndibita (24. mál); sameiginleg umsögn með umboðsmanni barna
Embætti talsmanns neytenda og umboðsmanns barna lýsa sig hlynnt því að neytendum sé auðveldað að átta sig á hitaeiningainnihaldi matarskammta en benda á að erfitt sé að greina skyndibitastaði frá öðrum matsölustöðum; því mætti skyldan e.t.v. vera almennari.
Nánar23. mars 2009
Þingsályktunartillaga um skyldu lánastofnana til að leita tilboða í innleyst fyrirtæki og/eða rekstrareiningar (194. mál)
Í umsögn um þingsályktunartillögu varðandi skyldu til að leita tilboða í fyrirtæki og rekstur sem ríkið hefur yfirtekið gerir talsmaður aðeins athugasemd við þá aðferð að gefin yrðu út tilmæli í stað bindandi reglna eða ákvarðana.
Nánar12. janúar 2008
Þál.till. um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru sem beint er að börnum (47. mál)
Í fyrsta skipti gefur talsmaður neytenda sameiginlega umsögn um þingmál og er það með umboðsmanni barna um brýnt þingmál sem embættin tvö hafa undanfarin túm tvö ár unnið að því að leysa með svipuðum hætti og lagt er til í þingsályktunartillögunni.
Nánar23. nóvember 2007
Tillaga til þingsályktunar um samkeppnisstöðu fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga (16. mál)
Talsmaður neytenda telur þingsályktunartillöguna geta orðið til hagsbóta fyrir neytendur en ákvarðanir eigi ekki að framselja til einkaaðila heldur meta hverju sinni hvort framkvæmd geti verið hjá einkaaðilum - ekki síst sjálfseignarstofnunum. Minnt er á að fé þurfi að fylgja nýjum verkefnum.
Nánar