22. feb. 2011
Tilmæli TN 11-1 um frestun riftunar bílasamninga gagnvart neytendum í skuldaskjóli
Talsmaður neytenda hefur mælst til þess að fjármálafyrirtæki fresti riftun bílasamninga neytenda í skuldaskjóli hjá umboðsmanni skuldara vegna greiðsluaðlögunar. Ástæða tilmælanna er framfærslusjónarmið og rök um að greiða megi lægri greiðslur af bílasamningum án þess að mismuna kröfuhöfum.
Nánar2. júl. 2010
Tilmæli TN 10-1 til SFF f.h. aðildarfyrirtækja: Lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum sem vafi leikur á hvort falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar
Talsmaður neytenda hefur í dag sent tilmæli til fjármálafyrirtækja í gegnum hagsmunasamtök þeirra sem eiga að milda bráðabirgðaáhrif umdeildra tilmæla frá FME og SÍ á afborganir neytenda þar til dómstólar skera úr ágreiningi um hvað felist í fordæmi Hæstaréttar.
Nánar25. ágú. 2009
Tilmæli TN 09-1: Ósk um viðræður við kröfuhafa neytendalána um gerðarsamning í því skyni að leysa með skjótum hætti úr réttarágreiningi um forsendubrest og öðrum lagalegum álitamálum um gengis- og verðtryggð neytendalán
Fjórum mánuðum eftir tillögu um eignarnáms- og gerðardómsleið til niðurfærslu íbúðarveðlána gerir talsmaður neytenda aðra tilraun til þess að koma á gerðardómi um málið - nú með samningum samkvæmt gildandi lögum - og einnig um bílalán o.fl.
Nánar30. des. 2008
Tilmæli TN 08-3: Raunhæf æruvernd sé tryggð á bloggsíðum
Þess hefur verið farið á leit við mbl.is að tryggt sé að rétthafi bloggs sé rétt skráður og að unnt sé að fá upp gefið nafn þess sem bloggar undir nafnleynd ef sýnt er fram á lögvarða hagsmuni af því. Með þessu vill talsmaður neytenda tryggja raunhæfa æruvernd og auka neytendavernd.
Nánar19. sep. 2008
Tilmæli TN 08-2: Ekki ber að líta á þögn foreldra sem samþykki við kaupum skólamynda
Talsmaður neytenda hefur beint því til til Pix-mynda sem seljanda skólaljósmynda til neytenda að láta þegar af neikvæðri samningsgerð sem felst í því að fyrirtækið hefur litið á þögn forráðamanna skólabarna sem samþykki og krafið þá um greiðslur fyrir skólamyndir sem aldrei hefur verið óskað eftir.
Nánar31. mar. 2008
Almenn tilmæli TN 08-1: Tilkynnt sé um hækkanir símagjalda
Talsmaður neytenda hefur sent helstu símafyrirtækjum tilmæli um að tilkynna framvegis öllum neytendum um fyrirhugaðar hækkanir verðskrár og íþyngjandi breytingar á skilmálum - með a.m.k. mánaðar fyrirvara.
Nánar6. nóv. 2007
Tilmæli TN 07-4: Neytendur fái í hendur strimil um leið og kassakvittun
SVÞ hafa samþykkt tilmæli talsmanns neytenda um að hvetja smásöluverslanir til að afhenda kassastrimil um leið og greiðslukvittun er afhent. Tilmælin eru send í því skyni að auðvelda neytendum að fylgjast með að samræmi sé milli kassaverðs og hilluverðs.
Nánar21. jún. 2007
Almenn tilmæli TN 07-3: Forfallagjöld í netsölu flugferða
Eftir samtöl við fulltrúa félaganna og undirbúning frá maílokum var mælst til þess við flugfélög sem eiga í hlut að þau hættu að fylla út fyrirfram valreit fyrir forfallagjöld og aðra viðbótarþjónustu sem neytandi á sjálfur að meta sjálfstætt hvort hann hefur þörf fyrir.
Nánar16. mar. 2007
Tilmæli TN 07-2: Þjónustugjald í þjónustuíbúðum aldraðra á vegum Félagsbústaða hf.
Talsmaður neytenda hefur gefið út tilmæli til Reykjavíkurborgar um að endurskoða grundvöll þjónustugjalds, kynna það betur fyrir umsækjendum um íbúðir fyrir aldraða og afla framvegis samþykkis þeirra fyrir gjaldinu.
Nánar15. feb. 2007
Tilmæli TN 07-1 varðandi greiðslur flugfarþega vegna „gjalda“
Að höfðu samráði við félögin frá lokum nóvember sl. hefur talsmaður neytenda sent Iceland Express og Icelandair tilmæli um að láta frá og með 1. mars nk. af því að nefna hluta verðs "gjöld" nema að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Nánar6. okt. 2006
Tilmæli TN 06-5: Misræmi í ábyrgðartíma verka
Staðlaráð Íslands hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að samræma misræmi sem er í íslenskum staðli um verkframkvæmdir annars vegar og í lögum um þjónustukaup hins vegar en þau tryggja neytendum 2ja ára kvörtunarfrest vegna gallaðra framkvæmda. Þess vegna var eins árs frestur í sta...
Nánar16. ágú. 2006
Tilmæli TN 06-4: Birting greiðslukortaupplýsinga á kvittunum
Fjölgreiðslumiðlun hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að gera fyrirtækjum með posa og annan kortabúnað skylt að hætta að prenta á kvittanir gildistíma korts og fullt greiðslukortanúmer. Komu tilmælin almennt til framkvæmda um miðjan nóvember 2006 eins og mælst var til. Í samráði...
Nánar30. jún. 2006
Tilmæli (tillaga) TN 06-3 til samgönguráðherra um mótvægisaðgerðir vegna frelsis í verðlagningu leigubifreiðaþjónustu
Í raun eru þessi tilmæli vegna efnis og viðtakanda tillaga um breytingar á stjórnvaldsreglum. Samgönguráðuneyti hefur til skoðunar tilmæli talsmanns neytenda um minniháttar breytingu á reglugerð í því skyni að skapa mótvægi í kjölfar ákvarðana samkeppnisyfirvalda um frelsi í verðlagningu leigubifre...
Nánar6. jún. 2006
Tilmæli TN 06-2: Birting Jóker-númers á getraunaseðli án vals á Jóker
Íslensk getspá hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að láta af því að birta Jóker-númer á getrauanseðli þegar neytandi hefur ákveðið að að kaupa ekki Jóker enda er slík birting á seðlinum til þess fallin að hvetja neytendur til þess að kaupa meira en til stóð. Orðið verður við tilm...
Nánar3. mar. 2006
Tilmæli TN 06-01: Fastar vikulegar tímasetningar á ákvörðun eldsneytisverðs
Esso hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að viðhafa ekki fasta vikulega fundi um ákvörðun eldsneytisverðs til handa neytendum en Esso hefur verið verðleiðandi á markaðnum og var þessi tilhögun á fundum talin til þess fallin að skapa óheppilegt mynstur í verðlagningu milli samkeppn...
Nánar