Fyrirvari um ábyrgð á efni vefs talsmanns neytenda

 

Embætti talsmanns neytenda ber samkvæmt almennum reglum ábyrgð á efni vefs þessa - sem ætlað er að kynna starfsemi embættisins er lýtur lögum samkvæmt kynningu á réttarreglum er varða neytendamál, áhrifum til úrbóta og varðstöðu um hagsmuni og réttindi neytenda. Talsmanni neytenda er því ekki aðeins ætlað að standa vörð um gildandi reglur heldur einnig að standa vörð um hagsmuni þeirra - m.a. af úrbótum á sviði neytendamála - og beinlínis að stuðla að aukinni neytendavernd. Embættið byggir efnið á réttarheimildum og lögfræðilegu og neytendapólitísku mati á lagalegum og staðreyndarlegum álitaefnum og á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar og að jafnaði er vísað til. Skoðanir eru miðaðar við þann tíma sem þær eru settar fram og geta breyst miðað við breyttar aðstæður eða nýjar upplýsingar.

 

Engu að síður eru notendur hvattir til þess að kynna sér lagaleg álitaefni frekar áður en ráðstafanir eru byggðar á efni vefjarins og gera eftir atvikum athugasemdir eða senda fyrirspurnir ef um mikla hagsmuni og vafa er að ræða.  Beinn sími talsmanns neytenda er 510 11 21 og netfang er tn@tn.is. Þá er minnt á að samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 62/2005 um Neytendastofu og talsmann neytenda tekur talsmaður neytenda

„ekki til meðferðar ágreining milli neytenda og seljenda, en honum ber að leiðbeina þeim sem til hans leita með slík mál um hvaða leiðir eru færar, m.a. innan stjórnsýslunnar og hjá dómstólum.“

 

Embætti talsmanns neytenda ber ekki ábyrgð á efni vefja sem vísað er til með tenglum á vef þessum.

 

Heimilt er að vitna til vefs talsmanns neytenda - www.tn.is - en óskað er eftir því að heimildar sé getið.



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli