30.11.2008
Hvernig er það með þessi erfðabreyttu matvæli?
Í talhorninu að þessu sinni fjallar Helga Margrét Pálsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun, um hvað teljist til erfðabreyttra matvæla, kosti þeirra og galla og gildandi reglur.
Nánar19.10.2008
Hver eða hvernig?
Talsmaður neytenda rökstyður með forsögu og dæmum hvers vegna það er aukaatriði hver eigi og reki starfsemi en aðalatriði fyrir neytendur á hvaða kjörum og með hvaða skilmálum það er gert; það er mikilvægara verkefni fyrir stjórnmálaöflin að setja réttlát neytendalög en að takast á um eignarhald.
Nánar3.10.2008
Hver er staða lífeyrissjóðanna á óvissutímum?
Framkvæmdarstjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, Hrafn Magnússon, tók saman þennan pistil að beiðni talsmanns neytenda í því skyni að kynna stöðu lífeyrissparnaðar landsmanna á þessum óvissutímum.
Nánar21.9.2008
Heilsufæði
Heilsufæði eru alls kyns matvæli sem eru ætluð til að bæta heilsu. Það sem kemur fyrst upp í huga flestra þegar þeir heyra orðið “heilsufæði” eru sérhönnuð matvæli til að bæta heilsu og hugtök á borð við lífræn ræktun, engin aukaefni, mjólkurlausar vörur, sykurskertar vörur, glúten- og ...
Nánar15.6.2008
Ekki má blekkja neytendur varðandi uppruna matvæla
Úrbætur í vændum að því er varðar upprunamerkingar matvæla - þannig að ef getið er um að matvæli séu innlend (t.d. „íslensk framleiðsla“) þá ber að geta þess ef hráefnið er upp runnið annars staðar.
Nánar28.5.2008
„Leiðinlegt að stara á allt nammið“
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu í gær í tilefni af hringborðsumræðum umboðsmanns barna og talsmanns neytenda með hagsmunaaðilum um aukna neytendavernd barn
Nánar26.5.2008
Neytendur þurfa fyrirvara
Neytendur eiga réttindi ef flugfélög breyta áætlunum eins og kemur fram í þessu stutta „Áliti“ sem talsmaður neytenda setti saman að beiðni 24ra studna.
Nánar4.5.2008
Að mati Hæstaréttar má mismuna neytendum eftir meðferðarúrræðum
Hæstiréttur hefur dæmt í máli sem Sálfræðingafélag Íslands höfðaði gegn ríkinu vegna þess að sálfræðingum væri mismunað gagnvart geðlæknum. Sálfræðingar töpuðu - og neytendur einnig; sumir vilja geta valið - ekki aðeins um meðferðaraðila, heldur einnig um meðferðartegund.
Nánar20.4.2008
Kostaboð eða klandur - (ó)öryggi neytenda við opnun lyfjamarkaðar
Í fyrsta gestapistli utanaðkomandi sérfræðings um neytendamál fjallar dr. Ingunn Björnsdóttir lyfjafræðingur um hættuna af því að opna lyfjamarkað um of þannig að fölsuð lyf eða hættuleg geti átt greiðari aðgang að neytendum.
Nánar13.4.2008
Valfrelsi neytenda um fjölpóst og fríblöð - leiðir og röksemdir
Talsmaður neytenda fer yfir rök með og á móti því að neytendur geti valið að afþakka fjölpóst eða fríblöð eða hvort tveggja - fremur en "allt eða ekkert." Einnig er rakið hvaða leiðir eru færar - og ófærar - að markinu.
Nánar2.3.2008
Talsmaður neytenda hyggst vara neytendur við
Hvad gerir talsmaður neytenda ef fyrirtæki hunsa tilmæli hans? Enn hefur ekki reynt á það en hér er farið yfir sex mögulegar afleiðingar af hálfu embættisins - t.d. viðvaranir og ráðleggingar til neytenda.
Nánar24.2.2008
Ættu neytendur ekki að eiga hauk í horni í hverju fyrirtæki - fulltrúa neytenda innanhúss?
Talsmaður neytenda áréttar þá hugmynd að öll fyrirtæki, sem taka réttindi neytenda - og skyldur sínar - alvarlega, komi sér upp sérstökum - vel kynntum - fulltrúa neytenda innanhúss. Þannig mætti stuðla að því að lögbundin réttindi neytenda séu virt - í raun.
Nánar13.1.2008
Samráð úr sögunni?
Talsmaður neytenda telur að stór samráðsmál séu að mestu úr sögunni eftir breytingar sem eru að verða á lögum, stofnunum og markaði. Reifað er hvers vegna nokkuð skýr skaðabótaréttur neytenda er þó ekki raunhæfur og síðan rakið hvers vegna síður þurfi að búast við fleiri stórum samráðsmálum.
Nánar7.1.2008
(vin)„Sælla er að gefa en þiggja"
Rætt er um ástæður gjafa frá fyrirtækjum og viðtakendur flokkaðir eftir sambandi þeirra - eða sambandsleysi - við gefendur. Talið er að hóflegar gjafir séu að jafnaði ekki óeðlilegar í viðskiptasamböndum en öðru máli gegni um gjafir til stjórnmála- og embættismanna, því æ sér gjöf til gjalda.
Nánar