19.11.2007

Þögn er ekki sama og samþykki - neikvæð samningsgerð er óheimil

Talsmaður neytenda rekur að gefnu tilefni lagareglur sem varða svonefnda neikvæða samningsgerð og lýsir eftir dæmum, ef það tíðkast að fyrirtæki leggi þögn að jöfnu við samþykki.

Nánar

30.9.2007

Eiga neytendur rétt á að versla á íslensku?

Talsmaður neytenda veltir fyrir sér svarinu við spurningu um hvort íslenskir neytendur eigi rétt á að starfsfólk verlsana skilji og tali íslensku. Einhlítt svar finnst ekki í lögum - en kannski í lögmálum!

Nánar

26.8.2007

Too Many Numbers!

Í öðrum gestapistli sínum fjallar Ian Watson, sem situr í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, um óraunhæfan fjölda þeirra leyninúmera sem nútímaneytanda er sagt að hann þurfi að muna. Ian bendir á ógöngurnar sem þetta hefur leitt til fyrir neytendur enda sé minni þeirra takmörkuð auðlind.

Nánar

11.8.2007

Hinsegin neytendur

Jafnræði er stjórnarskrárvarið og nær það í sumum tilvikum til neytendaviðskipta. T.a.m. er refsivert að mismuna neytendum vegna kynhneigðar eins og danskt dæmi sýnir.

Nánar

9.8.2007

Ertu ferðatryggður?

Vakin er athygli á því hvað felist - og hvað ekki - í kreditkortatryggingum og sérstökum ferða- og forfallatryggingum til samanburðar við það sem fæst fyrir forfallagjald flugfélaganna.

Nánar

22.7.2007

Ný stefnumörkun ESB í málefnum neytenda

Í fyrsta gestapistli sínum fjallar Liselotte Widing, sérfræðingur í neytendarétti og verkefnisstjóri Leiðakerfis neytenda, um nýja stefnumörkun ESB í neytendamálum sem mun hafa - góð - áhrif á íslenska neytendur ef rétt er á málum haldið.

Nánar

20.5.2007

Áskoranir væntanlegrar ríkisstjórnar í neytendamálum

Hópmálsókn, lög um íbúðarlán og innheimtukostnað og bættir möguleikar neytenda á verðsamanburði eru að mati talsmanns neytenda þrjár helstu áskoranir nýrrar ríkisstjórnar í neytendamálum.

Nánar

6.5.2007

To reduce retail prices, make Internet shopping easier

Í fyrsta gestapistli sínum - og þeim fyrsta á ensku - fjallar Ian Watson, fulltrúi í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, um hátt verð á Íslandi sökum lítillar neytendavitundar og fákeppni. Leiðin að lægra verði til neytenda sé sá valkostur að flytja sjálfir inn vörur. Ian leggur til lausnir.

Nánar

29.4.2007

Mikilvægi neytendaverndar. Sérstakar aðstæður.

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, fjallar í talhorninu um mikilvægi neytendaverndar - bæði almennt og við sérstakar aðstæður þar sem Pétur rökstyður að skortur á beinu sambandi neytanda og seljanda geti valdið hagsmunaárekstri og óhagk...

Nánar

22.4.2007

Neytendur snúi vörn í sókn!

Í gestapistli rifjar Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, upp sókn neytenda í Bandaríkjunum á árum áður og hvetur til þess að auglýsingar snúist um kjarna málsins: verð og gæði – fremur en ímynd og óviðkomandi atriði

Nánar

15.4.2007

Byggðamál eru líka neytendamál

Sem þriðji stjórnmálamaðurinn með gestapistlil í talhorninu skrifar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra um sérstaka hagsmuni neytenda á landsbyggðinni og leggur til leiðir til að jafna stöðu þeirra. Þá fjallar hún um aukna fríverslun með landbúnaðarafurðir.

Nánar

13.4.2007

„Tilboð“ - lögleg en siðlaus?

Í talhorninu fjallar talsmaður neytenda um lögleg tilboð en „siðlaus“ í þeim skilningi að þau eru slæm fyrir hagsmuni neytenda – eins og rökstutt er í pistlinum.

Nánar

1.4.2007

Hagsmunir neytenda og landbúnaðar liggja saman

Sem gestapenni í talhorninu fjallar landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, Guðni Ágústsson, um að hagsmunir neytenda af öryggi matvæla og góðum landbúnaðarafurðum fari saman við hagsmuni landbúnaðarins.

Nánar

25.3.2007

Greiðslur fyrir þjónustu verktaka

Í talhorninu áréttar talsmaður neytenda skýrar reglur um greiðslur fyrir þjónustu iðnaðarmanna - svo sem að virðisaukaskattur er innifalinn í tilboði og að samningar skulu standa.

Nánar

19.3.2007

Kynjamisrétti neytenda - klippt og skorið!

Í talhorninu spyr talsmaður neytenda út í hugsanlega kynjamismunun neytenda.

Nánar

11.3.2007

Er ósýnilega höndin fingurbrotin?

Sem gestapenni í talhorninu spyr Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, - og svarar - hvað stjórnvöld geti gert til að styrkja stöðu neytenda.

Nánar

4.3.2007

Skattalækkanir á matvælum eru ætlaðar neytendum

Sem fyrsti gestapenninn í talhorninu fjallar Jóhannes Gunnarsson um aðhald í því skyni að stuðla að því að lækkun opinberra gjalda á matvöru skili sér til neytenda.

Nánar

25.2.2007

Hver á þennan disk? Og hvað með lögin?

Í talhorninu veltir talsmaður neytenda fyrir sér samspili höfundaréttar og afnotaréttar neytenda og bendir á að neytendur eigi hagsmuni af - og e.t.v. rétt á - því að fá nýjan disk ef sá gamli skemmist.

Nánar

18.2.2007

Ber einhver ábyrgð á áfengisauglýsingum?

Í talhorninu vekur talsmaður neytenda athygli á að ábyrgð á áfengisauglýsingum er ekki eins óljós og halda mætti. Auglýsandi - og jafnvel fjölmiðill - er ábyrgur. Ritstjóri, ber refsiábyrgð á ómerktum auglýsingum.

Nánar

11.2.2007

Verðmerkingar - of eða van!

Í talhorninu fjallar talsmaður neytenda um þrjú mikilvæg atriði verðmerkinga - þ.e. of litlar, of miklar og of tíðar verðmerkingar.

Nánar

4.2.2007

Óréttmætar - óumbeðnar - kröfur á neytendur

Í fimmta talhorni talsmanns neytenda er fjallað um hvort fyrirtæki eða aðrir geti án samnings sett fram kröfur - t.d. í heimabanka - á hendur neytendum eða hvaða afleiðingar það hafi ef það er gert.

Nánar

28.1.2007

Hver er ástæða fyrir háu verðlagi á Íslandi?

Í fjórða talhorninu spyr talsmaður neytenda hver sé ástæða fyrir háu verðlagi á Íslandi og svarið er - m.a. - þú!

Nánar

21.1.2007

Bæta siðræn matarkaup heiminn?

Í þriðja talhorninu fjallar talsmaður neytenda um hagsmuni neytenda af því að vita við hvaða skilyrði vara eða þjónusta er framleidd og umdeildar tilraunir til þess að bæta heiminn með neyslu - greiða atkvæði með veskinu.

Nánar

14.1.2007

Samkeppnisbrot olíufélaganna gegn neytendum

Í öðru talhorni sínu víkur talsmaður neytenda að ákæru ríkissaksóknara frá 12. desember sl. á hendur þáverandi forstjórum 3ja stóru olíufélaganna fyrir brot gegn neytendum og leitar skýringa við því hvort virðingarleysi við lög eða ónógu stjórnsýsluaðhaldi sé að kenna.

Nánar

7.1.2007

Fjármál stjórnmálaflokkanna og hagsmunir neytenda

Í fyrsta talhorninu veltir talsmaður neytenda því fyrir sér hvort hagur neytenda vænkist og möguleikar á sjálfstæðum, íslenskum réttarbótum aukist nú þegar lög um fjármál stjórnmálaflokka hafa öðlast gildi.

Nánar



Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli