7. júl. 2010
Skjótum og góðum viðbrögðum fagnað
Talsmaður neytenda lýsir ánægju með viðbrögð Samtaka fjármálafyrirtækja og hlutaðeigandi banka - sem hafa samþykkt tilmæli embættisins frá sl. föstudegi, 2. júlí, til bráðabirgða meðan ágreiningur ríkir um fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar.
Samtök fjármálafyrirtækja og hlutaðeigandi bankar hafa fallist á tilmæli talsmanns neytenda TN 10-1 frá sl. föstudegi, 2. júlí, til Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) fyrir hönd aðildarfyrirtækja þess efnis að lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum ef banki telur vafa leika á hvort lán falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar.
Lægri föst krónutala í stað hærri vaxta en dæmt var um
Í tilmælum talsmanns neytenda er þess farið á leit að samtökin:
„hvetji aðildarfyrirtækin til þess að innheimta aðeins tiltekna krónutölu miðað við hverja milljón króna af upphaflegum höfuðstól lána ef vafi er talinn leika á hvort lánaskilmálar falli undir fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar frá 16. júní sl. í málum þar sem gengistrygging var dæmd ólögmæt samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu.“
Hafa SFF fallist á tilmælin en síðdegis í dag gáfu samtökin út fréttatilkynningu þar sem kemur fram að SFF beini tilmælum til aðildarfélaga sinna um innheimtu fastrar krónutölu af íbúðalánum í erlendri mynt.
Í fréttatilkynningu SFF segir m.a.:
- „Greiðslur íbúðalána í erlendri mynt lækkaðar og festar tímabundið
- Frá 1. ágúst greiða lántakendur sem þess óska 5.000 kr. af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls
- Betri réttur lántakenda tryggður“
Fallist á tilmæli talsmanns neytenda
Þá segir í fréttatilkynningu SFF:
„Hæstiréttur felldi tvo dóma 16. júní sl. um bílasamninga til einstaklinga sem kváðu á um að gengistrygging slíkra samninga væri ólögmæt. Óvissa ríkir um hvort íbúðalán einstaklinga í erlendri mynt falli undir dóminn og verður henni ekki eytt nema fyrir dómstólum.
Á meðan beðið er dóms telja Samtök fjármálafyrirtækja nauðsynlegt að grípa til aðgerða til bráðabirgða i ljósi þeirra ábendinga sem settar hafa verið fram á opinberum vettvangi, m.a. af Talsmanni neytenda.“
Um útfærsluna segir í frétt SFF:
„SFF hafa í ljósi þess ákveðið að beina því til aðildarfélaga sinna að einstaklingum bjóðist að greiða fasta greiðslu af íbúðalánum sínum í erlendri mynt sem miðast við upphaflegan höfuðstól lánsins. Lagt er til, að þar til dómstólar hafa eytt þeirri óvissu sem ríkir um fyrrgreind lán, verði greiddar mánaðarlega 5.000 krónur af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls. Mánaðarleg afborgun af láni með upphaflegan höfuðstól að fjárhæð kr. 13.000.000 yrði því 65.000 krónur.
SFF ítreka að framangreint úrræði skerði ekki betri rétt lántaka sem dómar Hæstaréttar kunna að hafa í för með sér.“
Fram kemur í niðurlagi fréttatilkynningar SFF að samtökin setji þessi tilmæli fram með samþykki Samkeppniseftirlitsins (Se) en á vef SFF má einnig lesa bréf Se til SFF, dags. 7. júlí 2010, þar sem fallist er á tímabundna undanþágu frá banni við samráði í samræmi við tilmælin.
Hagstæðara neytendum en tilmæli FME og SÍ
Óumdeilt er að þetta fyrirkomulag væri hagstæðara neytendum en umdeild sameiginleg tilmæli Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands FME og SÍ frá 30. júní sl. - sem talsmaður neytenda hefur þegar andmælt og leitast við að vinda ofan af.
Gildi þar til fordæmi sker úr ágreiningi
Í tilmælum talsmanns neytenda var þess farið á leit að slíkt hagkvæmara fyrirkomulag
„gildi þar til endanlegt fordæmi dómstóls fæst í þeim ágreiningi sem upp er kominn um hvort eitthvað - og þá hvað - geti komið í stað hinnar ólögmætu gengistryggingar.“
Fyrst um sinn gildir undanþága samkvæmt bréfi Se til 1. nóvember nk.
Enn ágreiningur um bílalán og tilmæli FME og SÍ
Talsmaður neytenda fagnar þessum skjótu og góðu viðbrögðum SFF og hlutaðeigandi banka, svo og af hálfu Se. Enn er hins vegar ágreiningur um hvernig bregðast eigi við gagnvart lántakendum bílalána enda virðast hlutaðeigandi fjármálafyrirtæki enn telja sér skylt að fara að sameiginlegum tilmælum Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands (SÍ) frá 30. júní sl. enda þótt forstjóri FME haldið því fram opinberlega að þau sameiginlegu tilmæli séu ekki lagalega bindandi.
Tilmæli talsmanns neytenda lutu aðeins að þeim lánum sem bankar töldu vafa leika á að féllu undir fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar frá 16. júní sl. Að mati talsmanns neytenda getur ekki leikið neinn vafi á því að gengistryggð bílalán falla undir hæstaréttardómana sem snerust beinlínis um bílalán. Talsmaður neytenda hefur því undanfarna viku unnið að því að vinda ofan af tilmælum FME og SÍ þannig að lántakendur bílalána njóti ekki síður hagstæðra lausna en aðrir lántakendur enda eru fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar ótvíræð gagnvart gengistryggðum bílalánum.
Fram hefur komið opinberlega að bílalánafyrirtæki muni ekki innheimta greiðslur af lántakendum bílalána í júlí og ágúst meðan unnið er að uppgjöri á grundvelli umdeildra tilmæla FME og SÍ.
Fyrirmynd fyrir lausnarmiðaðan farveg í fleiri málum
Vonast talsmaður neytenda til að þessi niðurstaða marki spor í því skyni að fleiri álitaefni og jafnvel ágreiningsmál fari í lausnarmiðaðan farveg í stað hefðbundinnar dómstólameðferðar. Er unnið að því í samráði við fjölmarga hagsmunaaðila á borð við SFF og Hagsmunasamtök heimilanna sem áttu einnig hlut að máli í þessu efni.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.