16. maí 2013
Reikningar eiga að vera sanngjarnir
Ef neytandi pantar verk eða þjónustu - t.d. hjá iðnaðarmanni - án þess að fá upplýsingar um gjaldskrá er sú grundvallarregla í gildi að uppsett verð á að vera sanngjarnt.
Nánar15. maí 2013
Innheimtukostnaður miðist ekki við hlutfall
Þótt ráðherra hafi ekki sett leiðbeiningar um hæfilegt endurgjald lögmanna í innheimtumálum eru skuldarar ekki réttlausir og neytendur eiga rétt á að innheimtukostnaður sé hóflegur og takmarkist við nauðsynlegan kostnað.
Nánar27. mar. 2013
Frestur hefst við móttöku eða sendingu bréfs
Þegar fyrirtæki vilja rukka neytendur um vexti eða önnur gjöld þarf að huga að upphafi þess frests, sem tilgreindur er í hlutaðeigandi lagaákvæði; það er ekki dagsetning kröfubréfs heldur oftast sá dagur sem bréf er móttekið eða sannanlegur sendingardagur bréfs.
Nánar21. des. 2012
Talsmaður neytenda getur nú fylgt eftir réttindum neytenda
Auk þríþætts hlutverks talsmanns neytenda við að kynna, verja og bæta réttindi neytenda getur hann nú fylgt þeim eftir samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar - sem staðfesti málsóknarheimild embættisins enda þótt mál varði ekki viðskipti yfir landamæri.
Nánar21. des. 2012
Símatími talsmanns neytenda yfir hátíðarnar
Frá og með aðfangadegi er símatími hjá embætti talsmanns neytenda á virkum dögum kl. 11-12 fyrir hádegi.
Nánar05. okt. 2012
Synjun Héraðsdóms á lögbannskröfu vegna innheimtu ólögmætra gengislána kærð til Hæstaréttar
Kærð hefur verið til Hæstaréttar synjun Héraðsdóms Reykjavíkur á kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) um lögbann á innheimtu Landsbankans vegna ólögmætra gengistryggðra lána.
Nánar01. okt. 2012
Ian Watson leysir talsmann neytenda af
Í veikindaleyfi talsmanns neytenda í október gegnir dr. Ian Watson daglegum störfum fyrir embættið í hlutastarfi.
Nánar24. ágú. 2012
Skrifstofa talsmanns neytenda flytur í Skógarhlíð
Embætti talsmanns neytenda hefur fengið aðstöðu að Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa auk fleiri öryggisstofnana. Varð sú niðurstaða að ráði ráðuneytisins eftir að Neytendastofa, þar sem embættið á að hafa aðsetur, ákvað að úthýsa embættinu án gildra ástæðna.
Nánar15. jún. 2012
Úrskurður í lögbannsmáli borinn undir héraðsdóm
Órökstuddur úrskurður sýslumannsins í Reykjavík fyrir tveimur vikum um að hafna lögbanni við greiðsluseðlum vegna gengistryggðra lána hefur verið borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Nánar05. jún. 2012
Þörf á áliti EFTA-dómstóls um neytendarétt lántakenda
Talsmaður neytenda telur nauðsynlegt að í prófmálum sem þingfest verða síðar í júní til að leysa úr álitamálum vegna gengistryggðra lána verði leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um hvort evrópskar reglur neytendaréttar hafi verið virtar.
Nánar04. jún. 2012
Lögbanni á greiðsluseðla hafnað
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði sl. föstudag kröfu talsmanns neytenda og Hagsmunasamtaka heimilanna um að lögbann yrði sett við útsendingu og innheimtu greiðsluseðla vegna gengistryggðra lána. Engin efnisrök er að finna í ákvörðun sýslumanns.
Nánar06. feb. 2012
Listi yfir fyrirtæki sem fengu fyrirspurn um iðnaðarsalt
Talsmaður neytenda birtir lista yfir þau um 70 matvælafyrirtæki, sem keyptu iðnaðarsalt og fengu formlega fyrirspurn um notkun þess. (Listinn var uppfærður 8.2.)
Nánar03. feb. 2012
Um 70 matvælafyrirtæki spurð um iðnaðarsalt
Um 70 fyrirtæki, sem framleiða eða framreiða mat- eða drykkjarvörur og keyptu iðnaðarsalt af Ölgerðinni en ekki upplýst um notkun þess, hafa fengið frest til nk. mánudags til að svara fyrir um notkun þess.
Nánar24. jan. 2012
Matvælaframleiðendur upplýsi um salt á vefnum
Matvælaframleiðendum hefur verið gefið færi á að upplýsa með auðveldum hætti á vef talsmanns neytenda hvort þau hafi notað iðnaðarsalt í mat- eða drykkjarvörur. Í kjölfarið verða send formleg erindi til þeirra sem ekki bregðast við.
Nánar23. jan. 2012
Vefviðmót í vinnslu til þess að upplýsa um salt í matvælum
Síðar í dag, mánudag, verður væntanlega birt viðmót á vef talsmanns neytenda sem auðveldar matvælaframleiðendum að veita embættinu upplýsingar um heiti vöru sem iðnaðarsalt hefur verið notað í.
Nánar20. jan. 2012
Matvælaframleiðendur sem hafa ekki notað iðnaðarsalt (uppfært)
Hér birtast heiti matvælafyrirtækja, sem keypt hafa iðnaðarsalt en lýsa því yfir að þau hafi ekki notað það í mat- eða drykkjarvörur sem þau hafa framleitt. (Uppfært)
Nánar20. jan. 2012
Endurskoðun leiðbeininga um neytendavernd barna hafin
Gefinn er frestur til 1. febrúar til þess að gera athugasemdir áður en talsmaður neytenda og umboðsmaður barna ljúka yfirstandandi endurskoðun á leiðbeiningarreglum sem ætlað er að auka neytendavernd barna.
Nánar17. jan. 2012
Matvælafyrirtæki upplýsi í hvaða vöru iðnaðarsalt hafi verið notað
Talsmaður neytenda hefur ákveðið að beita upplýsingarétti sínum samkvæmt lögum í þágu neytenda í því skyni að matvælafyrirtæki upplýsi neytendur um þá vöru sem inniheldur iðnaðarsalt.
Nánar16. jan. 2012
Talsmanni neytenda veitt málsóknarheimild
Skömmu fyrir jól ákvað innanríkisráðherra að veita talsmanni neytenda heimild til málsóknar samkvæmt lögum frá 2001 til þess að gæta heildarhagsmuna neytenda samkvæmt tilgreindum Evróputilskipunum.
Nánar23. nóv. 2011
Gildi leiðbeininga um neytendavernd barna háð Skráargatinu
Talsmaður neytenda og umboðsmaður barna árétta að betri neytendavernd barna náist ekki fyrr en Skráargatið, norræna hollustumerkið, sé tekið upp hérlendis.
Nánar22. nóv. 2011
Offituvandamálið réttlætir kröfur um hitaeiningamerkingar
Talsmaður neytenda og umboðsmaður barna taka undir að merkja eigi hitaeiningainnihald á seldum veitingum en telja skylduna mega vera almenna til að forðast skilgreiningarvanda.
Nánar21. nóv. 2011
Þarf að auka neytendavernd barna?
Óskað er eftir athugasemdum frá neytendum - ekki síst foreldrum barna - samtökum og öðrum hagsmunaaðilum í tilefni af endurskoðun leiðbeinandi reglna um neytendavernd barna.
Nánar18. nóv. 2011
Lektor spyr hvort gengislögin brjóti stjórnarskrá
Í nýrri grein fjallar Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild HÍ, um lagareglur um rangar forsendur og endurreikning ólögmætra gengislána og spyr hvort lög um hann brjóti í bága við eignarréttarákvæði stjórnarskrár.
Nánar16. nóv. 2011
Orkuveitan væntanlega bótaábyrg vegna manngerðra jarðskjálfta
Í pistli frá í gær færir talsmaður neytenda rök fyrir því út frá íslenskum og dönskum hæstaréttardómafordæmum 2005 og 1968 að Orkuveita Reykjavíkur geti borið bótaábyrgð á tjóni af völdum jarðskjálfta í kjölfar niðurdælinga.
Nánar15. nóv. 2011
Gjá milli réttinda neytenda og úrræða þeirra
Á fundi innanríkisráðuneytis í síðustu viku vakti talsmaður neytenda athygli á sóknarfæri í því að bæta réttarfar í þágu neytenda svo þeir næðu í raun lagalegum rétti sínum.
Nánar31. ágú. 2011
Vörslusvipting þarf alltaf að styðjast við dómsúrskurð
Formlegt eignarhald eða skráning bifreiðar ræður ekki úrslitum við vörslusviptingar bifreiða heldur þarf alltaf heimild dómara og atbeina sýslumanns til að svipta neytendur umráðum bifreiða.
Nánar04. apr. 2011
Aukin neytendavernd barna með hollustumerki
Í umsögn um þingsályktunartillögu um norrænt hollustumerki, Skráargatið, segja talsmaður neytenda og umboðsmaður barna að með því ykist neytendavernd barna þar sem þá tækju gildi leiðbeiningarákvæði frá embættunum um að halda ekki öðrum matvælum að börnum.
Nánar25. mar. 2011
„Má bjóða þér poka“
Á nýlegum fundi með talsmanni neytenda var vakin athygli á því að fleiri verslanir væru farnar að selja poka - og vektu ekki ávallt athygli á þeirri nýbreytni.
Nánar23. mar. 2011
Almenn athugun á neikvæðri samningsgerð
Á nýlegum fundi hjá Kvenfélagasambandi Íslands kynnti talsmaður neytenda lagaskilyrði þess að neytendur teljist hafa samþykkt verðskrár- og skilmálabreytingar í viðvarandi samningum. Lýsti hann áformum um almenna athugun á framkvæmdinni.
Nánar09. mar. 2011
Allir neytendur geta borið endurútreikninga gengislána undir umboðsmann skuldara
Samkvæmt lögum er umboðsmanni skuldara falið að kveða á um úrbætur „ef þörf krefur“ og geta allir neytendur leitað til embættisins ef þeir telja að fjármálafyrirtæki hafi ekki staðið rétt að endurútreikningi gengislána.
Nánar23. feb. 2011
Riftun bílasamninga frestað
Fjármögnunarfyrirtæki hafa fallist á tilmæli talsmanns neytenda um að fresta framkvæmd riftunar bílasamninga neytenda í skuldaskjóli meðan skoðað er hvort alger stöðvun á greiðslum neytenda fyrir afnot bifreiða er nauðsynleg að lögum.
Nánar21. feb. 2011
Opinbert hollustumerki yki neytendavernd barna
Leiðbeiningar um neytendavernd barna yrðu strax mun virkari ef hollustumerki að skandinavískri fyrirmynd (skráargatsmerki) yrði tekið upp eins og talsmaður neytenda og umboðsmaður lögðu til fyrir tveimur árum.
Nánar21. jan. 2011
Bann við auglýsingum í barnatímum ekki brot gegn tjáningarfrelsi
Í sameiginlegri umsögn sinni andmæla talsmaður neytenda og umboðsmaður barna því sjónarmiði SÍA að fjölmiðlafrumvarp feli í sér brot gegn tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.
Nánar13. jan. 2011
Leiðbeiningar um neytendavernd barna endurskoðaðar
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda endurskoða í haust leiðbeinandi reglur um mörk við markaðssókn gagnvart börnum en þá verða liðin 2 1/2 ár frá gildistöku þeirra auk þess sem væntanleg lög um fjölmiðla hafa áhrif á inntak reglnanna.
Nánar29. des. 2010
Greiðslur fyrir þjónustu hækki ekki fyrirvaralaust
Samkvæmt reglum neytendamarkaðsréttar ber að tilkynna neytendum hækkun á greiðslum fyrir viðvarandi þjónustu með hæfilegum fyrirvara.
Nánar03. des. 2010
Texti um „breytingu“ ekki nægileg tilkynning um verðhækkun
Í nýlegri umsögn sem talsmaður neytenda sendi að ósk Póst- og fjarskiptastofnunar er áréttað að einföld skilaboð um „breytingu“ á verði án nánari skýringar uppfylli ekki kröfur neytendamarkaðsréttar um að tilkynna beri neytendum íþyngjandi breytingar á skilmálum.
Nánar15. nóv. 2010
Stytting fyrningarfrests til hagsbóta en betra að skilyrði séu í lögum
Í nýlegri skriflegri umsögn talsmanns neytenda um frumvarp um styttingu fyrningarfrests í kjölfar gjaldþrots og tilsvörum hjá allsherjarnefnd Alþingis í dag kom fram að einstaklingar ættu sjálfir aflahæfi sitt - en ekki kröfuhafar. Lagði hann til að skilyrði til að slíta fyrningu kæmu fram í lögum.
Nánar12. nóv. 2010
Lausn skuldavanda verði fundin með gerð
Í Þjóðmenningarhúsi í gær voru kynntir útreikningar sérfræðingahóps á ólíkum leiðum til lausnar skuldavanda heimilanna - en þó ekki á gerðardómstillögu talsmanns neytenda frá apríl 2009. Lagði talsmaður neytenda til að e.k. gerðardómi yrði falið að finna ásættanlegt samspil mismunandi lausna.
Nánar10. nóv. 2010
Treyst á fjölþættara samráð við mótun húsnæðisstefnu
Fagna ber ákvörðun um skipun samráðshóps um mótun húsnæðisstefnu til framtíðar. Treyst er á vilyrði ráðuneytisins um að fjölbreyttari hópur verði hafður með í ráðum áður en stefna er mótuð - þ.m.t. samtök neytenda sem talsmaður neytenda nefndi til sögunnar í fyrra í tengslum við svipað erindi.
Nánar05. nóv. 2010
Alþingi ber að skilgreina framfærsluþörf
Í erindi sem talsmaður neytenda hélt í síðustu viku á borgarafundi að ósk skipuleggjenda komst hann að þeirri niðurstöðu að stjórnarskrárákvæði um aðstoð við fátæka o.fl. hópa bæri að skýra svo að á löggjafanum sjálfum hvíldi sú skylda að skilgreina framfærslurétt mismunandi hópa miðað við þörf.
Nánar26. okt. 2010
Óskað jafnvægis í höfundaréttamálum
Talsmaður neytenda hefur ásamt Félagi um stafrænt frelsi á Íslandi óskað eftir því að fulltrúar notenda og neytenda fái jafnt vægi á við fulltrúa höfundaréttarhafa í höfundaréttarnefnd - m.a. í ljósi hugmynda um nýjar álögur á netnotkun eða netaðgang vegna ólögmætrar notkunar höfundaefnis.
Nánar13. okt. 2010
Gott að forverðmerkingum verði hætt
Talsmaður neytenda fagnar sátt og málalyktum af hálfu Samkeppniseftirlitsins að því er varðar forverðmerkingar á kjötáleggi og fleiri vörum til neytenda sem hann hefur lengi talið skaðlegar neytendum og jafnvel ólögmætar.
Nánar06. sep. 2010
Hæstiréttur hvattur til að fá ráðgefandi álit frá EFTA-dómstólnum um hvort breyta megi samningum neytenda eftirá
Vegna mikils - en afmarkaðs - fordæmisgildis gagnvart gjaldfelldum bílalánum neytenda telur talsmaður neytenda mikilvægt að tryggja að Evrópureglur um neytendavernd verði virtar.
Nánar26. ágú. 2010
Erindi um hækkun orkugjaldskráa verði grandskoðuð
Iðnaðarráðherra hefur fengið bréf frá talsmanni neytenda þar sem áréttuð er þörf á að grandskoða erindi orkufyrirtækja um gjaldskrárhækkanir - áður en ákveðið er hvort eigi að staðfesta þær. Einnig er hvatt til samræmnigar á lögbundnu gjaldskráreftirliti þar sem val er lítið sem ekkert.
Nánar17. ágú. 2010
Búvörulagafrumvarp stjórnarskrárbrot
Talsmaður neytenda telur í ítarlegri umsögn um frumvarp um breytingar á búvörulögum að í því felist að óbreyttu stjórnarskrárbrot - ekki síst vegna harkalegs og óvenjulegs refsiákvæðis sem ekki standist kröfu stjórnarskrár um atvinnufrelsi o.fl.
Nánar12. ágú. 2010
Talsmaður neytenda fagnar merkingu erfðabreyttra matvæla
Um leið og fagnað er nýrri ákvörðun ráðherra matvælamála um að settar verði reglur um merkingu erfðabreyttra matvæla minnir talsmaður neytenda á að nú þurfi framkvæmdin að ganga hratt eftir enda hefur slíku áður verið lofað af hálfu stjórnvalda.
Nánar21. júl. 2010
Spurt um tryggingar varðandi hugsanlegar fjárkröfur neytenda
Talsmaður neytenda hefur sent þremur fjármálafyrirtækjum bréf þar sem spurt er um tryggingar fyrirtækjanna, fulltrúa þeirra og lögmanna ef fyrirtækin reynast ekki gjaldfær gagnvart endur- og bótakröfum sem neytendur kunna að eiga.
Nánar15. júl. 2010
Refsivert að brjóta gegn lagaákvæðum um verðtryggingu
Talsmaður neytenda hefur beint því formlega til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands að afturkalla tilmæli þessara stofnana til fjármálafyrirtækja frá 30. júní sl. vegna valdþurrðar, rangs lagagrunns, skorts á lagastoð að formi og efni til og ónógs undirbúnings.
Nánar07. júl. 2010
Skjótum og góðum viðbrögðum fagnað
Talsmaður neytenda lýsir ánægju með viðbrögð Samtaka fjármálafyrirtækja og hlutaðeigandi banka - sem hafa samþykkt tilmæli embættisins frá sl. föstudegi, 2. júlí, til bráðabirgða meðan ágreiningur ríkir um fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar.
Nánar06. júl. 2010
Annað gengismál flutt í héraði á morgun
Í máli, sem flutt verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, reynir á önnur atriði en dæmd voru í Hæstarétti 16. júní sl. þar sem nú eru gerðar kröfur um að annað komi í stað ólögmætrar gengistryggingar.
Nánar05. júl. 2010
Neytendur kanni hvort þeir hafa málskostnaðartryggingu
Vegna ágreinings sem fjármálafyrirtæki hafa gert um fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar er neytendum, sem telja kröfur fyrirtækjanna hæpnar, ráðlagt að kanna hjá tryggingafélagi sínu hvort lögmannskostnaður sé greiddur af fjölskyldutryggingum þeirra.
Nánar02. júl. 2010
Bankar innheimti aðeins fasta krónutölu af umdeildum lánum
Fyrstu formlegu viðbrögð talsmanns neytenda við gengisdómum Hæstaréttar hafa verið send bönkunum í gegnum hagsmunasamtök þeirra og fela í sér að milda áhrif umdeildra tilmæla FME og Sí í fyrradag.
Nánar01. júl. 2010
Talsmaður neytenda vill geta lagt lögbann á gengislánin
Í kjölfar viðbragða við dómum Hæstaréttar fyrir hálfum mánuði hefur talsmaður neytenda farið formlega fram á almenna heimild frá ráðherra samkvæmt lögum til að grípa til lögbanns til varnar neytendum.
Nánar30. jún. 2010
Nærtækt að skilmálar gengislána haldist óbreyttir
Í sérfræðiáliti til talsmanns neytenda er rökstutt ítarlega að vaxtalög kveði ekki á um rétt til skilmálabreytinga í þágu fjármálafyrirtækja sem geti auk þess varla borið fyrir sig forsendubrest.
Nánar29. jún. 2010
Ofgreiðslur neytenda koma til lækkunar á skuld
Í sérfræðiáliti sem talsmaður neytenda birti á vef sínum í fyrradag er m.a. vikið að endurgreiðslurétti neytenda og talið að skortur á fyrirvörum komi ekki að sök.
Nánar28. jún. 2010
Gengistryggð húsnæðislán örugglega ólögmæt
Sérfræðingur hefur gefið talsmanni neytenda það álit að fullvíst sé að tenging húsnæðislána, sem greidd séu og endurgreidd í krónum, við gengi erlendra gjaldmiðla, veitt í formi skuldabréfa, teljist ólögmæt.
Nánar22. jún. 2010
Nú geta neytendur sjálfir borið saman símakostnað
Póst- og fjarskiptastofnun setur í dag á laggirnar á vefslóðinni www.reiknivél.is handhægt tæki fyrir neytendur til þess að bera sjálfir saman hagstæðustu lausnir fyrir síma og niðurhal miðað við áætlaða meðalnotkun sína.
Nánar18. jún. 2010
Stjórnvöld leiti heildstæðrar sáttar um skuldauppgjör
Talsmaður neytenda hefur í dag á fjórum fundum með tveimur ráðherrum, tveimur þingnefndum, þingmönnum og hagsmunaaðilum hvatt til þess að stjórnvöld hafi frumkvæði að heildstæðri sátt - með löggjöf eða eftir mati gerðardóms - um heildstætt uppgjör og mat á réttarstöðu neytenda og kröfuhafa.
Nánar16. jún. 2010
Mismunun neytenda á grundvelli búsetu hæpin
Ókeypis hefur verið í sund fyrir börn í Reykjanesbæ og framvegis verður svo einnig í Reykjavík. Af þessu tilefni og þar sem sumar sundlaugar mismuna börnum eftir búsetu hefur talsmaður vakið athygli á reglum um málefnaleg sjónarmið.
Nánar07. maí 2010
Opinn þingnefndarfundur um verðtryggingu
Nk. mánudag kl. 9:30 býður viðskiptanefnd Alþingis efnahags- og viðskiptaráðherra, talsmanni neytenda og fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna á opinn fund um verðtryggingu - í beinni útsendingu.
Nánar27. apr. 2010
Skýrslan staðfestir bótarétt neytenda
Talsmaður neytenda telur að lántakendur geti átt skaðabótakröfur eins og skýrsla rannsóknarnefndarinnar renni stoðum undir. Bótakröfur, forsendubrest o.fl. rök úr ársgamalli tillögu hans má væntanlega nota gegn núverandi kröfuhöfum sem voru í "vondri trú" um slíkar mótbárur er þeir yfirtóku bankana.
Nánar21. apr. 2010
Hæstaréttardómur tilefni til endurupptöku bílalánsmála
Í kjölfar dóms Hæstaréttar í gær telur talsmaður neytenda tilefni til þess að meta hvort skilyrði séu nú til endurupptöku þegar dæmdra mála. Einnig vekur hann af þessu tilefni athygli á að ekki standist lög að svipta neytendur vörslu bifreiða án atbeina sýslumanns.
Nánar20. apr. 2010
Dráttarvextir bornir saman við bætur til neytenda
Í nýlegri ræðu rakti talsmaður neytenda mismun á rétti kröfuhafa til skaðabóta annars vegar og hins vegar rétti neytenda til bóta vegna vanefnda. Einnig voru borin saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum og náttúruhamförum - og lagðar til úrbætur.
Nánar12. apr. 2010
Neytendur geta gert bótakröfur við ákæruvald
Ef neytendur eiga bótakröfur á hendur þeim, sem ákærðir eru vegna brota eða vanrækslu við efnahagshrunið, þurfa þeir ekki að stefna þeim - eins og talsmaður neytenda hefur áréttað við handhafa ákæruvalds.
Nánar26. mar. 2010
Óska má bindandi álits ríkisskattstjóra ef fjármálaráðuneytið heldur fast við afstöðu sína
Ágreiningur fjármálaráðuneytis við talsmann neytenda, félagsmálaráðherra, ríkisskattstjóra o.fl. er ekki aðeins fræðilegur ágreiningur heldur getur hann skipt máli ef fjármálaráðuneytið vill skattleggja að hluta niðurfærslu skulda neytenda.
Nánar24. mar. 2010
Skuldaskattur í bága við stjórnarskrá
Að áliti talsmanns neytenda er hæpið að halda því fram að niðurfærsla skulda neytenda sé skattskyld samkvæmt gildandi lögum. Skattlagning færi því í bága við stjórnarskrá þar sem ekki sé um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ - heldur staðfestingu á rétti neytenda.
Nánar23. mar. 2010
Dómstólameðferð óhagkvæm í neytendamálum
Talsmaður neytenda kynnti nýverið óformlega hugmynd að lausn til þess að nýta kosti sáttamiðlunar umfram hefðbundna dómstólameðferð - sem væri óhagkvæm til lausnar sumra neytendamála.
Nánar17. mar. 2010
Aukinn skilningur á skuldvanda neytenda og leiðir til lausnar
Fagna ber yfirlýstum vilja stjórnvalda til þess að koma til móts við skuldara bílalána og áréttað að gerðardómur er vonandi enn fær leið til þess að leysa skuldamál neytenda heildstætt. Bent er á að íbúðarlán eru ekki síður íþyngjandi en bílalán, einkum ef þau eru tengd gengi erlendra gjaldmiðla.
Nánar15. mar. 2010
Hvaða rétt áttu - í átta liðum?
Í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar rekur talsmaður neytenda nokkur dæmi um hvernig átta yfirlýst grundvallarréttindi neytenda endurspeglast í íslenskum lögum og framkvæmd á Íslandi. Í sama tilgangi er minnt á Leiðakerfi neytenda á www.neytandi.is.
Nánar12. mar. 2010
Form og tilgangur skjals ræður úrslitum
Talsmaður neytenda skýrir nánar þagnarskyldu sína vegna vinnuskjals sem ráðuneyti hefur samið til eigin afnota. Þar skiptir efni skjalsins ekki máli en brýnt er þó að fá skjóta úrlausn um réttarágreining varðandi neytendalán.
Nánar11. mar. 2010
Óvissa um gengislán líklega út árið 2010
Talsmaður neytenda býst ekki - að óbreyttu - við fordæmisgefandi efnisdómi frá Hæstarétti varðandi gengisbundin eða erlend lán fyrr en í fyrsta lagi undir lok ársins eða í lok árs 2010. Er mat hans byggt á nýlegum upplýsingum og reynslurökum um málsmeðferð fyrir Hæstarétti.
Nánar10. mar. 2010
Ráðuneyti svarar fyrirspurn um gengislán
Talsmaður neytenda hefur fengið svar við fyrirspurn til efnahags- og viðskiptaráðuneytis um hvort aflað hafi verið lögfræðiálits um (ó)lögmæti gengisbundinna lána. Hann er bundinn þagnarskyldu um atriði sem fram koma í minnisblaði um málið.
Nánar03. mar. 2010
Þrjár færar leiðir til lausnar skuldavanda heimilanna
Á fundi hjá Hagsmunasamtökum heimilanna í byrjun vikunnar fór talsmaður neytenda yfir þær þrjár leiðir sem helst væru færar til úrlausnar réttaróvissu um gengisbundin lán og eftir atvikum önnur neytendalán.
Nánar30. des. 2009
Bankar eru bótaábyrgir gagnvart neytendum ef þeir innheimta ólögmæt gengislán
Bankar - og jafnvel æðstu stjórnendur þeirra - geta orðið bótaábyrgir gagnvart neytendum fari svo að Hæstiréttur fallist á að gengislán hafi verið ólögmæt eins og haldið hefur verið fram - en í nýlegum héraðsdómi var þó ekki fallist á þau rök. Sama á við ef fallist verður á rök um forsendubrest.
Nánar22. des. 2009
Á að halda við 30 ára björgunarhring fyrir krónulán eða eigum við að læra að synda?
Talsmaður neytenda hvetur til opinna fundarhalda um réttmæti verðtryggingar og vill fá prófaða þá kenningu að hún sé ekki aðeins afleiðing verðbólgu - heldur kunni sjálfkrafa verðtrygging neytendalána einnig að hluta til að vera orsök stöðugrar verðbólgu.
Nánar16. des. 2009
Símafyrirtæki hugi sérstaklega að réttarstöðu barna
Í nýlegri umsögn fagnar talsmaður neytenda tilmælum PFS um neytendaskilmála fjarskiptafyrirtækja en bendir á að rétt sé að huga sérstaklega að hagsmunum barna í símaviðskiptum.
Nánar26. okt. 2009
Réttur korthafa til endurgreiðslu flugferðar ef ferð er ekki farin
Neytendur eiga endurkröfurétt á greiðslukortafyrirtæki ef bú flugfélags er tekið til gjaldþrotaskipta áður en ferð er farin og annað flugfélag yfirtekur ekki ferðina.
Nánar23. okt. 2009
Vafi um lögmæti gengislána kannaður?
Talsmaður neytenda hefur skrifað efnahags- og viðskiptaráðherra og spurt hvort aflað hafi verið lögfræðiálits um lögmæti gengistryggðra lána og hvort fyrirvari hafi verið gerður um það við endurreisn bankanna.
Nánar29. sep. 2009
Gerðardómslausn enn fær sem skilvirk og skjót lausn á skuldavanda
Hér eru birtar glærur og meginatriði úr erindi talsmanns neytenda á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í dag þar sem tillaga um gerðardómslausn var kynnt og áréttuð.
Nánar24. sep. 2009
Tekið undir með ASÍ - svo langt sem tillögurnar ná
Talsmaður neytenda tekur undir góðar tillögur ASÍ um úrbætur á lögum um greiðsluaðlögun o.fl. - en áréttar það sem fram kom fyrir rúmum 7 mánuðum að sértækt úrræði til greiðsluaðlögunar dugir engan veginn til fyrir neytendur vegna forsendubrests í kjölfar efnahagshruns.
Nánar21. sep. 2009
Boðist til að aðstoða stjórnvöld við að svara ESB vegna neytenda
Talsmaður neytenda hefur ásamt Neytendasamtökunum boðið utanríkisráðuneytinu aðstoð við að svara framkvæmdarstjórn ESB spurningum er varða neytendur.
Nánar18. sep. 2009
Óskað fullrar aðildar að leit að lausnum við skuldavanda heimilanna
Hópur aðila, sem stóðu að ákalli til stjórnvalda um lausn á skuldavanda heimilanna 11. febrúar sl. og endurnýjun þess 11. september sl., fundaði í vikunni með ráðherra og þingflokkum stjórnarflokkanna og óskaði eftir aðild að tillögugerð til lausnar.
Nánar18. sep. 2009
Óttast málafjölda vegna ágreinings um neytendalán vegna forsendubrests
Talsmaður neytenda hefur haft samband við dómsmálayfirvöld vegna þess málafjölda sem búast má við að óbreyttu vegna ágreinings um lögmæti neytendalána og réttmæti í kjölfar forsendubrests.
Nánar10. sep. 2009
Frestur til að svara tilmælum um gerðardóm vegna neytendalána að renna út
Í næstu viku rennur út 3ja vikna frestur sem talsmaður neytenda gaf 25 kröfuhöfum til þess að svara tilmælum um að samið yrði um gerðardóm sem myndi leysa úr ágreiningi um forsendubrest o.fl. vegna neytendalána.
Nánar31. ágú. 2009
Tilmæli um gerðardómslausn kynnt kröfuhöfum
Talsmaður neytenda hefur boðið stjórnendum 25 aðila - banka og annarra sem hafa veitt neytendum langtímalán - kynningu á tilmælum sem þeim voru send um skipun gerðardóms til þess að leysa úr ágreiningi um forsendubrest o.fl. í kjölfar gengis- og bankahruns.
Nánar27. ágú. 2009
Tilmælum nú beint til lánveitenda um gerðardómslausn
Réttum fjórum mánuðum eftir að forsætisráðherra var send tillaga um eignarnám íbúðarveðlána og niðurfærslu þeirra eftir mati gerðardóms eru bönkum og öðrum kröfuhöfum nú send sambærileg tilmæli - en sú varaleið nær jafnframt til bílalána o.fl. lána til neytenda, sem fyrri tillaga gerði ekki.
Nánar24. ágú. 2009
Lögmenn líka bundnir af reglum um hámark innheimtukostnaðar
Talsmaður neytenda hefur beðið Lögmannafélag Íslands um að leiðrétta þann misskilning sem orðið hefur vart við hjá einstaka lögmönnum að þeir séu undanþegnir innheimtulögum áður en mál kemur til dómstóla eða sýslumanns.
Nánar14. ágú. 2009
Þörf á að greina leigumarkað í mótun
Ásamt Félagi löggiltra leigumiðlara leggur talsmaður neytenda til að ráðherra húsnæðismála láti greina hagræn, þjóðfélagsleg og neytendaréttarleg álitamál varðandi leigumarkað með íbúðarhúsnæði.
Nánar20. maí 2009
Umfangsmikil kynning á tillögu um niðurfærslu íbúðarveðlána
Stjórnvöldum, almannasamtökum, heildarsamtökum launafólks, almannasamtökum, þingflokkum, Alþingi, Seðlabanka og öðrum hefur verið boðin kynning á tillögu talsmanns neytenda um eignarnám og niðurfærslu íbúðarveðlána eftir mati gerðardóms.
Nánar29. apr. 2009
Öll íbúðarveðlán til neytenda verði færð niður eftir mati gerðardóms
Talsmaður neytenda hefur sent forsætisráðherra tillögu með ítarlegum rökstuðningi fyrir því að taka beri öll neytendalán með veði í íbúðarhúsnæði eignarnámi og fela gerðardómi að leggja til niðurfærslu þeirra.
Nánar24. apr. 2009
Sjálfstæðisflokkurinn vill neytendavænni lánamarkað
Í fjórða neytendapistli stjórnmálaflokka fyrir þingkosningar á morgun leggur Erla Ósk Ásgeirsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík syðri, áherslu á neytendavænni húsnæðislánamarkað - m.a. með óverðtryggð lán sem valkost í auknum mæli.
Nánar20. apr. 2009
Framsókn leggur áherslu á að neytendur nýti sér val sitt, lögvarin réttindi og tiltæk úrræði
Í pistli Ástu Rutar Jónasdóttur frá Framsóknarflokki fyrir komandi þingkosningar er bent á afleiðingar þess að neytendur hafi treyst ráðgjöf banka og spám greiningardeilda - fjöldamálsókn sé í undirbúningi.
Nánar15. apr. 2009
Vinstri græn leggja áherslu á sjálfbærni og heildarhugsun
Í öðrum neytendapistli stjórnmálaflokka fyrir þingkosningar benda Vinstri græn á að dýr vara, framleidd með vafasömum og jafnvel mengandi hætti, sé rándýr ef litið sé til framtíðaráhrifa.
Nánar08. apr. 2009
Borgarahreyfingin vill að þú fjárfestir í öruggri, skrumlausri framtíð
Fyrstur frambjóðenda fyrir komandi alþingiskosningar skrifar Þráinn Bertelsson frá X-O um hinn ábyrga neytanda og rökstyður þörf á neytendavitund.
Nánar07. apr. 2009
"[K]jör neytenda myndu stórbatna við aðild Íslands að ESB eða fljótlega í kjölfar hennar"
Talsmaður neytenda telur réttindi neytenda lítið breytast þó að aukaaðild Íslands að ESB yrði að fullri aðild. Öðru máli gegni hins vegar um kjör neytenda, sem myndu stórbatna - sem og möguleikar íslenskra aðila til þess að bæta stöðu neytenda hérlendis.
Nánar02. apr. 2009
Hvað vilja stjórnmálaflokkarnir gera fyrir neytendur - og hvað áformuðu þeir fyrir þingkosningar 2007?
Talsmaður neytenda endurtekur leikinn frá 2007 og hefur boðið öllum flokkum, sem bjóða fram lista fyrir þingkosningar nú í apríl, að kynna stefnu sína í neytendamálum. Hér er farið yfir pistla fulltrúa þeirra frá vordögum 2007 og metið lauslega hvernig þeir hafa ræst.
Nánar27. mar. 2009
Norrænt hollustumerki lagt til við matvælaráðherra
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda fylgja nú eftir leiðbeiningum um aukna neytendavernd barna með tillögu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að hann ákveði að tekið verði upp valfrjálst hollustumerki að sænskri fyrirmynd eins og Danir og Norðmenn hafa nýverið gert.
Nánar25. mar. 2009
Tekið undir tillögu um afnám bankaleyndar gagnvart neytendum sem eiga í sjóði
Talsmaður neytenda lýsir stuðningi við frumvarp nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að svonefnd bankaleynd eða þagnarskylda víki þegar neytendur hafa við tilteknar aðstæður hagsmuni af upplýsingum um viðskipti í sjóðum sem þeir eiga hlut í.
Nánar19. mar. 2009
Neytendum almennt ekki ívilnað vegna taps í peningamarkaðssjóðum
RSK telur almennt ekki koma til álita að ívilna neytendum vegna taps í peningamarkaðssjóðum við slit þeirra sl. haust. Talsmaður neytenda telur þó ekki útilokað - þrátt fyrir svarið - að einstaka neytendur eigi rétt á lækkun tekjuskattsstofns ef útgreiðsla er lægri en upphafleg fjárfesting í sjóði.
Nánar13. mar. 2009
Leiðbeiningar um aukna neytendavernd barna taka gildi
Ítarlegar leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna varðandi markaðssókn sem beinist að börnum taka gildi nk. sunnudag, 15. mars, á alþjóðadegi neytendaréttar.
Nánar11. mar. 2009
Áréttað að vanskilakostnaður - dráttarvextir - er lögbundinn
Í jákvæðri umsögn um frumvarp til laga um ábyrgðarmenn, sem þverpólitísk samstaða virðist um, fagnar talsmaður neytenda málinu og gerir litlar athugasemdir en áréttar að vanskilakostnaður sé lögbundinn, svonefndir dráttarvextir. Þá er innheimtukostnaður nú bundinn hámarki.
Nánar09. mar. 2009
Þverpólitísk samstaða um hópmálsókn
Tíu þingmenn úr öllum þingflokkum standa að frumvarpi um hópmálsókn þar sem m.a. er byggt á hugmyndum talsmanns neytenda - sem gæti skv. því rekið slík mál. Reynsla erlendis sýnir að slík lagabreyting myndi stórbæta stöðu neytenda - eins og nefnd eru raunhæf dæmi hérlendis um.
Nánar05. mar. 2009
Handtökur skuldara verði óþarfar og kröfur geti fyrnst endanlega í kjölfar gjaldþrots
Í nýrri umsögn um úrbótatillögur ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda heimilanna er lagt til að einhver takmörk verði við endurnýjun kröfu í kjölfar gjaldþrots. Einnig leggur talsmaður neytenda til að ekki þurfi að handtaka skuldara til þess að ljúka fjárnámsmáli.
Nánar25. feb. 2009
80% gjaldþrota þjónuðu ekki tilgangi fyrir áratug
Í nýlegri umsögn um þrjú frumvörp um greiðsluaðlögun - eða skuldaaðlögun, sem talið er betra heiti - er gerður samanburður á frumvörpunum og í því ljósi lagðar til nokkrar breytingar á annars brýnu og góðu máli, m.a. að sérlög verði sett um málið - sem eigi að heyra undir félagsmálaráðherra.
Nánar11. feb. 2009
Ákall til stjórnvalda um almennar aðgerðir til lausnar efnahagsvanda heimilanna
Í sameiginlegu ákalli talsmanns neytenda og nokkurra almannasamtaka og hagsmunasamtaka er lýst þörf á almennum aðgerðum til lausnar íbúðarskuldavanda neytenda - hvort sem er í verðtryggðum lánum eða gengistryggðum. Þ.m.t. er almenn niðurfærsla höfuðstóls íbúðarveðlána.
Nánar02. feb. 2009
Fyrri ríkisstjórn var „á pari“ miðað við væntingar talsmanns neytenda í upphafi
Í pistli sl. föstudag í tilefni af stjórnarskiptum benti talsmaður neytenda á að sértækar lausnir dugi ekki til þess að taka á íbúðarskuldavanda neytenda - óháð gjaldmiðli. Að teknu tilliti til skammrar setu og ef litið er fram hjá efnahagshruni fær fyrrverandi ríkisstjórn ágæta dóma.
Nánar29. jan. 2009
Leiðbeiningar um aukna neytendavernd barna gefnar út
Í gær gáfu talsmaður neytenda og umboðsmaður barna formlega út ítarlegar leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna þar sem leitast er við að finna gott jafnvægi varðandi mörk við markaðssókn fyrirtækja gagnvart börnum og unglingum.
Nánar31. des. 2008
Raunhæf æru- og neytendavernd sé tryggð á bloggsíðum
Farið hefur verið fram á það við mbl.is að fyrirbyggt verði að nöfn annarra séu notuð við skráningu bloggara og að þeim, sem telja ærumeiðandi ummælum beint að sér, sé gert kleift að sækja rétt sinn fyrir dómi eins og stjórnarskráin áskilur.
Nánar30. des. 2008
Lagt til að tekið verði frá hlutafé í nýjum bönkum vegna taps neytenda
Í bréfi talsmanns neytenda til viðskiptaráðuneytis, þar sem tilkynnt er formlega um vanhæfi hans varðandi peningamarkaðssjóði bankanna, er lagt til að hlutafé verði tekið frá í nýjum bönkum til þess að mæta skaðabótakröfum neytenda vegna hugsanlegra mistaka.
Nánar19. des. 2008
Samantekt lokið á réttarúrræðum neytenda vegna taps í peningamarkaðssjóðum með lista yfir lögmenn og svörum við útistandandi spurningum
Hér er birtur listi lögmanna sem taka að sér mat á réttarstöðu vegna peningamarkaðssjóða og áréttuð möguleg réttarúrræði neytenda. Að fengnum svörum um tryggingar vegna hugsanlegra mistaka og réttarstöðu varðandi skattaívilnun lýkur talsmaður neytenda afskiptum af málefninu vegna fjölskyldutengsla.
Nánar10. des. 2008
Vanskilagjöld á skuldir óheimil og hlutfallskostnaður bannaður frá áramótum
Í umsögn sinni til viðskiptaráðuneytis fagnar talsmaður neytenda því að þar sé staðfest sú túlkun hans á nýjum innheimtulögum að ekki megi leggja hlutfallskostnað á innheimtar skuldir. Þá er lýst ánægju með að áréttað sé í reglugerðinni að svonefnd vanskilagjöld séu óheimil.
Nánar04. des. 2008
Spurt um rétt neytenda á skattaívilnun vegna slita peningamarkaðssjóða
Formleg fyrirspurn hefur verið send ríkisskattstjóra vegna lagaskyldu til þess að ívilna neytendum ef „gjaldþol manns hefur skerst verulega vegna tapa á útistandandi kröfum“ en spurningin vaknaði við athugun talsmanns neytenda á réttarstöðu neytenda vegna slita á peningamarkaðssjóðum.
Nánar03. des. 2008
Drög leiðbeininga um neytendavernd barna til umsagnar fram til jóla
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda birta nú til umsagnar næstu þrjár vikur lokadrög leiðbeininga um aukna neytendavernd barna sem unnið hefur verið að í víðtæku samráði við hagsmunaaðila í nær þrjú ár. Stefnt er að útgáfu 1. janúar nk. eftir að frestur almennings til athugasemda er liðinn.
Nánar02. des. 2008
Viltu forðast erfðabreytt matvæli?
Í talhorninu að þessu sinni fjallaði Helga Margrét Pálsdóttir, matvælafræðingur á Matvælastofnun, um hvað felist í erfðabreyttum matvælum og í hvaða tegundum matvæla og frá hvaða löndum sé helst að búast við slíku - en umdeilt er hvaða áhrif erfðabreytt matvæli hafa á menn og umhverfi.
Nánar24. nóv. 2008
Alþingi fellst tímabundið á tillögu talsmanns neytenda um að afnema mismunun í stimpilgjaldi við endurfjármögnun íbúðarlána
Fram til ársloka 2009 er fallið frá því að mismuna þeim sem endurfjármagna skuldir eftir því hvort endurfjármögnun á sér stað hjá sama lánveitanda eða nýjum. Hingað til hefur hálft gjald verið tekið af endurfjármögnun hjá sama aðila en fullt stimpilgjald ef skipt er um lánveitanda.
Nánar13. nóv. 2008
Mikið spurt um fyrirvara vegna peningamarkaðssjóða
Margir neytendur hafa spurt um hvernig eigi að koma á framfæri fyrirvara, sem birtur var sl. mándag, vegna útgreiðslu úr peningamarkaðssjóðum. Því er svarað hér.
Nánar10. nóv. 2008
Fyrirvari um útgreiðslur úr peningamarkaðssjóðum og boð um fundi með bönkum til frekari upplýsingar
Talsmaður neytenda hefur í samráði við lögfræðinga ýmissa hagsmunaaðila í peningamarkaðssjóðum lagt til fyrirvara fyrir neytendur vegna taps á sjóðunum og boðað til upplýsingafunda með bönkum og rekstrarfélögum í því skyni að greina réttarstöðu neytenda og leggja mat á tiltæk réttarúrræði.
Nánar03. nóv. 2008
Vel sóttur samráðsfundur um réttarstöðu neytenda og annarra vegna peningamarkaðssjóða
Í dag var haldinn óformlegur samráðsfundur hjá talsmanni neytenda meðal lögfræðinga og annarra fulltrúa hagsmunaaðila um réttarstöðu og tiltæk úrræði vegna taps í peningamarkaðssjóðum. Framhald á samráðinu verður kynnt í tölvupósti til áhugasamra lögfræðinga og eftir atvikum hér á heimasíðunni.
Nánar29. okt. 2008
Helstu hagsmunaaðilar í peningamarkaðssjóðum boðnir til samráðs
Talsmaður neytenda hefur ákveðið að bjóða fulltrúum allra hagsmunaaðila vegna taps í peningamarkaðssjóðum og sambærilegum sjóðum til fundar kl. 11 nk. mánudag til skrafs og ráðagerða um réttarstöðu og hugsanleg réttarúrræði - neytenda sem annarra.
Nánar22. okt. 2008
Athygli danskra og breskra yfirvalda vakin á mannréttindabrotum gegn íslenskum neytendum
Talsmaður neytenda hefur vakið athygli sendiráða Danmerkur og Bretlands á mannréttindavernd neytenda gegn mismunun á grundvelli þjóðernis vegna frétta þaðan af brotum gegn þeim. Einnig hefur utanríkisráðuneytinu verið gert viðvart, svo og umboðsmanni neytenda í Danmörku um staðfest tilvik.
Nánar20. okt. 2008
Ekki deila um hver eigi og reki - hugsið um kjör og skilmála neytenda!
Í talhorninu í gær rekur talsmaður neytenda og rökstyður í löngu máli hvers vegna það sé aukaatriði hver eigi og reki starfsemi sem snýr að neytendum; aðalatriðið sé á hvaða kjörum og skilmálum þjónusta eða vara sé boðin.
Nánar17. okt. 2008
Óheimilt að mismuna Íslendingum erlendis
Talsmaður neytenda bregst við mismunun íslenskra neytenda erlendis - eins og hann hefur gert í sambærilegum tilvikum hérlendis. Borið hefur á umfjöllun undanfarið um að neytendum frá Íslandi sé mismunað - vegna þjóðernis í kjölfar fjármálakreppu. Við slíku athæfi kann að liggja refsing.
Nánar16. okt. 2008
Neytendum framvegis ekki synjað um númeraflutning vegna vanskila
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur gefið út nýjar reglur um númera- og þjónustuflutning á sviði fjarskipta. Reglurnar voru unnar í samráði við talsmann neytenda og hagsmunaaðila og tóku gildi í gær. Helsta nýmælið er að nú er réttur neytenda til númeraflutnings skilyrðislaus.
Nánar15. okt. 2008
Upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla
Vegna þeirra erfiðleika sem nú ríkja í íslensku fjármálalífi hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að opna upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla, innanlands sem utan. Þetta kom fram á vef Stjórnarráðsins í gær.
Nánar10. okt. 2008
Upplýsingavefur vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði
Talsmaður neytenda vill vekja athygli á nýuppsettum upplýsingavef vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem félagsmálaráðuneytið hefur haft forgöngu um f.h. ríkisstjórnarinnar.
Nánar10. okt. 2008
Vakin athygli á tiltækum úrræðum fyrir kvíðna neytendur
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er í dag og er af því tilefni bent á sálfræðiráð til neytenda og vakin athygli á nýrri ráðgjafarmiðstöð geðsviðs Landspítala sem verður opnuð í dag.
Nánar10. okt. 2008
Raunheimildir greiðslukorta verða ekki skertar
Talsmaður neytenda vill árétta að engin breyting hefur orðið á virkni greiðslukortakerfa og að raunheimildir neytenda séu ekki skertar samkvæmt upplýsingum forstjóra greiðslukortafyrirtækja. Hefur hann mælst til þess að neytendur séu upplýstir opinberlega í því skyni að forða misskilningi og tjóni.
Nánar09. okt. 2008
Talsmaður neytenda fagnar yfirlýsingu ráðherra um frystingu gengiskörfulána
Rétt í þessu var því lýst yfir á blaðamannafundi forsætis- og viðskiptaráðherra að skoðaðar yrðu leiðir til þess að frysta íbúðarlán neytenda í erlendri mynt vegna ástands á gengismörkuðum. Talsmaður neytenda fagnar þessu og áréttar ósk sína um viðræður til að tryggja hag neytenda í þessu efni.
Nánar09. okt. 2008
Ráð sálfræðings við kreppu og ítrekun á áskorun til heilbrigðisráðherra um jafnræði gagnvart sálfræðiþjónustu
Hér er vísað á ráð sálfræðings um viðbrögð við kreppu og áréttuð afstaða talsmanns neytenda varðandi niðurgreiðslur ríkisins á þjónustu sálfræðinga til jafns við þjónustu geðlækna - sem rakin var ítarlega í pistli í vor.
Nánar07. okt. 2008
Hagur neytenda verði tryggður við yfirtöku á erlendum íbúðarlánum
Talsmaður neytenda hefur óskað eftir því við félagsmálaráðuneytið að rætt verði um leiðir við að létta skulda- eða greiðslubyrði af neytendum við yfirtöku Íbúðalánasjóðs á íbúðarlánum í erlendri mynt - svo sem með festingu gengis íslensku krónunnar í því sambandi.
Nánar06. okt. 2008
Festa þarf gengi íslensku krónunnar í lánssamningum neytenda í tilefni af neyðarlögum
Í opinberri umsögn birtir talsmaður neytenda það mat sitt í tilefni af yfirvofandi neyðarlögum vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði að festa þurfi gengi krónu vegna hagsmuna og réttinda neytenda - bæði sem sparifjáreigenda og skuldara. Ella sé unnt að bera við forsendubresti í lánssamningum.
Nánar06. okt. 2008
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um fulla tryggingu á innistæðum hérlendis
"Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu."
Nánar03. okt. 2008
Lífeyrissjóðir landsmanna langtímafjárfesting
Framkvæmdarstjóri Landssamtaka lífeyrissjóða fer yfir stöðu lífeyrissjóðanna, sem hefur verið mjög sterk vegna mikillar umframávöxtunar undanfarin ár; það hefur í för með sér að skammvinn áföll þurfa ekki fyrirfram að leiða til skerðingar enda þótt útlitið sé mjög dökkt í efnahagsmálum Íslendinga.
Nánar02. okt. 2008
Hvað tryggir Tryggingarsjóður innistæðueigenda og fjárfesta?
Tryggingarsjóður innistæðueigenda og fjárfesta hefur að beiðni talsmanns neytenda tekið saman yfirlit um tryggingarvernd þeirra sem eiga innistæður og verðbréf í íslenskum fjármálastofnunum en eins og fram hefur komið eru innistæður betur tryggðar því markaðsverðmæti verðbréfasjóða er ekki tryggt.
Nánar30. sep. 2008
Bankainnistæður njóta óbeinnar ríkisábyrgðar auk beinna lágmarkstrygginga
Innistæðueigendur njóta frekari verndar en lögbundnar tryggingar gefa til kynna og þurfa sparifjáreigendur því ekki að óttast um sinn hag í kjölfar ríkisvæðingar Glitnis banka. Neytendur, sem lagt hafa sparnað sinn í áhættusamari fjárfestingu með kaupum á hlutabréfum, njóta ekki slíkrar verndar.
Nánar23. sep. 2008
Pix-myndir hafa fallist á tilmæli um að þögn feli ekki í sér samþykki við kaupum skólamynda
Ljósmyndafyrirtækið Pix-myndir hefur fallist á að láta af svonefndri neikvæðri samningsgerð varðandi skólaljósmyndir af grunnskólabörnum og er sú ákvörðun þegar komin til framkvæmda.
Nánar23. sep. 2008
Aðgerðarleysi forráðamanna skólabarna felur ekki í sér samþykki við kaupum skólamynda
Talsmaður neytenda hefur að gefnu tilefni sent Pix-myndum tilmæli um að láta þegar af neikvæðri samningsgerð sem felst í því að líta á þögn sem samþykki. Farið er fram á að tryggt verði að frá og með yfirstandandi skólaári verði aðeins þeir krafðir um greiðslu sem pantað hafa skólamyndir.
Nánar22. sep. 2008
Heilsufæði - matvæli eða lyf?
Í fyrsta gestapistli frá opinberri sérfræðistofnun - Matís ohf. - er fjallað um heilsufæði, helstu flokka þess og virkni, svo og um regluverk - m.a. hvort heilsufæði teljist matvæli eða lyf. Vonast er til þess að áframhald verði á slíku samstarfi við að bera dýrmæta þekkingu á borð fyrir neytendur.
Nánar19. sep. 2008
Fjármálaráðuneyti tekur til nánari skoðunar tillögu um afnám mismunar við endurnýjun skuldar
Fjármálaráðuneytið hefur sent talsmanni neytenda formlegt svar við tillögu frá því fyrr á árinu þar sem hann lagði til afnám lagaákvæðis um stimpilgjöld sem fæli í sér mismunun eftir því hvort skuldari vill endurfjármagna hjá nýjum aðila eða ekki.
Nánar16. sep. 2008
Leiðakerfi neytenda nú starfrækt í hálft ár
Aðsókn hefur verið góð á Leiðakerfi neytenda (www.neytandi.is) en nýting á þessari gagnvirkri vefgátt fyrir neytendur og sérfræðinga mætti vera meiri enda er henni ætlað að létta þeim lífið - og frekar fyrirbyggja óþarfar kvartanir en að fjölga þeim.
Nánar09. sep. 2008
Ekki má synja um símnúmeraflutning vegna skulda neytanda
Í nýrri umsögn talsmanns neytenda til Póst- og fjarskiptastofnunar, sem óskaði álits embættisins á drögum að reglum um númera- og þjónustuflutning, kemur fram að neytendur eigi lögvarinn rétt á slíkum flutningi og hann verði ekki skertur vegna skulda neytanda.
Nánar01. sep. 2008
Hvenær kemur neytendaþáttur í sjónvarpi, Páll?
Opið bréf talsmanns neytenda til úvarpsstjóra í tilefni af því að rétt þrjú ár eru liðin frá því að útvarpsstjóri tók við embætti - en sama dag stakk talsmaður neytenda bréflega upp á samstarfi við að koma neytendamálum á framfæri í sjónvarpi almennings.
Nánar29. ágú. 2008
Neytendur fái virkt og einfalt úrræði vegna verulegra greiðsluörðugleika
Í nýlegri umsögn um drög að frumvarpi til laga um greiðsluaðlögun vegna skulda neytenda áréttar talsmaður neytenda fyrri umsögn til viðskiptaráðuneytis að brýnt sé að slík lög verði sett - en telur fyrirliggjandi drög ekki nógu hagstæð neytendum og gera ráð fyrir of flóknu kerfi.
Nánar18. ágú. 2008
"Bókamúrar" verði lækkaðir með niðurfellingu gjalda ódýrustu pakka
Ef neytandi kaupir bækur, geisladiska eða annað í smáum stíl að utan bætist við vsk. og í öðrum tilvikum tollur. Umsýsla við að reikna vsk. kostar 450 kr. - oft mun hærri fjárhæð en vsk. sjálfur. Úr þessu vill talsmaður neytenda bæta þannig að heim kominn pakki verði mun ódýrari en nú er.
Nánar11. ágú. 2008
Algengar spurningar um hvert neytendur eigi að leita
Eitt algengasta svarið sem talsmaður neytenda gefur neytendum þegar upplýst er um almennar reglur, sem eiga við í hverju tilviki, er að senda skriflega kvörtun - fyrst til seljanda og svo til þess bærs úrlausnaraðila ef þörf er. Nú er það auðvelt með aðstoð Leiðakerfis neytenda á www.neytandi.is.
Nánar06. ágú. 2008
Refsivert að mismuna hinsegin neytendum
Neytendur njóta mannréttinda - þannig að ekki má t.a.m. mismuna þeim vegna kynhneigðar eða annarra tilgreindra ástæðna. Þetta áréttar talsmaður neytenda í tilefni Hinsegin daga sem hófust í dag.
Nánar05. ágú. 2008
Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum bætt við Leiðakerfi neytenda
Fyrir þá sem vilja kæra áfengisauglýsingar til lögreglu er hægt að fara um Leiðakerfi neytenda inn á nýtt kæruform á vefsíðu nýrra Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum.
Nánar01. ágú. 2008
Kæruleið vegna viðlagatryggingar bætt við Leiðakerfi neytenda
Vakin er athygli á að fyrir hendi er kæruleið fyrir þá sem leita til Viðlagatryggingar Íslands um bætur og eru ekki sáttir við niðurstöðu stjórnar að undangengnu sáttaferli sem einnig er boðið upp á.
Nánar30. júl. 2008
Olíufélög boðuð á fundi um verðmyndun gagnvart neytendum
Talsmaður neytenda hefur boðað til sín á fundi fulltrúa olíufélaganna fjögurra, hvers um sig, í byrjun ágúst í því skyni að ræða verðmyndun gagnvart neytendum á bensíni og díselolíu.
Nánar29. júl. 2008
Brugðist við vegna frétta um meintan rasisma veitingahaldara
Nýlega var - öðru sinni - brugðist við með óformlegri ábendingu til rekstraraðila veitingahúss í kjölfar opinberra staðhæfinga um að þjóðerni, litarháttur eða kynþáttur hefði leitt til þess að synjað hefði verið um inngöngu á opinberan samkomustað en slíkt er refsivert, ef sannast.
Nánar01. júl. 2008
Framvegis einnig ensk útgáfa af meginupplýsingum á vefsíðu talsmanns neytenda
Í tilefni af 3ja ára afmæli embættis talsmanns neytenda í dag, 1. júlí 2008, birtast fyrirsagnir frétta og pistla um neytendamál á heimasíðu embættisins frá og með deginum í dag einnig á ensku þannig að fleiri neytendum á Íslandi sé þjónað en þeim sem lesa íslensku.
Nánar16. jún. 2008
Blekkingar í merkingum og markaðssetningu matvæla óheimilar og jafnvel refsiverðar
Talsmaður neytenda rekur gildandi og væntanlegar sérreglur - íslenskar sem yfirþjóðlegar - um merkingar matvæla en þær gilda til viðbótar almennum reglum um að markaðssetning megi ekki vera villandi. Sakamál er ítrasta úrræði ef stjórnsýsluúrræði virka ekki.
Nánar10. jún. 2008
Viðskiptanefnd Alþingis í heimsókn hjá talsmanni neytenda
Leiðakerfi neytenda, sáttamiðlun sýslumanna o.fl. í starfsemi talsmanns neytenda kynnt fyrir viðskiptanefnd Alþingis.
Nánar10. jún. 2008
Þjónustutilskipun ESB getur aukið samkeppni á Íslandi en meta þarf sjálfstætt hvort tryggja þarf réttindi neytenda
Utanríkisráðuneytið hélt í síðustu viku kynningarfund um innleiðingu þjónustutilskipunar ESB sem á að ljúka hér á landi í árslok 2009. Talsmaður neytenda sat fundinn ásamt öðrum fulltrúum hagsmunaaðila og rekur í stórum dráttum tækifæri og álitaefni fyrir neytendur hérlendis.
Nánar06. jún. 2008
Nöfn verslana, sem verðmerkja ekki, verði birt opinberlega
Í umsögn um drög að reglum um verðmerkingar o.fl. leggur talsmaður neytenda til opinbera birtingu nafna fyrirtækja sem formlegt úrræði til viðbótar við viðurlög við brotum gegn skýrri lagaskyldu til verðmerkinga. Einnig eru lögð til takmörk við tíðni verðbreytinga á opnunartíma verslana.
Nánar02. jún. 2008
Vel heppnaðar hringborðsumræður hagsmunaaðila um Neytendavernd barna
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda lengja samráðsferli um væntanlegar reglur um frekari mörk við markaðssókn sem beinist sérstaklega að börnum.
Nánar20. maí 2008
Aukin neytendavernd barna í burðarliðnum
Hagsmunaaðilar koma sér saman um leiðbeinandi reglur sem ætlað er að vernda börn fyrir markaðssókn. Reglurnar taka til almennrar markaðssóknar og munu umboðsmaður barna, talsmaður neytenda og aðrir hagsmunaaðilar gæta þess að leiðbeiningunum sé fylgt.
Nánar19. maí 2008
Tilmæli um tilkynningar verðhækkana áréttuð
Talsmaður neytenda og Síminn eru sammála um hvernig standa á að tilkynningu verðhækkana framvegis en um viku vantaði upp á fyrirvara á tilkynningu Símans að þessu sinni.
Nánar14. maí 2008
Farið yfir tilmæli um tilkynningar verðhækkana
Talsmaður neytenda og Vodafone eru sammála um hvernig standa á að tilkynningu verðhækkana framvegis, svo sem að verð í krónum eftir breytingu verði birt með sama fyrirvara og tilkynning um hlutfallslega hækkun.
Nánar13. maí 2008
Til athugunar hvort símafyrirtæki hafi fylgt tilmælum
Talsmaður neytenda hefur boðað fulltrúa Símans og Vodafone á fundi í vikunni til þess að fara yfir hvort og þá hvernig og hvenær nýleg tilmæli um tilkynningar til neytenda um verðhækkanir hafi verið eða verði uppfyllt.
Nánar06. maí 2008
Hæstiréttur heimilar mismunun neytenda sem löggjafi felur ráðherra
Talsmaður neytenda gagnrýnir í nýjum pistli niðurstöðu og röksemdir handhafa dómsvalds, framkvæmdarvalds og löggjafarvalds um að mismuna neytendum eftir meðferðarúrræðum með því að leyfa að aðeins sé samið við geðlækna um niðurgreiðslur en ekki sálfræðinga.
Nánar29. apr. 2008
Aðrir kostir metnir í þágu neytenda vegna fjölpósts og fríblaða
Ekki er ásættanlegt fyrir neytendur að þurfa að sækja mismunandi miða, á fleiri en einn stað og endurnýja reglulega til þess að þeir geti nýtt rétt sinn til þess að afþakka fjölpóst og fríblöð. Talsmaður neytenda gagnrýnir Íslandspóst og metur aðra valkosti.
Nánar25. apr. 2008
Breskir bankar tapa prófmáli um FIT-kostnað
Milljónir breskra neytenda eiga hagsmuni í fyrsta áfanga prófmáls sem breskir bankar töpuðu í gær varðandi lögsögu breska neytendaeftirlitsins um (ó)réttmæti yfirdráttargjalda. Málið kann að hafa þýðingu fyrir íslenska neytendur en talsmaður neytenda hefur haft það til skoðunar.
Nánar24. apr. 2008
Fleiri kaupendur á vörum fyrir börn heldur en íbúar í Noregi!
Ef lögð eru saman börn, (stjúp)foreldrar og (stjúp)afar og ömmur er með góðum vilja hægt að reikna að norskir kaupendur á vörum fyrir börn eru fleiri en neytendur í landinu. Þetta kom fram í erindi á ráðstefnu í Noregi í dag um "Child and Teen Consumption"
Nánar24. apr. 2008
Börn sem merki um velmegun foreldra
Á ráðstefnu um "Child and Teen Consumption" kom m.a. fram í dag að börn eru í vaxandi mæli ekki aðeins ómeðvituð birtingarmynd - heldur meðvitað sýnidæmi um - neyslumynstur foreldra, lífsstíl og þjóðfélagsstöðu.
Nánar21. apr. 2008
Sérfræðingur varar neytendur við lyfjafölsunum og bendir stjórnvöldum á úrlausnir
Í fyrsta gestapistli utanaðkomandi sérfræðings, dr. Ingunnar Björnsdóttur, er að finna innlegg í sígilda umræðu um hversu þungt öryggi neytenda og gæði vöru og þjónustu á að vega á móti opnu umhverfi og meiri samkeppni sem getur stuðlað að lægra verði til neytenda.
Nánar18. apr. 2008
Viðræður í lok apríl um mörk við markaðssókn sem beinist að börnum
Tíu hagsmunasamtökum atvinnurekenda og sjónvarpsstöðvum hafa verið send til viðræðu drög samkomulags eða leiðbeiningarreglna varðandi frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum.
Nánar17. apr. 2008
Ný málamiðlunartillaga um rétt til þess að afþakka fjölpóst eða fríblöð
Talsmaður neytenda vonast enn eftir samkomulagi í fjölpósts- og fríblaðanefnd PFS sem fundaði í gær enda taldi hann nýja málamiðlunartillögu ásættanlega að því er varðar rétt neytenda til þess að afþakka fjölpóst eða fríblöð - eða hvort tveggja.
Nánar15. apr. 2008
Neytendur geti einnig afþakkað annað hvort fjölpóst eða fríblöð
Talsmaður neytenda gerir ítarlega grein fyrir rétti neytenda til þess að afþakka fjölpóst - og eftir atvikum fríblöð - eða hvort tveggja. Hann rekur lagasjónarmið og ýmsar leiðir að markinu en hafnar þeirri leið að neytendum sé stillt upp við vegg: allt eða ekkert!
Nánar11. apr. 2008
Leiðakerfi neytenda kynnt í sjónvarpi og fyrir lífsleiknikennurum
Í sjónvarpsviðtali á ÍNN, sem hér er hægt að sjá, kynnti talsmaður neytenda í gær Leiðakerfi neytenda og ræddi fleiri neytendamál svo sem mikilvægi verðmerkinga og lítt þekkt úrræði til sáttamiðlunar hjá sýslumönnum.
Nánar09. apr. 2008
Símafyrirtæki fallast á að tilkynna neytendum framvegis sérstaklega um verðhækkanir
Síminn og Vodafone hafa fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að tilkynna framvegis öllum neytendum fyrirfram um verðhækkanir og aðrar breytingar á skilmálum, neytendum í óhag. Fresturinn, sem neytendur eiga að hafa til þess að bregðast við, er einn mánuður.
Nánar27. mar. 2008
Verðmerkingar - og verðmerkingareftirlit - aldrei mikilvægara en nú
Verðmerkingar eru ekki bara lagaskylda, heldur forsenda verðlagseftirlits - neytenda sjálfra og annarra. Úr misbrestum þarf að bæta að mati talsmanns neytenda.
Nánar27. mar. 2008
Húseigendur beri ekki kostnað af óumbeðnum pappír
Á fundi hjá nefnd umhverfisráðherra í gær rökstuddi talsmaður neytenda þá afstöðu að framleiðendur og þar með endanotendur ættu að bera kostnað af förgun óumbeðins pappírs - en ekki húseigendur. Þá var gagnrýnt að neytendur ættu ekki fulltrúa í nefndinni.
Nánar26. mar. 2008
Samtök launafólks kynna Leiðakerfi neytenda
Launafólk er neytendur - heildarsamtök þeirra kynna Leiðakerfi neytenda (www.neytandi.is)
Nánar19. mar. 2008
Talsmaður neytenda bloggar um neytendamál
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur ákveðið að blogga í því skyni að ýta frekar undir umræðu um neytendamál - óháð því hvort fjölmiðlar sýni neytendamálum áhuga.
Nánar18. mar. 2008
Líf neytenda gert léttara með Leiðakerfi neytenda
Nú geta neytendur gætt réttar síns á gagnvirkan hátt - hvenær og hvaðan sem er - á vefgáttinni www.neytandi.is
Nánar13. mar. 2008
Neytendur þurfa ekki að finna upp hjólið - úrræðin eru til
Á alþjóðadegi neytenda á morgun, föstudag, kl. 11 í Þjóðmenningarhúsinu kynnir talsmaður neytenda í samstarfi við tvo ráðherra - matvælamála og neytendamála - þrjú brýn mál sem aðeins þarf að innleiða og virkja, norrænt hollustumerki, sáttamiðlun í neytendamálum og vefgáttina Leiðakerfi neytenda
Nánar13. mar. 2008
Besta neytendaátak í Evrópu að finna á www.talsmadur.is
Neytendaleikurinn Galactor, sem norræna ráðherranefndin styrkti og talsmaður neytenda fékk þýddan á íslensku, hefur verið valinn af framkvæmdarstjórn ESB sem besta evrópska átakið í þágu neytenda í keppni milli 27 neytendaherferða. Leikinn má finna á vefsíðu talsmanns neytenda: www.talsmadur.is
Nánar26. feb. 2008
Heilsufullyrðingar, sem ekki eru sérstaklega leyfðar, eru bannaðar
Á fróðlegum umræðufundi Matís með fjölmörgum hagsmunaðilum í dag var kynnt norræn rannsókn um heilsufullyrðingar - og skilning og afstöðu neytenda til þeirra - í tilefni af væntanlegri samræmingu Evrópureglna um þetta brýna málefni.
Nánar25. feb. 2008
Fulltrúi neytenda innanhúss - á ábyrgð og kostnað fyrirtækja í stað skattborgara
Talsmaður neytenda telur rétt að fyrirtæki axli ábyrgð sína gagnvart neytendum með því að tilnefna sérstakan fulltrúa neytenda innanhúss í stað þess að ábyrgðin á eftirliti með réttindum neytenda sé lögð á hið opinbera eingöngu.
Nánar22. feb. 2008
Afnuminn verði mismunur við endurfjármögnun íbúðarlána
Talsmaður neytenda hefur lagt til við fjármálaráðherra að afnumið verði lagaákvæði sem kveður á um mismunandi stimpilgjald eftir því hver endurfjármagnar fyrirliggjandi skuld eða því breytt þannig að jafnræði sé og hvati til samkeppni.
Nánar15. feb. 2008
Dregið verði úr markaðssókn gagnvart börnum, einkum á óhollustu
Í nýlegri umsögn umboðsmanns barna og talsmanns neytenda varðandi auglýsingar á óhollri matvöru gagnvart börnum er vakin athygli á því að embættin hafi undanfarin 2 ár unnið að samkomulagi við markaðsaðila um lausn málsins í samráði við tugi hagsmunaaðila og sérfræðinga.
Nánar12. feb. 2008
Neytandi geti líka afþakkað fjölpóst í fríblöðum
Talsmaður neytenda telur rétt að reyna til þrautar að ná samkomulagi um hvernig - ekki hvort - neytendur geti afþakkað fjölpóst og eftir atvikum fríblöð. Lagasetning er þrautalendingin en best er að semja um að neytendur geti einnig afþakkað fjölpóst sem skotið er inn í fríblöð.
Nánar11. feb. 2008
Neytandi tryggður fyrir allt að um 2 millj. kr. hjá hverjum banka
Neytendur njóta að lágmarki lögbundinna trygginga gagnvart tapi á innistæðu og verðbréfaeign sem nemur rúmlega 2 millj. kr. hjá hverjum banka.
Nánar08. feb. 2008
Olíufélögin bótaskyld vegna samráðs - en hvað með bætur neytenda?
Hæstiréttur hefur í fyrsta efnisdómi um skaðabótaskyldu olíufélaganna vegna ólögmæts samráðs kveðið á um bótaábyrgð þeirra, gagnvart opinberum aðilum. Sama á væntanlega við um bótarétt neytenda - ef þeir eiga kvittanir til að sanna viðskipti. Annarri bótaskyldu verður vart komið fram fyrir dómi.
Nánar07. feb. 2008
Veitingamenn bera ábyrgðina - gagnvart reykingafólki og reyklausum
Talsmaður neytenda áréttar það mat sitt að hvorki stjórnvöld né neytendur séu ábyrg fyrir framkvæmd - eða brotum - á reykingabanni á veitinga- og skemmtistöðum. Þá ábyrgð bera veitingamenn, rekstrarlega gagnvart reykingafólki og lagalega gagnvart reyklausum.
Nánar08. jan. 2008
Endurgreiðslukröfur frá neytendum hugsanlegar ef seðilgjöld verða ekki afnumin
Talsmaður neytenda fagnar nær fullum áfangasigri í að jafna réttindi og skyldur í samskiptum neytenda við fjármálafyrirtæki og önnur fyrirtæki þar sem seðilgjöldum verður m.a. útrýmt og svonefnd FIT-gjöld verði bundin við raunkostnað eins og talsmaður neytenda hafði unnið að.
Nánar08. jan. 2008
Hvað er líkt með gjöfum fyrirtækja og Trójuhestinum?
Talsmaður neytenda telur málsháttinn „æ sér gjöf til gjalda“ eiga við um gjafir fyrirtækja - bæði í viðskiptasamböndum, þar sem gjaldið er umsamið, en því miður einnig þar sem slíku sambandi er ekki til að dreifa.
Nánar29. nóv. 2007
Frumvarp til jafnréttislaga áréttar meðábyrgð fjölmiðla
Talsmaður neytenda telur frumvarp til nýrra heildarlaga um jafnrétti kynjanna til bóta fyrir neytendur að því leyti sem það snertir þá enda staðfesti það meðábyrgð fjölmiðla og annarra miðla á brotum gegn lögvörðum rétti neytenda.
Nánar27. nóv. 2007
Hagsmunir neytenda af samkeppni í tryggingum vógu þyngra
Hvort er mikilvægara fyrir neytendur - verð eða gæði? Talsmaður neytenda þurfti í gær að velja milli ítrustu krafna um persónuvernd í tryggingastarfsemi og möguleika á samkeppni og lægra verði.
Nánar23. nóv. 2007
Skýrari framsetning umsagna m.t.t. hvort þær eru neytendum til hagsbóta eður ei
Talsmaður neytenda notast framvegis við fimm stiga skala í heildarmati út frá sjónarhóli neytenda í umsögnum sínum um þingmál og drög að reglum sem varða neytendur - í því skyni að einfalda ráðgjöf til þings og stjórnvalda og gera mat á flóknum málum gagnsærra.
Nánar22. nóv. 2007
Er eðlilegt að fjárkröfu á hendur neytanda sé viðhaldið endalaust?
Talsmaður neytenda telur heildarendurskoðun 100 ára gamalla fyrningarlaga til bóta fyrir neytendur en efast m.a. um réttmæti þess að halda megi við kröfu endalaust.
Nánar21. nóv. 2007
Samningar í bígerð um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru
Ruslfæði mótar ekki aðeins neysluvenjur barna til framtíðar heldur eyðileggur það matarsmekk fullorðinna en umboðsmaður barna og talsmaður neytenda hafa undanfarið unnið að því að takmarka auglýsingar á óhollri matvöru gagnvart börnum.
Nánar20. nóv. 2007
Neikvæð samningsgerð á nú að vera úr sögunni í íslenskum ferðageira
Íslenski ferðamálageirinn hefur bætt úr ýmsum misfellum eftir tilmæli talsmanns neytenda en víða erlendis er enn brotið gegn flugfarþegum og er birting á nöfnum fyrirtækja eitt úrræðið. Kannað verður hvort eitthvað stendur út af gagnvart neytendum hérlendis.
Nánar16. nóv. 2007
Ábyrgð er eitt - kvörtunarfrestur annað
Nýverið voru stjórnendur fyrirtækis á neytendamarkaði kvaddir á fund talsmanns neytenda í því skyni að leiðbeina þeim um réttindi neytenda.
Nánar13. nóv. 2007
Ekki má mismuna neytendum eftir þjóðerni
Samkvæmt hegningarlögum má ekki draga hóp útlendinga í dilka vegna framkomu sumra landa þeirra en sjálfsagt er að bregðast við áreiti tiltekinna einstaklinga með útilokun frá skemmtistað eða þvíumlíkt.
Nánar08. nóv. 2007
Nýr norrænn neytendafræðsluleikur fyrir börn
Kominn er á netið nýr tölvuleikur sem ætlað er að fræða unglinga um vandamál af sviði neytendamála og ýmis réttindi neytenda. Norræna ráðherranefndin styrkti gerð leiksins og talsmaður neytenda hefur stuðlað að íslensku útgáfunni en meðal hlutverka hans er að kynna réttarreglur um neytendamál.
Nánar07. nóv. 2007
Stuðlað að samræmi kassaverðs og hilluverðs
SVÞ hafa fallist á tilmæli talsmanns neytenda um að neytendur fái vörustrimil um leið og greiðslukvittun til að tryggja samræmi milli kassaverðs og hilluverðs. Eru þetta fyrstu viðbrögð talsmanns neytenda við fréttum undanfarna daga um misræmi og misfellur í matvöruverslunum.
Nánar16. okt. 2007
Hæstiréttur Noregs staðfestir að 5 ára kvörtunarfrestur taki til GSM
Í nýlegum dómi Hæstaréttar Noregs kemur fram að 5 ára kvörtunarfrestur samkvæmt norskri - og íslenskri - neytendalöggjöf taki einnig til GSM-síma en sams konar regla gildir á Íslandi um hluti sem „er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti“.
Nánar03. okt. 2007
Iceland Express hefur nú fallist á að láta af því að merkja fyrirfram í valreit fyrir forfallagjald
Þögn er ekki sama og samþykki og er ekki heimilt að beita svonefndri neikvæðri samningsgerð til þess að stofna til viðskipta gagnvart neytendum. Talsmaður neytenda mun eftir sem áður bregðast við slíku ef af fréttist.
Nánar03. okt. 2007
Hugsanlegt norrænt hollustumerki gæti auðveldað vernd barna
Á norrænni neytendaráðstefnu í Finnlandi var í dag m.a. fjallað um hollustumerki og fleiri merkingar í því skyni að upplýsa neytendur. Talsmaður neytenda er á ráðstefnunni og tekur mið af rannsóknum og reynslu varðandi hollustumerki í því skyni að setja mörk við markaðssókn gagnvart börnum.
Nánar03. okt. 2007
Neytendur geti framvegis afþakkað fríblöð og fjölpóst
Póst- og fjarskiptastofnun hefur skrifað talsmanni neytenda og ýmsum hagsmunaðilum í því skyni að ná samkomulagi um að hugsanlegir viðtakendur fjölpósts og fríblaða geti afþakkað þessar sendingar. Talsmaður neytenda fagnar frumkvæðinu.
Nánar02. okt. 2007
Beðið verði almennra aðgerða til lækkunar lyfjaverðs
Óformlegum vinnuhópi um innkaupasamband lyfja fyrir aldraða og öryrkja eða aðrar leiðir til þess að lækka lyfjaverð hefur verið tilkynnt að rétt sé að bíða almennra aðgerða af hálfu heilbrigðisráðherra til lækkunar lyfjaverðs fremur en að leita sértækra leiða.
Nánar01. okt. 2007
Neytendur eiga ekki lögvarinn rétt á að versla á íslensku
Samkvæmt pistli í talhorninu taka sett lög ekki beint á spurningunni og virðast ekki kveða á um að íslenska sé almennt viðskiptamál þó að hún sé áskilin í ýmsum tilvikum. Samkeppnislögmálin geta hins vegar veitt verslunarrekendum aðhald til þess að standa undir ábyrgð sinni á góðri þjónustu.
Nánar25. sep. 2007
Ritstjórar prentmiðla eru ábyrgir fyrir ómerktum áfengisauglýsingum
Að gefnu tilefni áréttar talsmaður neytenda lagareglur og fordæmi sem leiða til þess að ritstjórar prentmiðla séu ábyrgir fyrir auglýsingum sem brjóta í bága við bann við áfengisauglýsingum - þ.e. ef auglýsandi er ekki nafngreindur í auglýsingu.
Nánar21. sep. 2007
Brúuð gjá milli lagalegra réttinda neytenda og raunverulegrar stöðu þeirra
Talsmaður neytenda hefur samið við Outcome hugbúnað um að hanna tölvukerfi fyrir Leiðakerfi neytenda til þess að auðvelda neytendum á gagnvirkan hátt að nálgast tiltækar upplýsingar um réttindi sín, kvarta til söluaðila ef ástæða þykir til og eftir atvikum leita til kvörtunarnefnda eða annarra sem ...
Nánar19. sep. 2007
Farið yfir meginreglur neytendaréttar með starfsfólki tryggingafélaga
Í dag fór talsmaður neytenda yfir tryggingamál frá sjónarhóli neytenda fyrir starfsfólk tryggingafélaga. M.a. var áréttuð meginregla um að peningakröfur stofnist ekki sjálfkrafa heldur þurfi neytendur að samþykkja ný viðskipti. Þá stofnist kröfur á hendur þeim ýmist með beinum eða óbeinum samningi.
Nánar18. sep. 2007
„Gullna hliðinu“ lokað að sinni
Í kjölfar gagnrýni talsmanns neytenda o.fl. á sérmeðferð í flugstöðinni í Keflavík hvað varðar vopnaleit hefur verið ákveðið að hætta að sinni að bjóða vildarfarþegum upp á hraðari vopnaleit í sérstöku hliði. Kemur því ekki til formlegra afskipta af hálfu talsmanns neytenda, í bili a.m.k.
Nánar14. sep. 2007
Aðeins hollustuvörum verði haldið að börnum
Verslunaraðilar hvetja til aukinnar neyslu á hollri matvöru - sem rímar vel við yfirstandandi samráðsferli umboðsmanns barna og talsmanns neytenda um að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum, svo sem varðandi óholl matvæli.
Nánar04. sep. 2007
Fallið frá formlegum tilmælum um FIT-kostnað að sinni
Talsmaður neytenda hefur ákveðið að gefa ekki að sinni út formleg tilmæli til banka og sparisjóða varðandi FIT-kostnað eins og ráðgert hafði verið en fer þó til bráðabirgða fram á að tryggt verði að neytendur séu upplýstir um viðbrögð banka og sparisjóða við yfirdrætti.
Nánar27. ágú. 2007
Neytendum gert að muna of mörg leyninúmer
Í gestapistli veltir Ian Watson, í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, upp þeirri spurningu hvort eðlilegt sé að neytendum sé gert að samþykkja skilmála um að þeir beri ábyrgð á ráðstöfunum sem gerðar eru með réttu leyninúmeri. Bendir Ian á vandann við að leggja tugi leyninúmera á minnið.
Nánar24. ágú. 2007
Iceland Express fer ekki að tilmælum gegn forvali aukaþjónustu
Flugfélagið Iceland Express ehf. hefur neitað að verða við tilmælum um að neytendur velji sjálfir sérstaklega hvort þeir vilji greiða forfallagjald. Aukagjöld samkvæmt forvali fela í sér neikvæða samningsgerð - sem er að mati talsmanns neytenda óheimil.
Nánar22. ágú. 2007
Úttekt á gjaldtöku fjármálafyrirtækja fyrir þjónustu og rafræn greiðslukerfi
Viðskiptaráðherra skipar starfshóp um gjaldtöku fjármálafyrirtækja fyrir þjónustu og rafræn greiðslukerfi. Talsmaður neytenda á sæti í starfshópnum.
Nánar21. ágú. 2007
Sumarhúsaeigendur njóti forleiguréttar að lóð undir sumarhús
Í umsögn um drög að lagafrumvarpi varðandi réttarstöðu í frístundabyggðum er bent á að þar sé ekki tekið nægjanlegt tillit til lóðarleigutaka sem séu í erfiðri stöðu við lok leigutíma. Talsmaður neytenda leggur til úrbætur á borð við forleigurétt og gerðardóm.
Nánar13. ágú. 2007
Viðgengst mismunun gagnvart neytendum eftir kynhneigð?
Í talhorninu var um helgina í tilefni Hinsegin daga fjallað um hvort mismuna mætti neytendum vegna kynhneigðar eða sambærilegra ástæðna.
Nánar11. ágú. 2007
Forfallagjald - eða ekki?
Í pistli í talhorninu er - að gefnu tilefni - fjallað um mismunandi inntak forfallagjalda og ýmis konar trygginga vegna ferðalga.
Nánar08. ágú. 2007
Viðræður við banka og sparisjóði um úrbætur á FIT-kostnaði
Samtök fjármálafyrirtækja hafa fallist á að ræða við talsmann neytenda um úrbætur á viðbrögðum þegar neytendur fara yfir á reikningi.
Nánar23. júl. 2007
Alsamræming neytendaréttar líklega ekki alvarleg fyrir íslenska neytendur
Í gestapistli fjallar Liselotte Widing um þýðıngu nýrrar stefnumörkunar ESB fyrır íslenska neytendur og víkur m.a. að álitamálinu um alsamræmingu eða lágmarkssamræmingu neytendaréttar.
Nánar22. jún. 2007
Viðbótarþjónusta, svo sem forfallagjöld, við netsölu flugferða ekki sjálfgefin
Send hafa verið tilmæli talsmanns neytenda varðandi netsölu flugferða um að hætt verði að fylla út fyrirfram í valreiti fyrir viðbótarþjónustu á borð við forfallagjöld - sem ekki allir neytendur vilja eða þurfa. Byggt er á því að þögn sé ekki sama og samþykki og að fyrirbyggja þurfi tvítryggingu.
Nánar20. jún. 2007
Rætt um möguleika á að takmarka auglýsingar í skólum og öðrum stofnunum
Á fundi með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag var rætt um ýmsa þjónustu og eftirlit sem sveitarfélög standa fyrir gagnvart neytendum og hugsanlega snertifleti við embætti talsmanns neytenda. Einkum var rætt um hvernig sporna mætti við markaðssókn gagnvart börnum í skólum.
Nánar15. jún. 2007
Talsmaður neytenda í heimsókn á Akureyri
Í fyrstu heimsókn talsmanns neytenda í hérað var m.a. rætt við heimamenn um sáttamiðlun í neytendamálum og leiðir til þess að sporna við markaðssókn sem beinist að börnum.
Nánar13. jún. 2007
Góðar viðtökur við samráði um frekari mörk við markaðssókn gagnvart börnum
Undanfarna daga hafa hefur hagsmunasamtökum atvinnurekenda og sjónvarpsstöðvum verið kynnt fyrirhugað samráðsferli talsmanns neytenda og umboðsmanns barna við aðila á markaði, almannasamtök, stjórnsýsluaðila o.fl. í því skyni að ná sátt um hvar mörk í neytendavernd barna eigi að vera.
Nánar08. jún. 2007
Viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson í heimsókn hjá talsmanni neytenda
Á fundi nýs ráðherra neytendamála með talsmanni neytenda var m.a. upplýst um væntanlegt Leiðakerfi neytenda á vegum talsmanns neytenda auk þess sem rætt var um viðleitni talsmanns neytenda og umboðsmanns barna til að setja mörk við markaðssókn sem beinist að börnum.
Nánar07. jún. 2007
Ekkert óháð opinbert eftirlit með hættu af heitu vatni
Í tilefni af fréttum undanfarið um brotalamir í sambandi við hættuna af heitu vatni má árétta tillögu talsmanns neytenda um að sett verði á fót óháð opinbert eftirlit með því.
Nánar01. jún. 2007
Reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum og lögheimil frávik
Talsmaður neytenda rekur hvar má nú reykja - og hvar ekki - á veitinga- og skemmtistöðum um leið og meginreglu um reykingabann er fagnað enda bæði tryggðir hagsmunir neytenda, sem ekki reykja, og tekið hæfilegt tillit til þeirra, sem reykja.
Nánar21. maí 2007
Áskoranir nýrrar ríkisstjórnar í neytendamálum
Talsmaður neytenda birtir mat sitt á helstu áskorunum í neytendamálum sem ný ríkisstjórn stendur frammi fyrir - þ.e. lög um hópmálsókn, lög um íbúðarlán og innheimtustarfsemi og bættir möguleikar á verðsamanburði.
Nánar11. maí 2007
Iceland Express hefur fallist á tilmæli varðandi „gjöld“ og fengið lokafrest til að framkvæma þau
Um leið og Iceland Express var gefinn vikufrestur til þess að verða við tilmælum, sem félagið hefur fallist á, var tilkynnt að tekið yrði til athugunar hvort taka svonefndra gjalda hefði falið í sér brot gegn hagsmunum og réttindum neytenda.
Nánar09. maí 2007
Hvað segja fulltrúar stjórnmálaflokkanna um neytendamál?
Fimm fulltrúar fjögurra stærstu flokkanna þáðu boð talsmanns neytenda um að fjalla um neytendamál í aðdraganda þingkosninga. Hver eru brýnustu neytendamálin?
Nánar07. maí 2007
Þriðja neytendabyltingin
Í gestapistli sínum fjallar Ian Watson, fulltrúi í ráðgjafarráði talsmanns neytenda, um forsendu þess að almennt verðlag hérlendis lækki - þ.e. að eigin innflutningur neytenda verði raunhæfur valkostur.
Nánar04. maí 2007
Greiðslukort, innheimta og lyf kalla á sérstaka athygli vegna neytenda
Pétur H. Blöndal þingmaður rökstyður almennt gildi neytendaverndar og sérstaka þörf hennar við aðstæður þar sem val neytenda er takmarkað. Er Pétur síðasti gestapenninn að sinni úr hópi forystumanna í stjórnmálum í því skyni að vekja máls á neytendamálum fyrir alþingiskosningar.
Nánar25. apr. 2007
Bankar auglýsi vaxtakjör en ekki hve mjög þeir elski land og þjóð
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, hvetur í gestapistli sínum til þess að vörn verði snúið í sókn gegn óviðkomandi auglýsingum - sem eigi að snúast um kjarna málsins, þ.e. þá þjónustu og vöru sem í boði sé.
Nánar18. apr. 2007
Utanríkisráðherra vill aukna fríverslun með landbúnaðarafurðir
Í þriðja gestapistli stjórnmálamanna um neytendamál í aðdraganda þingkosninga fjallar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra um lækkun aðflutningsgjalda á landbúnaðarafurðum. Víkur hún einnig að sérstökum hagsmunum neytenda á landsbyggðinni af jöfnu verðlagi á nauðsynjum.
Nánar17. apr. 2007
Áhrif sífelldra tilboða eru slæm fyrir neytendur
Í tilefni umræðu undanfarið um lögmæti og réttmæti tilboða fjallaði talsmaður neytenda nýlega um skaðleg áhrif sýndarmennsku á því sviði og rökstuddi að slík háttsemi drægi úr samkeppni og verðskyni neytenda. Sjá nánar pistilinn: „Tilboð“ - lögleg en siðlaus?
Nánar11. apr. 2007
Seljendur fasteigna verða upplýstir um hugsanleg brot gegn hagsmunum sínum og réttindum
Opinber eftirlitsnefnd með fasteignasölum hefur fallist á ábendingu talsmanns neytenda þess efnis að þeir neytendur, sem eiga í hlut, verði upplýstir um hugsanleg brot gegn hagsmunum sínum og réttindum. Tilefnið var að milligöngumaður um sölu fasteigna hafði óeðlilegra hagsmuna að gæta.
Nánar04. apr. 2007
Icelandair fellst á tilmæli um skilyrði fyrir notkun hugtaksins „gjöld“ á flugfarþega
Icelandair hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að nefna ekki hluta heildarverðs „gjöld“ nema um sé að ræða annað hvort valkvæða aukaþjónustu fyrir flugfarþega eða gjöld sem skylt er að greiða í hlutfalli við fjölda farþega.
Nánar03. apr. 2007
Fyrirtæki bera sönnunarbyrði ef vafi leikur á efni samnings
Í dómi frá í gær er staðfest að fyrirtæki ber ríkari ábyrgð á því að tryggja sér skriflega sönnun um efni samnings við neytanda. Annars er réttmætur vafi túlkaður neytanda í hag - einkum um íþyngjandi ákvæði. Úrslitum réð að neytandinn fékk ekki afrit samnings þar sem hakað var við einkasölu.
Nánar02. apr. 2007
Landbúnaðarráðherra telur samkeppni við innfluttar afurðir óhjákvæmilega
Í gestapistli sínum í talhorninu segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra "óhjákvæmilegt að íslenskur landbúnaður mun þurfa að keppa við innfluttar afurðir í meira mæli en áður hefur þekkst. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær."
Nánar29. mar. 2007
Iðnaðarmönnum óheimilt að rukka einhliða aksturs- og tækjagjald
Í nýlegum dómi er staðfest að iðnaðarmanni sé óheimilt að bæta vsk. ofan á tilboð nema neytandi hafi vitað af því að hann væri ekki innifalinn. Einnig er hafnað akstursgjaldi og verkfæragjaldi sem reynt var að bæta við.
Nánar20. mar. 2007
Viðgengst kynjamismunun gagnvart neytendum?
Í talhorninu að þessu sinni spyr talsmaður neytenda hvort mannréttindi gildi fyrir neytendur og veltir einkum fyrir sér hvort neytendur verði fyrir mismunun sem byggist á kynferði.
Nánar16. mar. 2007
Reykjavíkurborg fellst á endurskoðun þjónustugjalds og frekari kynningu þess framvegis
Talsmaður neytenda hefur gefið út tilmæli til Reykjavíkurborgar um að endurskoða grundvöll þjónustugjalds í íbúðum fyrir aldraða hjá Félagsbústöðum hf., kynna það betur fyrir umsækjendum og afla framvegis upplýsts samþykkis íbúa fyrir gjaldinu. Borgin hefur fallist á tilmælin.
Nánar16. mar. 2007
Tekið undir þörf á sérreglum um koffeindrykki fyrir börn
Í umsögn um drög að breytingu á reglugerð um íblöndun bætiefna í matvæli tekur talsmaður neytenda undir þörf á því að sérmerkja drykki með koffeini vegna barna og ungmenna.
Nánar14. mar. 2007
Neytendur fá brátt rétt á að vita um erfðabreytt matvæli
Í umsögn um drög að reglugerð umhverfisráðherra um merkingu erfðabreyttra matvæla tekur talsmaður neytenda undir þörf á slíkum reglum en spyr um grænmetisætur, veitingasölur og virk viðurlög.
Nánar12. mar. 2007
Samfylkingin vill virkara neytendaeftirlit
Í grein sinni í talhorninu í gær - Er ósýnilega höndin fingurbrotin? - segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, að efla þurfi virkt eftirlit til verndar neytendum.
Nánar09. mar. 2007
Munu markaðsöflin reyna að sniðganga lög um fjármál stjórnmálaflokka?
Áhrifastaða neytenda gagnvart stjórnmálaflokkum eflist - ekki vegna væntanlegra þingkosninga heldur vegna þess að um áramótin tóku gildi lög um fjármál stjórnmálasamtaka o.fl. Hér er nefnt dæmi um sniðgöngutilraun frá Danmörku sem varast þarf hérlendis.
Nánar08. mar. 2007
Ný upplýsingaleið fyrir neytendur opnuð í dag
Á UT-deginum verður í dag opnuð vefgáttin island.is þar sem m.a. verður hægt að fá upplýsingar um neytendamál en síðar verður í tengslum við hana sett á fót gagnvirkt „Leiðakerfi neytenda“ á vegum talsmanns neytenda.
Nánar06. mar. 2007
Athugun á málsmeðferð við gjaldskrárhækkanir tryggingafélaga
Talsmaður neytenda óskar eftir upplýsingum um hvernig neytendum er gefinn kostur á að taka afstöðu til iðgjaldahækkana af hálfu vátryggingafélaga.
Nánar06. mar. 2007
Almennir starfsmenn beri ekki refsiábyrgð á samkeppnisbrotum
Í umsögn sinni um frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum hvetur talsmaður neytenda til þess að frumvarpið verði samþykkt en bendir á að það kunni að stuðla að virkari viðurlögum ef aðeins helstu stjórnendur beri refsiábyrgð auk fulltrúa í stjórn.
Nánar05. mar. 2007
Lagst gegn útboði á tollkvótum
Sem gestapenni í talhorninu fjallar formaður Neytendasamtakanna, Jóhannes Gunnarsson, m.a. um hvernig lækkanir opinberra gjalda á matvöru geti skilað sér til neytenda og áréttar andstöðu við útboð tollkvóta á landbúnaðarvöru.
Nánar02. mar. 2007
Seljendur fasteigna verði upplýstir um hugsanleg brot
Talsmaður neytenda hefur farið þess á leit við opinbera eftirlitsnefnd að neytendur sem eiga í hlut verði upplýstir um hugsanleg brot gegn þeim svo þeir geti gætt réttar síns.
Nánar01. mar. 2007
Spurðu hvað þetta kostaði í gær
Í dag tóku gildi lög um lægri virðisaukaskatt og vörugjöld á ýmsum matvörum, þjónustu o.fl.; þú getur gert þitt til þess að lækkunin skili sér til neytenda - með því að spyrja þessa þegar þú verslar í dag og á næstunni.
Nánar01. mar. 2007
Icelandair og Iceland Express fá frest vegna „gjalda“ af flugfarþegum
Í kjölfar tilmæla talsmanns neytenda frá 15. febrúar sl., sem taka áttu gildi í dag, hafa Iceland Express og Icelandair óskað eftir fresti til þess að bregðst við tilmælunum og svara erindum um réttmæti „gjalda“ af flugfarþegum.
Nánar28. feb. 2007
Samkaup lækkar um meðaltali um 8,37% á morgun
Talsmaður neytenda spurði helstu verslunaraðila 1. febrúar sl. hvað verð myndi lækka mikið að meðaltali 1. mars miðað við 1. febrúar annars vegar og 1. október sl. hins vegar. Samkaup hafa svarað hinu fyrra.
Nánar27. feb. 2007
Hlutkesti frekar en útboð - til að neytendur gjaldi ekki í hærra verði á landbúnaðarvörum
Á fundi hjá landbúnaðarnefnd lagði talsmaður neytenda til hlutkesti fremur en útboð á tollkvótum til innflutnings á landbúnaðarvörum enda væri ráðherra hvort tveggja heimilt að óbreyttum lögum.
Nánar26. feb. 2007
Neytendur greiða oft fyrir sama afnotaréttinn
Í talhorninu í gær veltir talsmaður neytenda upp þeirri spurningu hvort réttlætanlegt er að neytendur greiði oft fyrir sama afnotaréttinn að tónlist eða mynd - og svarar neitandi og leggur til lausn.
Nánar23. feb. 2007
Síminn og Vodafone beðin um rökstuðning fyrir útskriftargjaldi
Í bréfi til stærstu símafyrirtækja landsins, Símans og Vodafone, er þeim boðið að upplýsa um raunkostnað við útsendingu reikninga í ljósi þess að neytendur eiga rétt á fullri sundurliðun fjarskiptareikninga - endurgjaldslaust.
Nánar22. feb. 2007
Fallist á mótvægisaðgerðir vegna frelsis í verðlagningu leigubifreiðaþjónustu
Samgönguráðherra hefur fallist á tillögu talsmanns neytenda um breytingar á reglugerð um leigubifreiðar í því skyni að hagsmunir neytenda séu betur tryggðir eftir að verðlagning leigubifreiðaþjónustu varð frjáls í fyrra.
Nánar21. feb. 2007
Varað við sniðgöngu símafyrirtækja með seðilgjöldum
Í nýrri umsögn til Alþingis varar talsmaður neytenda við því að símafyrirtæki fái að óbreyttu tækifæri til að sniðganga skarpari reglur um að neytendur eigi rétt á fullri sundurliðun símreikninga - endurgjaldslaust. Lögð er til lausn í umsögninni.
Nánar19. feb. 2007
Ákæra ber ritstjóra fyrir ómerktar áfengisauglýsingar í blöðum og tímaritum
Í greiningu sinni á ábyrgð á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum í talhorninu í gær kemst talsmaður neytenda að þeirri niðurstöðu að skýrt sé hver beri ábyrgðina: Nafngreindur auglýsandi - en ritstjóri ella.
Nánar16. feb. 2007
Réttmæti "gjalda" hjá Icelandair til athugunar
Talsmaður neytenda hefur sent Icelandair bréf þar sem tilkynnt er að tekið verði til athugunar hvort brotið hafi verið gegn réttindum og hagsmunum neytenda með töku svonefndra gjalda á flugfarþega. Bréfið til Icelandair er svohljóðandi:
Nánar15. feb. 2007
Flugfélögin hætti að nota hugtakið "gjöld" nema það sé réttnefni
Í tilmælum talsmanns neytenda í dag til flugfélaganna Iceland Express og Icelandair er mælst til þess að þau láti af nafngiftinni "gjöld" er áætlunarferðir eru seldar neytendum nema um sé að ræða réttnefni.
Nánar12. feb. 2007
Taktu vöru í „fóstur“ fyrir 1. mars
Í talhorninu stingur talsmaður neytenda upp á að allir neytendur taki a.m.k. eina vöru í „fóstur“ fyrir 1. mars og fylgist með verðbreytingum á henni 1. mars - og gjarnan framvegis.
Nánar06. feb. 2007
Ráðgjafarráð talsmanns neytenda sett á fót
Talsmaður neytenda hefur tilnefnt Brynhildi Pétursdóttur, ritstjóra Neytendablaðsins, Guðrúnu Johnsen, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, og dr. Ian Watson, alþjóðafulltrúa og aðjúnkt í félagsfræði, til setu í ráðgjafarráði talsmanns neytenda fyrir árið 2007.
Nánar05. feb. 2007
Auglýsandi er ábyrgur fyrir innihaldi auglýsinga
Að mati finnsku Neytendastofnunarinnar er auglýsandi siðferðilega ábyrgur fyrir innihaldi auglýsinga og ætti að standa undir þeirri ábyrgð eins og þegar fyrirtæki sýna samfélagslega ábyrgð á öðrum sviðum. Þó að erfitt sé að draga skýrar línur um mörkin séu algengar auglýsingar sem virka meiðandi eð...
Nánar02. feb. 2007
Reglur um merkingu erfðabreyttra matvæla væntanlegar í vor
Talsmaður neytenda fagnar ákvörðun umhverfisráðherra að gera skylt að merkja matvæli með erfðabreyttum efnum, svo og samráði um drög að reglugerð þetta efni - sem fyrirhugað er að setja í vor. Ísland er eina EES-landið þar sem enn er ekki skylt að upplýsa neytendur um að matvæli innihaldi erfðabrey...
Nánar01. feb. 2007
Verðmerking matvöru kjar(n)a-atriði
Talsmaður neytenda telur í kjölfar funda með fulltrúum verslunarinnar og frétta af auknu aðhaldi ekki tilefni til annarra viðbragða af sinni hálfu en að stuðla að því að reglum, sem tengjast verðmerkingum, verði framfylgt betur.
Nánar31. jan. 2007
Fulltrúar smásöluverslunarinnar á fundi um lækkun matarverðs
Talsmaður neytenda hefur boðað forstjóra og framkvæmdarstjóra helstu matvöruverslanakeðja og verslana í markaðssamstarfi á fundi nk. fimmtudag í því skyni að fá upplýsingar um fyrirhugaðar lækkanir á matvöruverði í þeim verslunum sem undir þá heyra 1. mars nk. í kjölfar ákvarðana um breytingar á sk...
Nánar22. jan. 2007
Mjög brýnt að setja lög um greiðsluaðlögun einstaklinga
Í tilefni af fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns til viðskiptaráðherra um greiðsluaðlögun óskaði ráðherra eftir sjónarmiðum talsmanns neytenda og upplýsingum. Talsmaður neytenda telur mjög brýnt að setja lög að norrænni fyrirmynd um greiðsluaðlögun enda séu fyrirliggjandi úrræði - nauða...
Nánar19. jan. 2007
Birting greiðslukortaupplýsinga á að heyra sögunni til
Nú er að mestu lokið innleiðingu tilmæla talsmanns neytenda um að fyrirtæki láti af því að birta fullt greiðslukortanúmer á kvittun korthafa sem leitt getur til misnotkunar greiðslukorta.
Nánar18. jan. 2007
Erindi til íslensku flugfélaganna varðandi „skatta og gjöld“ ítrekað
Talsmaður neytenda hefur ítrekað erindi sitt sem var sent fyrir þremur vikum til flugfélaganna Icelandair og Iceland Express varðandi svonefnda skatta og svonefnd gjöld en spurt var um heildartekjur og heildargjöld af liðum undanfarna 18 mánuði.
Nánar12. jan. 2007
Umboðsmaður neytenda í Finnlandi gagnrýnir óskýr skilyrði í vildarfélagsaðild
Umboðsmaður neytenda telur meginatriði að vildarfélagsaðild sé gagnsæ þannig að skilyrði og afleiðingar aðildar séu nægilega einfaldar og samanburðarhæfar til þess að neytendur geti áttað sig á þeim og tekið afstöðu. Þessi sjónarmið koma fram í nýjum leiðbeiningum um vildarfélagsaðild. Sjá fréttina...
Nánar09. jan. 2007
Talsmaður neytenda telur þörf á að skýra reglur um úttektir fasteigna
Í tilefni af fréttum undanfarna daga um úttektir á fasteignum má minna á umsögn talsmanns neytenda, dags. 7. september sl., um drög að frumvarpi til laga um mannvirki. Í umsögninni er gagnrýnt að ákvæði frumvarpsins um úttektir virðist ekki til þess fallin að bæta réttaröryggi neytenda eins og nauð...
Nánar04. jan. 2007
Umboðsmaður neytenda í Danmörku hefur áhrif - m.a. til bóta fyrir gesti í líkamsræktarstöðvum
Systurembætti talsmanns neytenda í Danmörku, forbrugerombudsmanden, sem hefur um 3ja áratuga reynslu að baki hefur í gegnum árin haft ýmis áhrif til góðs og stuðlað að aukinni neytendavernd eins og talsmaður neytenda á að gera hérlendis. Dæmi um þetta er gagnrýni umboðsmannsins á líkamsræktarstöðva...
Nánar03. jan. 2007
Vinna við Leiðakerfi neytenda hafin
Í dag var skrifað undir samning um umsjón við gagnvirka vefgátt undir heitinu Leiðakerfi neytenda og hefur Liselotte Widing tekið verkið að sér.
Nánar02. jan. 2007
Forsætisráðuneyti svarar talsmanni neytenda um lækkun matarverðs
Borist hefur svarbréf forsætisráðuneytis, dags. 22. desember sl., til embættis talsmanns neytenda við beiðni talsmanns neytenda um upplýsingar um áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til lækkunar á matvælaverði. Texti bréfsins fer hér á eftir:
Nánar27. des. 2006
Talsmaður neytenda óskar eftir upplýsingum um „skatta“ og „gjöld“ á flugfarþega
Talsmaður neytenda hefur með samhljóða bréfi til Icelandair og Iceland Express óskað eftir upplýsingum frá félögunum um heildartekjur og heildargjöld vegna skatta og gjalda á flugfarþega. Erindið er sent í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar, m.a. í FÍB-blaðinu, og erindis frá neytanda sem barst í kjölfar...
Nánar21. des. 2006
Opinber þjónusta lýtur eftirliti talsmanns neytenda ef hún er veitt af einkaaðilum og athugar embættið nú réttmæti þjónustugjalds Félagsbústaða hf.
Talsmaður neytenda hefur ákveðið að taka til athugunar réttmæti þjónustugjalds í þjónustuíbúðum aldraðra á vegum Reykjavíkurborgar. Byggist sú ákvörðun á þeirri niðurstöðu - sem búast má við að verði fordæmisgefandi - að opinber þjónusta, sem veitt er af einkaréttarlegum aðilum - svo sem í hlutafél...
Nánar18. des. 2006
Misræmi í upplýsingum um lækkun matarverðs frá versluninni annars vegar og stjórnvöldum hins vegar
Talsmaður neytenda hefur sent forsætisráðherra bréf í tilefni af því að Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) telja að heildaráhrif aðgerða til lækkunar matarverðs verði 9-10% en ekki 16% eins og kynnt var af hálfu stjórnvalda í október sl. Einnig er spurt um útreikninga og tímasetningu þar sem SVÞ ha...
Nánar29. nóv. 2006
Talsmaður neytenda leiðbeinir sumarhúsaeigendum og bíður átekta eftir frumvarpi til réttarbóta
Í kjölfar óformlegs og síðan formlegs erindis frá Sumarhúsafélaginu Dagverðarnesi í Skorradal leiðbeindi talsmaður neytenda formanni um færar leiðir og benti m.a. á sáttamiðlun á vegum sýslumanns en taldi rétt að bíða þess að frumvarpsdrög starfshóps félagsmálaráðuneytis um réttarbætur liti dagsins...
Nánar24. nóv. 2006
Talsmaður neytenda fer yfir ábyrgðarskilmála banka, sparisjóða og kortafyrirtækja
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur farið fram á það við banka, sparisjóði og kortafyrirtæki að fá til skoðunar ábyrgðarákvæði í skilmálum þeirra gagnvart neytendum – einkum m.t.t. ábyrgðar hvors aðila á innbrotum eða svikum í tengslum við heimabanka, hraðbanka eða með greiðslukortaup...
Nánar22. nóv. 2006
Flestar verslanir hætta að birta greiðslukortaupplýsingar á kvittunum fyrir jól
Fallist hefur verið á tilmæli talsmanns neytenda um að verslanir láti af því að birta á kvittunum korthafa fullt greiðslukortanúmer og gilditíma korts. Slíkar upplýsingar eru til þess fallnar að auðvelda kreditkortasvik á netinu eða með símgreiðslum komist þær í hendur óviðkomandi. Eru tilmælin að ...
Nánar26. okt. 2006
Umboðsmaður neytenda í Svíþjóð stefnir vegna tóbaksauglýsingar
Umboðsmaður neytenda í Svíþjóð, Konsumentombudsmannen, vill að Markaðsdómstóllinn taki til úrlausnar hvaða tóbaksauglýsingar eru leyfilegar tengslum við verslun. Umboðsmaðurinn telur að Philip Morris hafi brotið sænsk tóbakslög með auglýsingaskilti sem felur í sér þrýsting og hvatningu til kaupa.
Nánar16. okt. 2006
Tillaga TN nr. 06-1: Talsmaður neytenda vill afstýra einokun í mjólkuriðnaði
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason hefur sent viðskiptaráðherra Jóni Sigurðssyni tillögu um að stjórnvöld afstýri einokun í mjólkuriðnaði með breytingu á lögum. Talsmaður neytenda lýsir áhyggjum af óafturkræfum afleiðingum af slíkum samruna sem brýtur með alvarlegum hætti gegn hagsmunum neytenda...
Nánar10. okt. 2006
Birtingum á getraunaseðlum breytt
Íslensk getspá hefur fallist á tilmæli talsmanns neytenda þess efnis að láta af því að birta Jóker-númer á getrauanseðli þegar neytandi hefur ákveðið að að kaupa ekki Jóker enda er slík birting á seðlinum til þess fallin að hvetja neytendur til þess að kaupa meira en til stóð. Orðið verður við tilm...
Nánar04. okt. 2006
Umboðsmaður neytenda í Svíþjóð fer í mál vegna SMS-lána
Umboðsmaður neytenda í Svíþjóð hefur ákveðið að stefna fyrir markaðsdómstólinn fyrirtæki sem býður neytendum að taka lán með því að senda smáskilaboð í GSM-síma. Ástæða málshöfðunarinnar er að í útvarps- og sjónvarpsauglýsingum kom ekki skýrt fram hver kostnaður við lánið væri heldur aðeins að lánv...
Nánar23. mar. 2006
Talsmaður neytenda hvetur til Evrópureglna um markaðssetningu óhollrar matvöru fyrir börn
Í umsögn um grænbók ESB um að efla heilsusamlegar næringarvenjur og líkamshreyfingu gerir talsmaður neytenda m.a. tillögur um myndræna merkingu um hollustu vöru og staðsetningu óhollra matvara fyrir börn auk takmarkana á markaðssetningu sem beinist að börnum
Nánar17. jan. 2006
Kvartað til útvarpsréttarnefndar vegna áfengisauglýsinga
Útvarpsréttarnefnd beðin um að kanna formlega hvort íslenskar sjónvarpsstöðvar hafi brotið gegn ákvæðum útvarps- og áfengislaga með því að heimila birtingu bjórauglýsinga, kostun af hálfu bjórframleiðenda og aðra sýningu á áfengi og tengdum vörumerkjum.
Nánar