26. feb. 2008

Heilsufullyrðingar, sem ekki eru sérstaklega leyfðar, eru bannaðar

Á fróðlegum umræðufundi Matís með fjölmörgum hagsmunaðilum í dag var kynnt norræn rannsókn um heilsufullyrðingar - og skilning og afstöðu neytenda til þeirra - í tilefni af væntanlegri samræmingu Evrópureglna um þetta brýna málefni.

Nánar

25. feb. 2008

Fulltrúi neytenda innanhúss - á ábyrgð og kostnað fyrirtækja í stað skattborgara

Talsmaður neytenda telur rétt að fyrirtæki axli ábyrgð sína gagnvart neytendum með því að tilnefna sérstakan fulltrúa neytenda innanhúss í stað þess að ábyrgðin á eftirliti með réttindum neytenda sé lögð á hið opinbera eingöngu.

Nánar

22. feb. 2008

Afnuminn verði mismunur við endurfjármögnun íbúðarlána

Talsmaður neytenda hefur lagt til við fjármálaráðherra að afnumið verði lagaákvæði sem kveður á um mismunandi stimpilgjald eftir því hver endurfjármagnar fyrirliggjandi skuld eða því breytt þannig að jafnræði sé og hvati til samkeppni.

Nánar

15. feb. 2008

Dregið verði úr markaðssókn gagnvart börnum, einkum á óhollustu

Í nýlegri umsögn umboðsmanns barna og talsmanns neytenda varðandi auglýsingar á óhollri matvöru gagnvart börnum er vakin athygli á því að embættin hafi undanfarin 2 ár unnið að samkomulagi við markaðsaðila um lausn málsins í samráði við tugi hagsmunaaðila og sérfræðinga.

Nánar

12. feb. 2008

Neytandi geti líka afþakkað fjölpóst í fríblöðum

Talsmaður neytenda telur rétt að reyna til þrautar að ná samkomulagi um hvernig - ekki hvort - neytendur geti afþakkað fjölpóst og eftir atvikum fríblöð. Lagasetning er þrautalendingin en best er að semja um að neytendur geti einnig afþakkað fjölpóst sem skotið er inn í fríblöð.

Nánar

11. feb. 2008

Neytandi tryggður fyrir allt að um 2 millj. kr. hjá hverjum banka

Neytendur njóta að lágmarki lögbundinna trygginga gagnvart tapi á innistæðu og verðbréfaeign sem nemur rúmlega 2 millj. kr. hjá hverjum banka.

Nánar

08. feb. 2008

Olíufélögin bótaskyld vegna samráðs - en hvað með bætur neytenda?

Hæstiréttur hefur í fyrsta efnisdómi um skaðabótaskyldu olíufélaganna vegna ólögmæts samráðs kveðið á um bótaábyrgð þeirra, gagnvart opinberum aðilum. Sama á væntanlega við um bótarétt neytenda - ef þeir eiga kvittanir til að sanna viðskipti. Annarri bótaskyldu verður vart komið fram fyrir dómi.

Nánar

07. feb. 2008

Veitingamenn bera ábyrgðina - gagnvart reykingafólki og reyklausum

Talsmaður neytenda áréttar það mat sitt að hvorki stjórnvöld né neytendur séu ábyrg fyrir framkvæmd - eða brotum - á reykingabanni á veitinga- og skemmtistöðum. Þá ábyrgð bera veitingamenn, rekstrarlega gagnvart reykingafólki og lagalega gagnvart reyklausum.

Nánar

Greinar

06. des. 2011

Einhliða vörslusviptingar án dóms og laga geta verið refsiverðar

Ef ekki liggur fyrir réttarágreiningur er rétt að skila bifreið gegn réttmætu uppgjöri en annars þarf heimild dómara og atbeina sýslumanns til einhliða vörslusviptingar.
Nánar

15. nóv. 2011

Bótaábyrgð vegna „ótímabærra“ jarðskjálfta

Líklegt er að Orkuveita Reykjavíkur beri samkvæmt dómafordæmum hlutlæga ábyrgð á jarðskjálftum sem verða vegna niðurdælingar á Hellisheiði.
Nánar

04. mar. 2011

Leiðbeiningar til neytenda í kjölfar endurútreikninga gengislána

Ekki verður talið að krefja megi neytendur um „vangreiðslur“ vaxta vegna gengislána í kjölfar endurútreiknings. Neytendum er bent á að gera fyrirvara um betri rétt neytenda og óska úrbóta hjá umboðsmanni skuldara ef efast má um réttmæti útreikninga eða krafna.
Nánar

19. des. 2010

„Þykja hvorki neytendasjónarmið né staða aðila við samningsgerðina breyta þeirri niðurstöðu“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari gagnrýnir dóm Hæstaréttar frá 16. september 2010 um kjör á bílaláni til neytanda eftir að gengistrygging var dæmd ólögmæt þremur mánuðum fyrr. Gagnrýnin er ítarlega rökstudd - m.a. með vísan til dómafordæma Hæstaréttar.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli